Sæl öll,
Hér er fréttabréf #2 frá afreksíþróttasviði. Viðburðaríkur september!
Sveinn Þorgeirsson

Afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla
#afreks #AFR
Sæl öll,
Hér er fréttabréf #2 frá afreksíþróttasviði. Viðburðaríkur september!
Sveinn Þorgeirsson
Hin árlega nýnemaferð nemenda á Afreksíþróttasviðs Borgarholtsskóla var farin 2. september síðastliðinn. Dagurinn byrjaði snemma, 55 nemendur ásamt þremur kennurum fóru með rútu til Hveragerðis þar sem hópur frá Iceland Activites tók vel á móti okkur. Þau höfðu skipulagt marga skemmtilega hópeflisleiki sem reyndi á samvinnu og hina ýmsu færni.
Greinilegt var að í hópnum okkar er nóg af flottu íþróttafólki með keppnisskap því þau tóku að sjálfsögðu þátt af fullum krafti og stóðu sig vel. Eftir leikina var komið að hápunkti ferðarinnar en það var að fara í aparóluna. Aparólan er um 90 metra löng og strengd þvert yfir Reykjafoss í Varmá og fengu allir að fara eina sallýbunu yfir.
Eftir aparóluna var farið í sund þar sem einhverjir sóluðu sig í heita pottinum á meðan aðrir sýndu listir sínar á stökkbrettinu. Þá var komið að öðrum hápunkti að mati margra en það var að fá sér hádegismat. Hoflandssetrið tók vel á móti okkur með hlaðborði, þar sem boðið var upp á lambakjöt með öllu tilheyrandi.
Mjög vel heppnuð ferð, nemendur til fyrirmyndar og allir virtust njóta dagsins í botn. Við hlökkum til að vinna með þessum flottu krökkum á afrekssviðinu í haust.
Takk fyrir daginn!
Anna Margrét, Lárus og Vilhelm Már
Hér má nálgast 1. tölublað upplýsingapósts afreksíþróttasviðs – verði ykkur að góðu 🙂
Sveinn Þorgeirsson, verkefnisstjóri
Það er okkur á afreksíþróttasviðinu mikið ánægjuefni að tilkynna að bóklegi hluti okkar náms hefur verið metinn til þjálfarastigs ÍSÍ 1. og 2. almenns hluta. Þetta gerir það að verkum að þeir nemendur sem fara í gegnum 3 ár hjá okkur í núverandi skipulagi útskrifast með skírteini upp á þjálfunarmenntun frá ÍSÍ, stig 1. og 2. Þetta er okkur afar jákvæð viðurkenning og sterkt fyrir okkar nemendur sem sumir hverjir eiga eftir að koma nálægt þjálfun í framtíðinni. Bóklegi hluti okkar náms er settur upp sem einn tími í viku allar 6 annirnar. Þemun eru í eftirfarandi röð: næring og heilsa, þjálffræði, íþróttasálfræði, afrekshugsun I, afrekshugsun II og lokaverkefni.

Hér má sjá frekari upplýsingar um þjálfaramenntunina. http://isi.is/fraedsla/thjalfaramenntun/
Þjálfaramenntun ÍSÍ er áfangaskipt fræðslukerfi í fimm þrepum þar sem skilgreindar eru kröfur um menntun fyrir ákveðna markhópa. Þetta kerfi er samræmt fyrir allar íþróttagreinar. Fræðslukerfið er í samræmi við samræmdar kröfur sem settar hafa verið fram af “Network of Sport Sciences in Higher Education” (ENSSHE). Jafnframt hafa samtök frjálsra íþróttasamtaka í Evrópu (ENGSO) samþykkt að leggja beri aukna áherslu á menntun þjálfara, leiðbeinenda og leiðtoga fyrir íþróttastarf barna og unglinga.
Menntun á fyrstu þrem þrepunum, sem kallast almennur hluti, er innan íþróttahreyfingarinnar. Þjálfarastig 4 og 5 á að kenna á háskólastigi. Eins og er þá er aðeins hægt að taka þrjú þrep í almennahlutanum. Fyrstu þrjú þrepin eru hvert um sig 120 kennslustundir að lengd: Þeim er ýmist skipt niður í 20 stunda afmarkaðar einingar eða styttri einingar. Ýmist eru þessar einingar almennar og í umsjón ÍSÍ eða sérhæfðar í umsjón sérsambands. Almenni hluti námskeiðanna sem er í höndum ÍSÍ fer fram í fjarnámi.
