Tilboð í næringar-nóvember

Á þessum viðburði verður farið yfir sérstakt næringartilboð til nemenda. Nemendum og foreldrum gefst færi á að kaupa 20x skipta kort á kostakjörum. Farið verður yfir matseðla og góð ráð gefin. Hressing í boði.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Nýnemaferð sem lukkaðist ljómandi vel

Líkt og undanfarin ár, nema í fyrra, var farið með nýnema í ferð í upphafi annar. Ferðinni var heitið í Hveragerði þar sem Andrés og Úlli í Iceland Activities tóku vel á móti okkur í hjóla- og hópeflisferð. Við þökkum kærlega fyrir okkur og þessar myndir tala fyrir sig 🙂

Uppfærð stefna afreksíþróttasviðs

Á afreksíþróttasviði er boðið upp nám sem er sérstaklega sniðið fyrir nemendur framhaldsskóla sem vilja stunda íþrótt sína af krafti samhliða og þannig flétta saman nám og áhugamál. Boðið er upp á 30 námseiningar í 6 áföngum sem þreyttar eru samhliða öðru námi til stúdentsprófs í Borgarholtsskóla (ath. einnig iðngreinar). Nemendur af bóknámsbrautum til stúdentsprófs útskrifast með kjörsviðsval af afreksíþróttasviði.

Námið á afreksíþróttasviði er í senn krefjandi og hagnýtt. Áfangarnir blanda saman líkamlegri, félagslegri og hugarfarsþjálfun með það að markmiði að gagnast íþróttamanninum sjálfum í leik og starfi þá og þegar, sem síðar. Á sviðinu er boðið upp á fyrsta flokks þjálfun, ráðgjöf og faglegan stuðning fyrir íþróttafólk sem leitast við að sinna námi samhliða af kostgæfni.

Markmið afreksíþróttasviðsins er gera nemendur líkamlega, félagslega og hugarfarslega tilbúna í að takast á við álag sem fylgir því að stefna að vera í fremstu röð í sinni íþrótt. Námið er kjörinn undirbúningur fyrir frekara nám á háskólastigi með möguleikum á að bæta við sig eftir þörfum og nýta þar með sveigjanleika framhaldsskólakerfisins til fulls. Afreksíþróttasviðið er í samstarfi við erlenda skóla um heimsóknir nemenda og þátttakandi í erlendum rannsóknarverkefnum á sviði samþættingar náms og íþrótta (dual career).

15. september 2021

SÞ, verkefnisstjóri

3ja árið fór í hella- og baðferð á Hengilssvæðinu

Við erum loksins að ná að keyra í gegn þær áherslur sem áttu að byrja síðasta vetur. Í þeim fólst meðal annars að fara með eldri hópa í ferðir út á land. Þessi hópur hafði áður farið í fjallahjólanýnemaferð en nú var komið að einhverju öðru. Fyrir valinu þetta árið var að fara á Hengilssvæðið í hella- og baðferð.

Nú er það bara 1. árið sem á eftir að fara í nýnemaferð en hún verður farin 9. september nk. Kærar þakkir fyrir ferðina, þið voruð okkur til mikils sóma sem fyrr 🙂

2. árið fór í flotta fjallahjólaferð!

Nú loksins komumst við í hópferð með nemendur okkar á sem innrituðust í fyrra. Þetta hefur verið löng bið en við teljum að ferðin hafi verið afar vel heppnuð og markmiðum náð, – þ.e. að kynnast betur og skemmta sér saman.

Hér má sjá nokkrar myndir frá ferðinni sem var unnin í samstarfi við Iceland Activities. Nemendur fengu fjallahjól og nesti og hjóluðu um Reykjadalinn. Auk þess var farið í nokkra skemmtilega hópeflisleiki.

Framundan er svo ferð á Hengilssvæðið í bað- og hellaferð með 3ja árinu á morgun.

Myndir frá 31. ágúst, fjallahjólaferð 2. ársins.

Uppfærðar skólareglur

Vil viljum vekja athygli á að í vor voru reglur um afreksíþróttasviðið uppfærðar og standa nú svona í skólareglum Borgarholtsskóla.

Sérákvæði vegna afrekssviðs

Gerð er ríkari krafa um mætingu, ástundun og framvindu nemenda á afrekssviði. Nemandi fyrirgerir rétti sínum til náms á afrekssviði  við eftirfarandi:

  • Nemandi fer undir 85% mætingarhlutfall á önn.
  • Nemandi nær ekki lágmarkseinkunn 5 í afreksíþróttasviðsáfanga.
  • Nemandi nær ekki lágmarkseinkunn 5 í tveimur eða fleiri af þeim áföngum sem viðkomandi var skráður í við upphaf annar. Úrsögn jafngildir falli.
  • Nemandi gerist uppvís að broti á lífstílssamningi afrekssviðs sem hann skrifaði      undir í upphafi námstíma.

Nemandi sem fyrirgerir rétti sínum til náms á afrekssviði getur þó haldið áfram námi á þeirri braut sem hann er skráður á standist hann skólareglur að öðru leyti.

Frekari upplýsingar veitir verkefnisstjóri

Sveinn Þorgeirsson í sveinn.thorgeirsson@borgo.is

Glæsileg útskrift

Það var að vanda glæsilegur hópur sem útskrifaðist frá okkur og í vor eru það 23 nemendur sem luku námi. Hér er myndaveisla frá viðburðinum sem var streymt á netinu.

