Tveir af okkar nemendum í einstaklingsíþróttum kepptu á meistaramótinu í fjölþrautum núna um helgina, þar sem þeir höfnuðu í 1. og 3. sæti í tugþraut 16-17 ára. Þetta eru þeir Kolbeinn Tómas Jónsson (2. ár) og Úlfur Árnason (nýnemi) og keppa þeir báðir fyrir hönd ÍR. Við óskum drengjunum til hamingju með árangurinn og gangi þeim vel á mótum vetrarins!
Nánar um mótið hér á vef ÍR um mótið http://ir.is/frjalsar-news/mikid-um-baetingar-a-mi-i-fjolthrautum/

Sveinn og Brynjar G
