Bryndís Bolladóttir nemandi af náttúrufræðibraut og afreksíþróttasviði varð í 1. sæti í smásagnasamkeppni sem Kennarasamband Íslands í samstarfi við Heimili og skóla, stóð fyrir. Bryndís hlaut verðlaunin fyrir söguna Hún kenndi mér allt sem ég kann – sigursaga þyrnidansara í þunglyndi. Úrslit voru tilkynnt við hátíðlega athöfn í Kennarahúsinu miðvikudaginn 5. október.
Keppendum var skipt í fimm flokka en þeir voru:
leikskólinn
grunnskólinn 1. – 4. bekkur,
grunnskólinn 5. – 7. bekkur
grunnskólinn 8. – 10. bekkur
framhaldsskólinn.
Allar verðlaunasögurnar verða birtar í Skólavörðunni, tímariti Kennarsambands Íslands.
Verðlaunahafarnir fengu Kindle-lestölvu auk blóma og viðurkenningarskjals.
Þátttaka í keppninni var mjög góð, en tæplega tvö hundruð smásögur bárust af öllum skólastigum. Dómnefndina skipuðu Kristín Ómarsdóttir skáld, Kristján Jóhann Jónsson, dósent á Menntavísindasviði HÍ, og Bryndís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SAMFOK.
Meðfylgjandi mynd er tekin af vef Kennarasambands Íslands og sýnir hún verðlaunahafa og dómnefndina.
Við fengum góða heimsókn í áfanganum afrekshugsun II frá Kristni Björgúlfssyni frá Leikmannasamtökum Íslands og Arnari Theodórssyni umboðsmanni á réttindum leikmanna og mikilvægum atriðum sem snúa að samningagerð leikmanna við íþróttafélög. Þökkum þeim kærlega fyrir komuna!
Hin árlega nýnemaferð nemenda á Afreksíþróttasviðs Borgarholtsskóla var farin 2. september síðastliðinn. Dagurinn byrjaði snemma, 55 nemendur ásamt þremur kennurum fóru með rútu til Hveragerðis þar sem hópur frá Iceland Activites tók vel á móti okkur. Þau höfðu skipulagt marga skemmtilega hópeflisleiki sem reyndi á samvinnu og hina ýmsu færni.
Greinilegt var að í hópnum okkar er nóg af flottu íþróttafólki með keppnisskap því þau tóku að sjálfsögðu þátt af fullum krafti og stóðu sig vel. Eftir leikina var komið að hápunkti ferðarinnar en það var að fara í aparóluna. Aparólan er um 90 metra löng og strengd þvert yfir Reykjafoss í Varmá og fengu allir að fara eina sallýbunu yfir.
Eftir aparóluna var farið í sund þar sem einhverjir sóluðu sig í heita pottinum á meðan aðrir sýndu listir sínar á stökkbrettinu. Þá var komið að öðrum hápunkti að mati margra en það var að fá sér hádegismat. Hoflandssetrið tók vel á móti okkur með hlaðborði, þar sem boðið var upp á lambakjöt með öllu tilheyrandi.
Mjög vel heppnuð ferð, nemendur til fyrirmyndar og allir virtust njóta dagsins í botn. Við hlökkum til að vinna með þessum flottu krökkum á afrekssviðinu í haust.
Það er okkur á afreksíþróttasviðinu mikið ánægjuefni að tilkynna að bóklegi hluti okkar náms hefur verið metinn til þjálfarastigs ÍSÍ 1. og 2. almenns hluta. Þetta gerir það að verkum að þeir nemendur sem fara í gegnum 3 ár hjá okkur í núverandi skipulagi útskrifast með skírteini upp á þjálfunarmenntun frá ÍSÍ, stig 1. og 2. Þetta er okkur afar jákvæð viðurkenning og sterkt fyrir okkar nemendur sem sumir hverjir eiga eftir að koma nálægt þjálfun í framtíðinni. Bóklegi hluti okkar náms er settur upp sem einn tími í viku allar 6 annirnar. Þemun eru í eftirfarandi röð: næring og heilsa, þjálffræði, íþróttasálfræði, afrekshugsun I, afrekshugsun II og lokaverkefni.
Þjálffræðibókin sem við kennum í gegnum okkar bóklegu tíma. Hún er kjölfestan ásamt viðeigandi aukaefni.
Þjálfaramenntun ÍSÍ er áfangaskipt fræðslukerfi í fimm þrepum þar sem skilgreindar eru kröfur um menntun fyrir ákveðna markhópa. Þetta kerfi er samræmt fyrir allar íþróttagreinar. Fræðslukerfið er í samræmi við samræmdar kröfur sem settar hafa verið fram af “Network of Sport Sciences in Higher Education” (ENSSHE). Jafnframt hafa samtök frjálsra íþróttasamtaka í Evrópu (ENGSO) samþykkt að leggja beri aukna áherslu á menntun þjálfara, leiðbeinenda og leiðtoga fyrir íþróttastarf barna og unglinga.