Verðlaun og skírteini á útskrift

Í lok hverrar annar uppskera nemendur eins og til hefur verið sáð. Nú er komið að því að kveðja nemendur sem eru að ljúka skólagöngu sinni í Borgarholtsskóla og halda á vit nýrra ævintýra. Okkur finnst eins og þessi árgangur sé nýbúinn að innritast hjá okkur, en auðvitað er ekki svo. Þau fóru flest í góða hjólaferð í upphafi náms hér í Borgarholtsskóla og komust í gegnum námið samhliða heimsfaraldri hvorki meira né minna.

Viðurkenningar fyrir námsárangur

Tveir nemendur fá viðurkenningu fyrir frábæran námsárangur á afreksíþróttasviði. Það eru þau Eyþór Blær og María Björg. Þau hafa staðið sig frábærlega allt frá upphafi síns námsferils hjá okkur hafa verið til fyrirmyndar í ástundun og viðmóti. Til hamingju!

Samstarf við ÍSÍ um mat á námi

Hluti af samstarfi afreksíþróttasviðs Borgarholtsskóla við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands er fólgið í því að nemendur okkar fá námið sitt metið til 1. stigs og bóklegs hluta 2. stigs í þjálfaramenntun ÍSÍ. Þau fá staðfestingarskírteini við útskrift og ÍSÍ fær upplýsingar einnig um hvaða nemendur luku þessum áfanga hjá okkur. Hver veit nema einhverjir nemendur hafi áhuga á þjálfun í framtíðinni 🙂

Hér er mynd af því skírteini sem nemendur fá til staðfestingar á því að hafa lokið viðkomandi bóklegu námi

Útskriftarnemendur vor 2021

Hér eru nöfn þeirra nemenda sem útskrifast frá okkur í vor.

Arnór Tjörvi ÞórssonGolf
Aron Snær IngasonFótbolti
Benedikt Gunnar ÓskarssonHandbolti
Dagbjartur SigurbrandssonGolf
Dagur Ingi IngasonHandbolti
Elvar Már KristinssonGolf
Emil Bjartur SigurjónssonKlifur
Erik HallgrímssonFótbolti
Eyþór Blær GuðlaugssonFótbolti
Ísabella Anna HúbertsdóttirFótbolti
Ísar Freyr JónassonKörfubolti
María Björg MarinósdóttirFótbolti
Mikael Daníel GuðmarssonFrjálsar
Ólafur Kristinn JónssonFolf / Handbolti
Óliver Máni SchevingFótbolti
Orri ÞórhallssonFótbolti
Patrik HermannssonFótbolti
Rafal Stefán DaníelssonFótbolti
Sigvaldi Örn ÓskarssonBlak
Steindór Máni BjörnssonKeila
Úlfur ÁrnasonFrjálsar
Viktor Andri HafþórssonFótbolti
Þórður Jökull HenryssonKarate
samtals 23 nemendur
Listi yfir útskriftarnemendur okkar frá afreksíþróttasviði vorið 2021.

Það er komið að leiðarlokum okkar með þessum stóra og frábæra hópi nemenda. Við munum sakna ykkar úr skólanum, svo mikið er víst. Gangi ykkur sem allra best í þeim verkefnum sem ykkar bíða!

fyrir hönd kennara á afreksíþróttasviði Borgarholtsskóla

Sveinn Þorgeirsson, verkefnisstjóri

Afreksdagurinn 12. maí

Við héldum Afreksdag í síðustu viku. Um var að ræða lokahnykkinn á starfið okkar og síðasta tíma með nemendum þessa önnina. Nemendum var boðið upp á ólíka dagskrá eftir áföngum þar sem áherslan var að hafa gaman saman. Dagurinn fór fram í lotu með félagslegri áherslu og var það því tilvalið að hafa þetta einfalt, hittast og eiga góða stund.

Fyrsta árinu var boðið í Egilshöllina þar sem þau gátu valið um liðkunar- og styrkæfingar í heitum sal með Ölmu sjúkraþjálfara, fara á skauta eða fara í hjólaferð. Að lokum komu allir nemendur saman yfir samlokum og djúsum.

Annað árið fékk val um að fara í golfþrautir í Golfklúbbi Mosfellsbæjar í frábærri aðstöðu eða að fara í sund í Grafarvogslaug. Að því loknu var boðið upp á létta hressingu með söfum og samlokum.

2. árið okkar með samlokur og djúsa eftir sundsprett.

Þriðja árið fékk svo að fara í heimsókn í Háskólann í Reykjavík þar sem þau fengu fyrirlestur frá Írisi Mist kennara okkar um hugarfar afreksíþróttafólks og tengdi þar marga áhugaverða þætti saman. HR og Borgarholtsskóli eru í formlegu samstarfi um ýmsa þætti og hluti af því er að nemendur fái að koma í heimsókn í skólann og fengu sérstaka kynningu námi íþróttafræðinnar ásamt því að skoða sig um. Að því loknu var boðið upp á heitan hádegismat og í boði var að fara á Ylströndina í Nauthólsvík.

3. árið okkar í heimsókn í HR.

Heil yfir gekk dagurinn ákaflega vel og gaman að geta endað sérkennilega önn á þennan hátt.

Við eigum von á að geta farið í stærri og umfangsmeiri ferðir með hópanna okkar næsta haust með áframhaldandi árangri í sóttvörnum og bólusetningum.

Til 1. og 2. árs – hlökkum til að sjá ykkur eftir sumarið!

Til 3. árs – við munum sakna ykkar! Sjáumst á útskrift ykkar, núna í vor, næsta haust eða síðar. Gangi ykkur vel!