Eftir dagskrá morgunsins á miðvikudeginum “Svefn, æfing og næring” tóku kennarar og nokkrir nemendur sviðsins þátt í umræðum um hvernig staðið er að afreksíþróttasviðum – hvað sé hægt að læra af starfinu í Danmörku og hvað við getum bætt hér heima.
Þetta var algjörlega frábært að fá góða gesti víðsvegar að. Margar áhugaverðar hugmyndir komu fram og munu þessar umræður eflaust hafa a.m.k. örlítil áhrif á það hvernig við störfum í framtíðinni.
Sérstakar þakkir fá Þórarinn Alvar Þórarinsson fyrir aðstoð við uppsetningu þessum viðburði og Danirnir Christian og Laurits fyrir kynninguna á starfinu í Skanderborg (SHEA).
SÞ