Stefnuyfirlýsingu um þjálfaramenntun má nálgast hér.
Skilgreining:
Að loknu þessu stigi á þjálfarinn að geta skipulagt og stjórnað æfingatíma hjá börnum og unglingum á byrjendastigi. Til þess þarf hann að hafa grundvallarþekkingu á líkamlegum og andlegum þroska barna og unglinga. Hann þarf að þekkja starfsemi líkamans auk helstu aðferða við kennslu. Þjálfarinn á að kunna helstu grunnatriði í tækni, leikfræði og reglum í séríþróttagrein.
Skilgreining:
Að loknu þessu stigi á þjálfarinn að geta þjálfað unglinga og fullorðna sem hafa árangur í keppni að markmiði. Til þess þarf hann að hafa haldgóða þekkingu á starfsemi líkamans og skipulagi þjálfunar til lengri og skemmri tíma. Hann þarf að hafa undirstöðuþekkingu á hreyfingarfræði og kunna grunnatriði í næringarfræði og sálfræði íþrótta.
Þjálfarinn þarf að hafa fengið þjálfun í að tjá sig og koma fram fyrir framan hóp af fólki.
Þjálfarinn þarf að hafa góða þekkingu á tækni, leikfræði og reglum í séríþróttagrein. Auk þess þarf hann að kunna skil á helstu þjálfunaraðferðum viðkomandi greinar.
Síðasta haust buðum við í fyrsta skipti upp á kennslu fyrir einstaklingsíþróttir. Sundkonan Bryndís Bolladóttir er ein þeirra sem eru hjá okkur í fyrsta hópi. Hún fór í æfingabúðir til Frakklands í desember síðastliðnum ásamt öðru góðu sundfólki. Hér verður gripið niður í stutta ferðasögu frá henni sjálfri.
Þann 26. desember hélt ég ásamt góðu fólki til Frakklands. Þar var mjög vel tekið á móti okkur. Við syntum fyrst æfingu í heimbæ þjálfarans okkar en hann er mjög þekktur og virtur þjálfari í Frakklandi og víðar. Á æfinguna mættu um 60 manns til þess eins að horfa á okkur synda. Að æfingunni lokinni árituðum við sundhettur og syntum bođsund með liðinu. En við héldum svo áfram og keyrðum til Saint Lo sem er í norðanverðu Frakklandi. Næstu tvo daga kepptum við á móti þar. Við komum flest heim með smá meiri pening í vasanum og einhverjar medalíur. Ég kom heim með eitt gull og eitt brons fyrir 200 m skriðsund og 100 m fjórsund. Ég fékk þar að auki 50 evrur fyrir 200 metrana þar sem ég var með mest FINA stig í bæði kvenna- og karlaflokki.

Eftir mótið héldum við í langt flug til Guadaloupe. Guadaloupe er frönsk nýlenda í karabíska hafinu. Hérna æfum við af krafti í að meðaltali 25-30 stiga hita sem mér finnst frábært! Við æfum í sundlaug auk þess sem við höfum tekið nokkrar sjósundsæfingar og þrekæfingar á ströndinni.
Við höfum einnig náð okkur í köfunarskírteini en við fengum grunnkennslu í tærum og hlýjum sjónum. Það var ótrúleg upplifun! Við stefnum svo á að taka þátt í 3 km Open Water keppni á sunnudaginn enda öll orðin þaulvanir sjósundsgarpar eftir dvölina hérna.
Bryndís
Bryndís er ein þeirra nemenda sem fékk landsliðsstyrk AIS fyrir haustönnina fyrir ferð sína með landsliðinu á Norðurlandamótið, þar sem hún stóð sig einnig með prýði.
Það verður gaman að fylgjast með Bryndísi á næstu misserum í sundinu og óskum við henni og öðrum nemendum á einstaklingsbrautinni okkar góðs gengis!
Sveinn Þorgeirsson, verkefnisstjóri
Sara Margrét Brynjarsdóttir fór ásamt tveimur Fjölnisstelpum til Bandaríkjanna, nánar tiltekið til New Jersey þar sem þær spila með liði New Jersey í nokkurs konar forkeppni US Nationals sem er í vor.
