Afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla!!!
Grafarvogsdagurinn var haldinn hátíðlegur í hverfinu nýlega líkt og mörg undanfarin ár. Mikið er um að vera á þessum degi í Grafarvogi og koma margir að dagskránni.
Hverfisráð Grafarvogs hefur staðið fyrir veitingu Máttarstólpans, hvatningarverðlaunum ráðsins. Í reglum um viðurkenninguna segir m.a.
d. Mikilvægt er Grafarvogsbúar fái að njóta árangurs af starfinu og að starf viðkomandi verki hvetjandi á menningar-, íþrótta- og tómastundalíf í hverfinu.
Nánar hér http://reykjavik.is/reglur-um-mattarstolpann-midgardur.
Það teljum við svo sannarlega að sé raunin. Starfið fer fram í hverfisframhaldsskólaskóla Grafarvogs og nýtist því sérstaklega þeim sem búa í nærumhverfinu og æfa íþróttir af miklum dug. Fjölnir hefur notið góðs af þessari starfsemi og nú stendur til að efla það samstarf ennfrekar með uppbyggingu íþróttamannvirkis við Egilshöll og samstarfssamnings milli sviðsins og Fjölnis.
Gleðilegt sumar, þessi vetur hefur verið frábær!
Sveinn Þorgeirsson

