Þriðjudagar eru bóklegir dagar hjá okkur. Oft fáum við heimsóknir frá góðum gestum og þriðjudagurinn í síðustu viku var engin undantekning. Þá var í gangi kennsla í þjálffræði fyrir 1. árið sem var í höndum Kristjáns Ómars Björnssonar.
Á sama tíma fengum við Guðlaugu Maríu Bjarnadóttur til að kenna nemendum á 3ja ári hvernig við höldum kynningar og fyrirlestra. Tíminn var í fomi verklegra æfinga og fyrirlesturs. Þessi kennsla var liður í undirbúningi nemenda fyrir lokaverkefni sem þau flytja í vor.

Á neðri hæðinni fengu svo nemendur á 2. ári góða heimsókn frá Kjartani Atla Kjartanssyni sem fjallaði um margt áhugavert er tengist ferli íþróttamannsins og þeim þáttum sem stuðla að árangri.

Sveinn Þorgeirsson, verkefnisstjóri afreksíþróttasviðs,
sveinn@bhs.is
