Steindór, nemandi á einstaklingsíþróttasviði ferðaðist dagana 12.-18. febrúar til Katar þar sem hann var staddur með U20 landsliðinu í keilu. Þetta var geggjuð ferð í alla staði og lærði ég ýmislegt nýtt, ekki bara keilulega séð heldur líka bara andrúmsloftið í borginni Doha. Þetta var þvílik upplifun og forréttindi að fá að fara þangað á vegum landsliðs. Árangurinn var ágætur (meðalskor um 170) en því miður komst hann ekki í masterinn eins og hann stefndi á fyrir mótið.




Steindór leggur alla áherslu á næsta verkefni sem er mun stærra. Evrópumót unglinga 2018 sem haldið verður í Álaborg dagana 22. mars til 2. apríl. Eins og Steindór segir sjálfur “Þannig núna verður tekið á því. Geggjað að hafa afrekið þarna á milli til að fá aukin styrk og halda góðu mataræði því það skiptir miklu máli. ” Það verður gaman að fylgjast með Steindóri á næstunni og hvort hann nái ekki markmiðum sínum í vor – áfram Steindór!
SÞ
