Hér að ofan er bingó-æfing í boði Arnórs Ásgeirssonar í styrkteymi afreksíþróttasviðsins. Hlaðið pdf skjalinu niður, prentið og setjið á ísskápinn t.d. Í skjalinu eru hlekkir á æfingarnar 🙂
LEIÐBEININGAR:
Markmið verkefnisins er að klára allar æfingar á bingóspjaldinu.
Tímaramminn er vikan 23. til 27.mars. Nemendur hafa frjálsar hendur við framkvæmd æfinganna og geta því skipt þeim í nokkrar lotur. Það væri t.d. hægt að skipta “300 snerta gagnstæða öxl” í 10 lotur x 30 endurtekningar eða Tabata þar sem unnið er í 20 sek og hvílt í 10 sek, alveg þar til að öllum 300 endurtekningum er lokið. Við mælum með að velja 4-5 æfingar til að gera á einum degi.

Gangi ykkur vel og góða helgi!
SÞ og Arnór Ásgeirsson
