Anton Ari (fyrrum nemandi á afreks í grænu) og Jón Freyr (núverandi nemandi) urðu Íslandsmeistarar með karlaliði Vals í gær! Til hamingju með titilinn drengir
Birnir Snær stendur sig vel í Pepsi deildinni
Hann Birnis Snær Fjölnismaður hefur nýlokið 6 önnum á afreksíþróttasviði Borgarholtsskóla og er svo sannarlega að standa sig vel með úrvalsdeildarliði Fjölnis. Hann skoraði meðal annars tvö mörk gegn Þrótti í leik nýverið og var “allt í öllu í sóknarleik” liðsins. Það er virkilega gaman að heyra 🙂 Meðfylgjandi er frétt um frammistöðu liðsins þar sem Birnir er sérstaklega nafngreindur. Mynd af mbl.is
http://433.is/pepsi-deild/einkunnir-ur-leik-throttar-og-fjolnis-birnir-snaer-faer-haestu-einkunn/
Við óskum Birni og félögum hans úr afrekinu áfram góðs gengis í fótboltanum í sumar!
með afrekskveðju
Sveinn Þorgeirsson


