Þessi frétt er unninn upp úr frétt af http://www.bhs.is/skolinn/frettir/samningur-vid-tm
Miðvikudaginn 8. nóvember var skrifað undir samstarfssamning við TM sem með samkomulaginu styrkir afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla nú sem fyrri ár. Í dag stunda tæplega 150 nemendur nám á afreksíþróttasviði.
Afreksíþróttasvið er fyrir nemendur sem vilja stunda sína íþrótt með álagi afreksmanna samhliða bóknámi. Boðið er upp á knattspyrnu, körfuknattleik, handbolta, íshokkí auk einstaklingsíþrótta. Boðið er upp á sérsniðna dagskrá sem hentar vel þeim sem æfa mikið og vilja gott aðhald og fræðslu.

SÞ
