Hér er síðasta fréttabréfið fyrir sumarfrí. Við komum aftur í ágúst þegar skólinn hefst að nýju! Góðar stundir!

SÞ

#afreks #AFR
Hér er síðasta fréttabréfið fyrir sumarfrí. Við komum aftur í ágúst þegar skólinn hefst að nýju! Góðar stundir!

SÞ
Í síðustu viku var landsliðsstyrkur veittur í 10. sinn í Borgarholtsskóla. Alls voru það 12 nemendur sem hlutu styrk upp á 25.000 kr. Hér að neðan er yfirlit yfir verkefnin þeirra og óskum við þeim til hamingju með árangurinn og gleðilegt sumar!










Í vor fá nemendur í 10. bekk sérstakt tækifæri til að gera upp hug sinn varðandi framtíðina. Nemendur sem hyggjast sækja um á afreksíþróttasviðinu okkar í Borgarholtsskóla er bent á að gera eftirfarandi svo allt gangi smurt og vel fyrir sig.
Bóknám + afreksíþróttasvið = Þið sækið um á menntagatt.is viðeigandi bóknámsbraut í Borgarholtsskóla sem tengd er við afreksíþróttasviðið fyrir tilgreindan frest OG skilið inn umsókn og meðmælabréfi á skrifstofu skólans eða með tölvupósti á sveinn@bhs.is fyrir 5. júní.
Listnám/iðnnám + afreksíþróttasvið = Þið sækið um viðeigandi nám innan Borgarholtsskóla á menntagatt.is fyrir tilgreindan frest OG skilið inn umsókn og meðmælabréfi á skrifstofu skólans eða með tölvupósti á sveinn@bhs.is fyrir 5. júní.
Hér er rafræna umsóknareyðublaðið. AFR_umsokn_vor_2019-20
Nánari upplýsingar um umsóknarferlið á afreksíþróttasviðinu veitir undirritaður.
Sveinn Þorgeirsson, verkefnisstjóri
Hér er einkunnaskalinn fyrir líkamleg próf afreksíþróttasviðs sem fram fara í næstu viku. Gangi ykkur vel!
Það eru breytingar í farvatninu.
Í vor munum við skipta alfarið um facebook-síðu fyrir upplýsingar tengdar afrekinu. Við förum á stóra og flotta síðu Borgarholtsskóla og munum áfram deila efni okkar á þeim vettvangi.
Það þýðir að þessi síða verður lögð af og hvetjum við ykkur til að beina sjónum ykkar að þessari flottu síðu skólans á næstu misserum fyrir frekari fregnir af afrekinu og örðu starfi skólans.
SÞ, verkefnisstjóri afreksíþróttasviðs
Við fengum frábæra heimsókn í vikunni – nemenndur frá Voss gymnas æfðu og lærðu hjá okkur í vikunni. Þetta voru algjörir fyrirmyndar nemendur og frábært að hafa þau. Gangi þeim vel í komandi verkefnum og við hlökkum til að fá annan hóp frá norsku vinum okkar á næsta ári. #Afreks Borgarholtsskóli
Heimsókn þeirra var hluti af Nordplus samstarfi skólananna. Í fyrra fór 12 nemenda hópur frá okkur í handbolta og fótbolta til Voss. Samningurinn er til 2ja ára og því fer annar hópur frá okkur næsta haust og við fáum annan hóp frá þeim næsta skóla ár. Hlökkum til þess!
Þá vill ég nota tækifæri til að þakka Þórarni á ÍSÍ fyrir að taka á móti þeim, okkar nemendum fyrir aðstoðina við að búa til gott prógramm í kringum heimsókn þeirra hingað og þjálfara í Fjölni fyrir að taka vel á móti nemendumm VOSS og bjóða á æfingar í handbolta og fótbolta.
SÞ
Kæru nemendur,
Hér má nálgast hlekkinn til að sækja um landsliðsstyrkinn hjá okkur fyrir tímabilið frá síðustu afhendingu í desember 2018. Nánar um reglur styrksins má sjá hér: http://afrek.bhs.is/?page_id=1081
Hér er svo sjálft umsóknareyðublaðið og fresturinn er til 6. maí nk. og afhendingin fer fram þann 8. kl. 12:30 í Borgarholtsskóla.
https://goo.gl/forms/B0MEFVJvVFswETMg2

Með bestu kveðju
SÞ og kennarar
Fréttabréf nr. 20 í röðinni er komið út og er það tileinkað að mestu því sem gerðist í febrúarmánuði.
Hér má nálgast pdf útgáfuna – gjörið svo vel.
SÞ
Það dregur til tíðinda í handboltanum um næstu helgi þegar FINAL4 fer fram í bikarkeppni HSÍ. Þar mætast í keppni karla lið, Fjölnis úr 1. deildinni og úrvalsdeildarlið Vals í öðru undanúrslitaeinvíginu.
Skemmtilegt staðreynd tengd afreksíþróttasviðinu. Þrír leikmenn úr liði Vals og 10 leikmenn úr liði Fjölnis hafa lokið einum eða fleiri áföngum á afreksíþróttasviðinu hjá okkur. Sumir hafa klárað alla áfangana sex! Það verður því sérstaklega áhugavert fyrir okkur að fylgjast með þessum leik sem hefst kl. 18:00 á föstadag og ljóst að Borgarholtsskólanemendur hafa marga samnemendur að styðja!
Hér má sjá leikmenn sem hafa verið á skýrslu í liði Vals í vetur. http://hsi.is/motamal/motayfirlit/lid/?lid=453&mot=3080
Hér má sjá leikmenn sem hafa verið á skýrslu í liði Fjölnis í vetur http://hsi.is/motamal/motayfirlit/lid/?lid=101&mot=3083
Við hlökkum mikið til þessa leiks! Gangi ykkur vel drengir.
Með bestu kveðju,
Sveinn og kennarar