Þökkum ÍSÍ fyrir fræðslu um lyfjamál!

Sem hluti af námi 3ja árs nema á afreksíþróttasviðinu fá nemendur fræðslu í lyfjamálum frá ÍSÍ. Birgir kom og leiddi okkur í sannleikann um hvernig staðið er að eftirliti og framkvæmd lyfjaeftrlits á Íslandi og úti í heimi. Þökkum fyrir heimsóknina!

Nám afreksíþróttasviðsins metið til ÍSÍ þjálfarastigs 1. og 2. almenns hluta

Það er okkur á afreksíþróttasviðinu mikið ánægjuefni að tilkynna að bóklegi hluti okkar náms hefur verið metinn til þjálfarastigs ÍSÍ 1. og 2. almenns hluta. Þetta gerir það að verkum að þeir nemendur sem fara í gegnum 3 ár hjá okkur í núverandi skipulagi útskrifast með skírteini upp á þjálfunarmenntun frá ÍSÍ, stig 1. og 2. Þetta er okkur afar jákvæð viðurkenning og sterkt fyrir okkar nemendur sem sumir hverjir eiga eftir að koma nálægt þjálfun í framtíðinni. Bóklegi hluti okkar náms er settur upp sem einn tími í viku allar 6 annirnar. Þemun eru í eftirfarandi röð: næring og heilsa, þjálffræði, íþróttasálfræði, afrekshugsun I, afrekshugsun II og lokaverkefni.

Thjalffraedi-cover
Þjálffræðibókin sem við kennum í gegnum okkar bóklegu tíma. Hún er kjölfestan ásamt viðeigandi aukaefni.

Hér má sjá frekari upplýsingar um þjálfaramenntunina. http://isi.is/fraedsla/thjalfaramenntun/

Þjálfaramenntun ÍSÍ er áfangaskipt fræðslukerfi í fimm þrepum þar sem skilgreindar eru kröfur um menntun fyrir ákveðna markhópa. Þetta kerfi er samræmt fyrir allar íþróttagreinar. Fræðslukerfið er í samræmi við samræmdar kröfur sem settar hafa verið fram af “Network of Sport Sciences in Higher Education” (ENSSHE). Jafnframt hafa samtök frjálsra íþróttasamtaka í Evrópu (ENGSO) samþykkt að leggja beri aukna áherslu á menntun þjálfara, leiðbeinenda og leiðtoga fyrir íþróttastarf barna og unglinga.

Menntun á fyrstu þrem þrepunum, sem kallast almennur hluti, er innan íþróttahreyfingarinnar. Þjálfarastig 4 og 5 á að kenna á  háskólastigi. Eins og er þá er aðeins hægt að taka þrjú þrep í almennahlutanum. Fyrstu þrjú þrepin eru hvert um sig 120 kennslustundir að lengd:  Þeim er ýmist skipt niður í 20 stunda afmarkaðar einingar eða styttri einingar. Ýmist eru þessar einingar almennar og í umsjón ÍSÍ eða sérhæfðar í umsjón sérsambands. Almenni hluti námskeiðanna sem er í höndum ÍSÍ fer fram í fjarnámi.

Stefnuyfirlýsingu um þjálfaramenntun má nálgast hér.

Þjálfari 1 – átta vikna námskeið í fjarnámi

 

Skilgreining:

Að loknu þessu stigi á þjálfarinn að geta skipulagt og stjórnað æfingatíma hjá börnum og unglingum á byrjendastigi. Til þess þarf hann að hafa grundvallarþekkingu á líkamlegum og andlegum þroska barna og unglinga. Hann þarf að þekkja starfsemi líkamans auk helstu aðferða við kennslu. Þjálfarinn á að kunna helstu grunnatriði í tækni, leikfræði og reglum í séríþróttagrein.

Þjálfari 2 – fimm vikna námskeið í fjarnámi

Skilgreining:

Að loknu þessu stigi á þjálfarinn að geta þjálfað unglinga og fullorðna sem hafa árangur í keppni að markmiði. Til þess þarf hann að hafa haldgóða þekkingu á starfsemi líkamans og skipulagi þjálfunar til lengri og skemmri tíma. Hann þarf að hafa undirstöðuþekkingu á hreyfingarfræði og kunna grunnatriði í næringarfræði og sálfræði íþrótta.

Þjálfarinn þarf að hafa fengið þjálfun í að tjá sig og koma fram fyrir framan hóp af fólki.

Þjálfarinn þarf að hafa góða þekkingu á tækni, leikfræði og reglum í séríþróttagrein. Auk þess þarf hann að kunna skil á helstu þjálfunaraðferðum viðkomandi greinar.