4. afhending landsliðsstyrks

Í hádeginu í gær fór fram 4. afhending á landsliðsstyrk á afreksíþróttasviðinu. Þeir nemendur sem hafa tekið þátt í landsliðsverkefnum á vegum sérsambands fá 25.000 kr. styrk. Þetta fyrirkomulag hefur mælst vel fyrir þar sem töluverður kostnaður getur fylgt þátttöku.

Eftirfarandi nemendur fengu styrk að þessu sinni.

Afreksíþróttasviðsnemendur
Afhending styrks. Efri röð frá vinstri, Sveinn, Donni, Hulda, Helgi og Ingi Bogi. Neðri röð frá vinstri. Elvar Snær, Hjalti Jó, Thea Imani og Bryndís.
  • Elvar Snær Ólafsson og Hjalti Jóhannsson fóru til Mexíkó með U20 ára landsliði Íslands í íshokkí.
  • Helgi Guðjónsson knattspyrnumaður tók þátt í milliriðli fyrir EM í Frakklandi í apríl með landsliði Íslands.
  • Bryndís Bolladóttir sundkona keppti fyrir Íslands hönd hér á landi.
  • Thea Imani Sturludóttir og Hulda Dagsdóttir kepptu
  • Kristján Örn Kristjánsson fór til Póllands og keppti í undakeppni EM U20 í handbolta

Til hamingju með þetta kæru nemendur!

Sveinn verkefnisstjóri og þjálfarar

Margt í gangi í einu

Þriðjudagar eru bóklegir dagar hjá okkur. Oft fáum við heimsóknir frá góðum gestum og þriðjudagurinn í síðustu viku var engin undantekning. Þá var í gangi kennsla í þjálffræði fyrir 1. árið sem var í höndum Kristjáns Ómars Björnssonar.

Á sama tíma fengum við Guðlaugu Maríu Bjarnadóttur til að kenna nemendum á 3ja ári hvernig við höldum kynningar og fyrirlestra. Tíminn var í fomi verklegra æfinga og fyrirlesturs. Þessi kennsla var liður í undirbúningi nemenda fyrir lokaverkefni sem þau flytja í vor.

20160419_133437
Verkleg æfing með Guðlaugu Maríu.

Á neðri hæðinni fengu svo nemendur á 2. ári góða heimsókn frá Kjartani Atla Kjartanssyni sem fjallaði um margt áhugavert er tengist ferli íþróttamannsins og þeim þáttum sem stuðla að árangri.

13052680_10153548147612592_1935047987_o
Kjartan Atli fjallar um sjálfbæra íþróttamenn í tímanum Afrekshugsun sem Daði Rafnsson stýrir.

 

Sveinn Þorgeirsson, verkefnisstjóri afreksíþróttasviðs,

sveinn@bhs.is

Ný kynning

Þessi verður hér þangað til 3. mars þegar opna húsið verður. Þá kemur inn ný og uppfærð kynning. Þessi var haldin fyrir fótboltastráka í Fjölni 3. febrúar.

Bryndís Bolladóttir æfir við frábærar aðstæður!

Síðasta haust buðum við í fyrsta skipti upp á kennslu fyrir einstaklingsíþróttir. Sundkonan Bryndís Bolladóttir er ein þeirra sem eru hjá okkur í fyrsta hópi. Hún fór í æfingabúðir til Frakklands í desember síðastliðnum ásamt öðru góðu sundfólki. Hér verður gripið niður í stutta ferðasögu frá henni sjálfri.

Þann 26. desember hélt ég ásamt góðu fólki til Frakklands. Þar var mjög vel tekið á móti okkur. Við syntum fyrst æfingu í heimbæ þjálfarans okkar en hann er mjög þekktur og virtur þjálfari í Frakklandi og víðar. Á æfinguna mættu um 60 manns til þess eins að horfa á okkur synda. Að æfingunni lokinni árituðum við sundhettur og syntum bođsund með liðinu. En við héldum svo áfram og keyrðum til Saint Lo sem er í norðanverðu Frakklandi.  Næstu tvo daga kepptum við á móti þar. Við komum flest heim með smá meiri pening í vasanum og einhverjar medalíur. Ég kom heim með eitt gull og eitt brons fyrir 200 m skriðsund og 100 m fjórsund. Ég fékk þar að auki 50 evrur fyrir 200 metrana þar sem ég var með mest FINA stig í bæði kvenna- og karlaflokki. 

Screenshot_2016-01-03-18-10-56-1_resized
Bryndís Bolladóttir í æfingaferð með sundlandsliðinu.

Eftir mótið héldum við í langt flug til Guadaloupe. Guadaloupe er frönsk nýlenda í karabíska hafinu. Hérna æfum við af krafti í að meðaltali 25-30 stiga hita sem mér finnst frábært! Við æfum í sundlaug auk þess sem við höfum tekið nokkrar sjósundsæfingar og þrekæfingar á ströndinni. 

Við höfum einnig náð okkur í köfunarskírteini en við fengum grunnkennslu í tærum og hlýjum sjónum. Það var ótrúleg upplifun! Við stefnum svo á að taka þátt í 3 km Open Water keppni á sunnudaginn enda öll orðin þaulvanir sjósundsgarpar eftir dvölina hérna.

Bryndís 

Bryndís er ein þeirra nemenda sem fékk landsliðsstyrk AIS fyrir haustönnina fyrir ferð sína með landsliðinu á Norðurlandamótið, þar sem hún stóð sig einnig með prýði.

Það verður gaman að fylgjast með Bryndísi á næstu misserum í sundinu og óskum við henni og öðrum nemendum á einstaklingsbrautinni okkar góðs gengis!

Sveinn Þorgeirsson, verkefnisstjóri

Góð heimsókn á afreksíþróttasviðið frá mfl. þjálfurum Fylkis!

Knattspyrnunemendur okkar fengu góða heimsókn frá þjálfurum meistaraflokka karla og kvenna í Fylki. Þeir Hermann Hreiðarsson og Eiður Ben Eiríksson stjórnuðu æfingunni af miklum myndarbrag. Við þökkum þeim fyrir góða heimsókn, alltaf áhugavert að fá góða þjálfara í heimsókn.

WP_20160125_11_45_19_Pro.jpg WP_20160125_11_49_50_Pro.jpg

með kveðju

Þjálfarar knattspyrnu og Sveinn verkefnisstjóri