Hér getið þið nálgast uppfært umsóknareyðublað á pdf formi fyrir vorönn.
Brautarplön aðgengileg
Ykkur til upplýsinga eru brautarplön afreksíþróttasviðsins hér.
Nýjasta fréttabréfið okkar!
Þökkum ÍSÍ fyrir fræðslu um lyfjamál!
Jón Freyr og Anton Ari Íslandsmeistarar
Anton Ari (fyrrum nemandi á afreks í grænu) og Jón Freyr (núverandi nemandi) urðu Íslandsmeistarar með karlaliði Vals í gær! Til hamingju með titilinn drengir
Styrkur ehf. og Afreksíþróttasvið í samstarf
Okkur er það mikil ánægja að tilkynna að sjúkraþjálfunarstöðin Styrkur ehf. uppi á Höfðabakka og Afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla eru komin í formlegt samstarf um þjónustu sem stöðin og sviðið ætla að veita nemendum Borgarholtsskóla.
Þetta mun verða mikil bæting á þjónustu fyrir sviðið að hafa jafn gott aðgengi að stöð eins og Styrk sem er vel staðsett og útbúin ásamt því að vera með 2 af okkar þjálfurum innanborðs. Þetta gerir allt samstarf mjög skilvirkt og einfalt og munu nemendur okkar njóta þess að hafa aðgengi að tímum samdægurs, því við vitum vel hvað það getur skipt miklu máli fyrir íþróttamenn að fá góða meðhöndlun strax.

Til hamingju með þetta nemendur afreksíþróttasviðs Borgarholtsskóla og Styrkur!
Leikmannasamtökin í heimsókn!
Leikmannasamtök Íslands komu í heimsókn á 3ja árið okkar á afreksíþróttasviðinu í gær. Þar fengu nemendur fræðslu í réttindum leikmanna gagnvart félögum sínum og hagnýt ráð í samningagerð svo dæmi séu tekin.
Við þökkum þeim Kristni Björgúlfssyni og Arnari Theodórssyni fyrir flotta kynningu og gagnleg ráð. Fyrir áhugasama er slóðin á vefsíðu samtakana http://leikmenn.is/.

Fyrirmyndarsvið Borgarholtsskóla
Nýnemar fóru í árlega ferð afreksíþróttasviðs í dag í blíðskaparveðri í Hveragerði. Þangað var haldið í morgun og aðalverkefni dagsins var hjólreiðatúr um Reykjadalinn. Það er skemmst frá því að segja að ferðin heppnaðist afar vel og við vorum ánægð með nemendurna okkar sem voru til fyrirmyndar. Annars segja myndir meira en mörg orð…
SÞ og kennarar
Afrekssviðsnemendur með verðlaun í tugþraut 16-17 ára
Tveir af okkar nemendum í einstaklingsíþróttum kepptu á meistaramótinu í fjölþrautum núna um helgina, þar sem þeir höfnuðu í 1. og 3. sæti í tugþraut 16-17 ára. Þetta eru þeir Kolbeinn Tómas Jónsson (2. ár) og Úlfur Árnason (nýnemi) og keppa þeir báðir fyrir hönd ÍR. Við óskum drengjunum til hamingju með árangurinn og gangi þeim vel á mótum vetrarins!
Nánar um mótið hér á vef ÍR um mótið http://ir.is/frjalsar-news/mikid-um-baetingar-a-mi-i-fjolthrautum/

Sveinn og Brynjar G






















