Afrakstur gildisvinnu

Hér að ofan má sjá afrakstur gildisvinnunar frá því í fyrstu lotu. Þarna eru fullyrðingar nemenda sem lýsa því best hvernig þau sjá viðkomandi gildi. Gildin voru skrifuð af nemendum, flokkuð af kennurum og svo að lokum kusu nemendur þær fullyrðingar sem þóttu eiga best við hvert gildi.
SÞ
Fylgist með á “afrekssvid” á INSTAGRAM
Fréttabréf afreksíþróttasviðs [sept. 2019]
Hér er okkar nýjasta fréttabréf í nýjum búningi. Góðar stundir!

| Fréttabréf afreksíþróttasviðs Borgarholtsskóla [sept. 2019] |
| Grafarvogur, 2019 |
| Go to this Sway |
Instagram: afrekssvid Fylgstu með!
Við munum virkja instagramið okkar til góðra verka í vetur – fylgist endilega með okkur 🙂
https://www.instagram.com/afrekssvid/

SÞ
Hlekkir fyrir einstaklingstíma :)
Gleðilegt sumar
Hér er síðasta fréttabréfið fyrir sumarfrí. Við komum aftur í ágúst þegar skólinn hefst að nýju! Góðar stundir!

SÞ
Hvernig sæki ég um á afreksíþróttasvið og nám í Borgarholtsskóla?
Í vor fá nemendur í 10. bekk sérstakt tækifæri til að gera upp hug sinn varðandi framtíðina. Nemendur sem hyggjast sækja um á afreksíþróttasviðinu okkar í Borgarholtsskóla er bent á að gera eftirfarandi svo allt gangi smurt og vel fyrir sig.
Bóknám + afreksíþróttasvið = Þið sækið um á menntagatt.is viðeigandi bóknámsbraut í Borgarholtsskóla sem tengd er við afreksíþróttasviðið fyrir tilgreindan frest OG skilið inn umsókn og meðmælabréfi á skrifstofu skólans eða með tölvupósti á sveinn@bhs.is fyrir 5. júní.
Listnám/iðnnám + afreksíþróttasvið = Þið sækið um viðeigandi nám innan Borgarholtsskóla á menntagatt.is fyrir tilgreindan frest OG skilið inn umsókn og meðmælabréfi á skrifstofu skólans eða með tölvupósti á sveinn@bhs.is fyrir 5. júní.
Hér er rafræna umsóknareyðublaðið. AFR_umsokn_vor_2019-20
Nánari upplýsingar um umsóknarferlið á afreksíþróttasviðinu veitir undirritaður.
Sveinn Þorgeirsson, verkefnisstjóri
Líkamleg próf – einkunnaskali
Hér er einkunnaskalinn fyrir líkamleg próf afreksíþróttasviðs sem fram fara í næstu viku. Gangi ykkur vel!
Ný facebook síða – við færum okkur og bætum okkur :)
Það eru breytingar í farvatninu.
Afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla
Í vor munum við skipta alfarið um facebook-síðu fyrir upplýsingar tengdar afrekinu. Við förum á stóra og flotta síðu Borgarholtsskóla og munum áfram deila efni okkar á þeim vettvangi.
Það þýðir að þessi síða verður lögð af og hvetjum við ykkur til að beina sjónum ykkar að þessari flottu síðu skólans á næstu misserum fyrir frekari fregnir af afrekinu og örðu starfi skólans.
SÞ, verkefnisstjóri afreksíþróttasviðs