Sara Margrét sem er með bandarískt ríkisfang hefur áður farið út með liðsfélögum sínum. Að þessu sinni fóru þær út á fimmtudaginn síðasta og koma heim þriðjudag.
Í þessari forkeppni mæta þær liðum frá New York, Boston og Washington DC.
Á meðfylgjandi myndum má sjá stelpurnar í keppnisbúning New Jersey liðsins og Söru Margéti til vinstri.
Þetta er algjört ævintýri enda er handboltinn að vaxa þarna vestanhafs og gaman að taka þátt í því. Við óskum Söru góðs gengis og góðrar heimkomu einnig!
Já, afreksíþróttanemendurnir kunna fleira en sitt fag í íþróttum. Kristján Örn Kristjánsson sló í gegn í smásagna keppni á ensku og sigraði í keppni framhaldsskólanna!
Það er ávallt gaman að veita viðurkenningar og fagna því sem vel er gert. Eitt slíkt tilefni var í dag, 12. janúar þegar þeim nemendum sem tóku þátt í landsliðsverkefnum í sinni grein á síðustu önn var veittur 25.000 kr. styrkur frá AIS. Í ár voru það 10 einstaklingar sem hlutu styrkinn fyrir eftirfarandi verkefni.

Verkefnin voru margvísleg og hér er afar stutt ágrip.
Ástríður Glódís, Andrea Jacobsen og Berglind Benediktsdóttir fóru allar með U18 ára landsliðinu í handknattleik í æfingaferð til Póllands nú í desember.
Úlfur Kjartansson fór með U18 ára til Þýsklands til að taka þátt í móti milli jóla og nýárs og gekk það vel.
Kristján Örn Kristjánsson keppti með U20 á heimsmeistaramótinu í Rússlandi í lok ágúst síðast liðnum. Þar náðist frábær árangur þar sem drengirnir lönduðu 3ja sætinu.
Thea Imani Sturludóttir fór með A-landsliði kvenna til Noregs síðast liðið haust. Þess má geta að hún er um leið fyrsta A-landsliðsleikmaður afreksíþróttasviðs í handbolta. Fyrir hefur afrekið eignast leikmenn í körfuknattleik karla.
Hulda Hrund Arnarsdóttir fór til Sviss með U19 í knattspyrnu í september síðastliðnum og Helgi Guðjónsson tók þátt með U17 í undankeppni EM í október sem fram fór hér á landi.
Sveinn Aron Guðjonhsen spilaði með U19 ára landsliði Íslands í knattspyrnu í undankeppni EM 2016. Þar vannst einn leikur, eitt jafntefli og eitt tap.
Bryndís Bolladóttir sundkona fær fyrsta styrkinn sem fer til einstaklingsgreina á afreksíþróttasviðinu. Hún hefur tekið þátt í metnaðarfullum æfingabúðum nú um áramótin og fór með landsliðinu til Bergen í Noregi í desember.
með kveðju og hamingjuóskum – haldið áfram að standa ykkur vel!
Sveinn Þorgeirsson
Þá hefur 2015 runnið sitt skeið og við tekur spennandi ár í AIS. Í dag stunda um 100 nemendur nám við afreksíþróttasvið úr 7 íþróttagreinum. Við hlökkum til að bæta við okkur fleiri íþróttagreinum á nýju ári enda hefur nýja brautin okkar – einstaklingsíþróttagreinar gengið afar vel.
Sem verkefnisstjóri mun ég bjóða áhugasömum félögum upp á kynningu á brautinni. Við höfum mikinn áhuga á að fá að kynna starfið fyrir 10. bekkjar nemendum. Hver kynning er að jafnaði um 20-30 mín að viðbættum spurningum.
Síðasta önn var lærdómsrík fyrir okkur. Við keyrðum nýtt prógram af stað með þéttara fagbóklegu námi en nokkru sinni fyrr. Nú verður næst skref tekið og verður gaman að fylgja síðari hluta breytinganna úr hlaði.
Meðal þess sem er framundan hjá AIS nemndum í vor eru
þemadagar, heimsóknir frá áhugaverðum þjálfurum og leikmönnum, tækniæfingar, líkamleg próf, fagbókleg verkefni, útskrift eldri nemenda ásamt styrkþjálfun svo nokkuð sé nefnt.