Menntun á fyrstu þrem þrepunum, sem kallast almennur hluti, er innan íþróttahreyfingarinnar. Þjálfarastig 4 og 5 á að kenna á háskólastigi. Eins og er þá er aðeins hægt að taka þrjú þrep í almennahlutanum. Fyrstu þrjú þrepin eru hvert um sig 120 kennslustundir að lengd: Þeim er ýmist skipt niður í 20 stunda afmarkaðar einingar eða styttri einingar. Ýmist eru þessar einingar almennar og í umsjón ÍSÍ eða sérhæfðar í umsjón sérsambands. Almenni hluti námskeiðanna sem er í höndum ÍSÍ fer fram í fjarnámi.
Stefnuyfirlýsingu um þjálfaramenntun má nálgast hér.
Þjálfari 1 – átta vikna námskeið í fjarnámi
Skilgreining:
Að loknu þessu stigi á þjálfarinn að geta skipulagt og stjórnað æfingatíma hjá börnum og unglingum á byrjendastigi. Til þess þarf hann að hafa grundvallarþekkingu á líkamlegum og andlegum þroska barna og unglinga. Hann þarf að þekkja starfsemi líkamans auk helstu aðferða við kennslu. Þjálfarinn á að kunna helstu grunnatriði í tækni, leikfræði og reglum í séríþróttagrein.
Þjálfari 2 – fimm vikna námskeið í fjarnámi
Skilgreining:
Að loknu þessu stigi á þjálfarinn að geta þjálfað unglinga og fullorðna sem hafa árangur í keppni að markmiði. Til þess þarf hann að hafa haldgóða þekkingu á starfsemi líkamans og skipulagi þjálfunar til lengri og skemmri tíma. Hann þarf að hafa undirstöðuþekkingu á hreyfingarfræði og kunna grunnatriði í næringarfræði og sálfræði íþrótta.
Þjálfarinn þarf að hafa fengið þjálfun í að tjá sig og koma fram fyrir framan hóp af fólki.
Þjálfarinn þarf að hafa góða þekkingu á tækni, leikfræði og reglum í séríþróttagrein. Auk þess þarf hann að kunna skil á helstu þjálfunaraðferðum viðkomandi greinar.
Nýjung frá og með næsta hausti verður tölvupóstlisti þar sem öllum áhugasömum, þjálfurum, foreldrum, og íþróttaáhugamönnum verður boðið að fylgjast með því starfi sem fram fer á afreksíþróttasviðinu. Við komum til með að senda út mánaðarlegt fréttabréf og hefur það göngu sýna nú í ágúst. Við bjóðum ykkur að skrá netfang ykkar hér til hliðar og fylgjast með! HÉR TIL VINSTRI.
Þeir nemendur fæddir árið ´00 sem hafa fengið umsókn sína um bóknámsbraut+afreksíþróttasvið staðfesta með skólagjöldum hafa fengið inngöngu á afreksíþróttasvið. Við óskum þeim til hamingju og hlökkum til að fara að vinna með ykkur í haust.
Fyrir hönd afreksíþróttasviðsins vil ég þakka kærlega fyrir frábæra aðsókn. Virkilega sterkur hópur sem sótt hefur um hjá okkur og treystir okkur til að aðstoða sig við að verða betri íþróttamenn. Við erum afar stolt af því og finnum fyrir jákvæðri pressu til að halda áfram að bæta í og gera vel.
Í vor klárar frábær hópur nemenda sína 6. önn á afreksíþróttasviði. Þessir nemendur hafa undanfarna mánðuði unnið að lokaverkefnið tengdu áhugasviði þeirra. Verkefnin voru afar fjöldbreytt og höfðu öll góða tengingu við það efni sem við höfum rætt og kennt hér á afreksíþróttasviðinu. Dæmi um verkefni eru; svefnvenju, krossbandaslit, næring fyrir keppni, væntingar, sjálfstraust, liðsheild og álagsmeiðsli svo dæmi séu tekin. Nemendur unnu leituðu heimilda, skrifuðu ritgerð, tóku viðtöl, lögðu fyrir og greindu spurningalista ásamt því að fá þjálfun í kynningu og verja verkefnið að lokum. Þetta fyrirkomulag er nýtt og þótti takast vel. Nemendur lærðu heilmikið og ljóst að sambærilegur háttur verður hafður á að ári.
Veggspjald. Hluti af lokaverkefni Arnars Hugins um krossbandsslit hjá íþróttamönnum. Orsakir, meðferð og forvarnir.Nemendur afreksíþróttasviðs ásamt framkomu og tjáningarþjálfaranum Guðlaugu Maríu Bjarnadóttur sem er í rauðu fyrir miðju.
Að lokum er hér eitt dæmi um lokaverkefni sem kynnt var á þessum degi. Það var unnið af Loga Ágústssyni og fjallar um svefnvenjur afreksíþróttanemenda. Verkefnið má nálgast hér: logi_agustsson_lokaverkefni_AIS_2016_vor
þessa hóps verður sárt saknað af afreksíþróttasviðinu!