8 nemendur frá AIS Borgó lögðu leið sína í HR í gærkvöldi til að hlýða á fyrirlestra sem haldnir voru í tengslum við Reykjavik International Games 2016. Margir áhugaverðir fyrirlestrar voru að þessu sinni og fengu nemendur verkefni til að vinna upp úr þessum erindum. Meðal annars var fjallað um styrkþjálfun barna og langtímaþróun íþróttamannsins, ásamt því þegar Dwain Chambers svaraði spurningm um það hvernig það var að koma til baka eftir lyfjabann. Sem sagt, hellingur af áhugaverðu.
Hér má nálgast efni þeirra fyrirlestra sem fluttir voru.
Það er ávallt gaman að veita viðurkenningar og fagna því sem vel er gert. Eitt slíkt tilefni var í dag, 12. janúar þegar þeim nemendum sem tóku þátt í landsliðsverkefnum í sinni grein á síðustu önn var veittur 25.000 kr. styrkur frá AIS. Í ár voru það 10 einstaklingar sem hlutu styrkinn fyrir eftirfarandi verkefni.
Á myndinni má sjá, efri röð frá vinstri; Svein Þorgeirsson verkefnisstjóra AIS, Ástríði Glódísi, Theu Imani, Berglindi, Andreu og Bryndísi skólameistara. Í neðri röð frá vinstri er Hulda Hrund, Helgi, Hjalti og Úlfur Gunnar. Á myndina vantar Kristján Örn Kristjánsson, Svein Aron Gudjohnsen og Bryndísi Bolladóttur
Verkefnin voru margvísleg og hér er afar stutt ágrip.
Ástríður Glódís, Andrea Jacobsen og Berglind Benediktsdóttir fóru allar með U18 ára landsliðinu í handknattleik í æfingaferð til Póllands nú í desember.
Úlfur Kjartansson fór með U18 ára til Þýsklands til að taka þátt í móti milli jóla og nýárs og gekk það vel.
Kristján Örn Kristjánsson keppti með U20 á heimsmeistaramótinu í Rússlandi í lok ágúst síðast liðnum. Þar náðist frábær árangur þar sem drengirnir lönduðu 3ja sætinu.
Thea Imani Sturludóttir fór með A-landsliði kvenna til Noregs síðast liðið haust. Þess má geta að hún er um leið fyrsta A-landsliðsleikmaður afreksíþróttasviðs í handbolta. Fyrir hefur afrekið eignast leikmenn í körfuknattleik karla.
Hulda Hrund Arnarsdóttir fór til Sviss með U19 í knattspyrnu í september síðastliðnum og Helgi Guðjónsson tók þátt með U17 í undankeppni EM í október sem fram fór hér á landi.
Sveinn Aron Guðjonhsen spilaði með U19 ára landsliði Íslands í knattspyrnu í undankeppni EM 2016. Þar vannst einn leikur, eitt jafntefli og eitt tap.
Bryndís Bolladóttir sundkona fær fyrsta styrkinn sem fer til einstaklingsgreina á afreksíþróttasviðinu. Hún hefur tekið þátt í metnaðarfullum æfingabúðum nú um áramótin og fór með landsliðinu til Bergen í Noregi í desember.
með kveðju og hamingjuóskum – haldið áfram að standa ykkur vel!
Þá hefur 2015 runnið sitt skeið og við tekur spennandi ár í AIS. Í dag stunda um 100 nemendur nám við afreksíþróttasvið úr 7 íþróttagreinum. Við hlökkum til að bæta við okkur fleiri íþróttagreinum á nýju ári enda hefur nýja brautin okkar – einstaklingsíþróttagreinar gengið afar vel.
Sem verkefnisstjóri mun ég bjóða áhugasömum félögum upp á kynningu á brautinni. Við höfum mikinn áhuga á að fá að kynna starfið fyrir 10. bekkjar nemendum. Hver kynning er að jafnaði um 20-30 mín að viðbættum spurningum.
Síðasta önn var lærdómsrík fyrir okkur. Við keyrðum nýtt prógram af stað með þéttara fagbóklegu námi en nokkru sinni fyrr. Nú verður næst skref tekið og verður gaman að fylgja síðari hluta breytinganna úr hlaði.
Meðal þess sem er framundan hjá AIS nemndum í vor eru
þemadagar, heimsóknir frá áhugaverðum þjálfurum og leikmönnum, tækniæfingar, líkamleg próf, fagbókleg verkefni, útskrift eldri nemenda ásamt styrkþjálfun svo nokkuð sé nefnt.
Haust útskrift Borgarholtsskóla fór fram í gær við hátílega athöfn (Myndir). 81 nemandi útskrifaðist og þar af 2 sem lokið hafa öllum 6 áföngum afreksíþróttasviðsins. Það voru þau Þorri Arnarsson af listnámsbraut og Katla Marín Stefánsdóttir bóknámsbraut. Bæði eru þau körfuboltafólk og óskum við þeim til hamingju. Fengu þau FT4 púlsúr frá POLAR að gjöf svo þau viti ávallt hvað hjartað slær í framtíðinni.
Nokkrir frábærir nemendur sem hafa tekið stóran hluta af brautinni okkar voru einnig að útskrifast og sendum við þeim einnig sérstakar hamingjuóskir. Ein þeirra er Sunna Rós Rúnardóttir sem flutti ávarp útskriftarnemenda með miklum glæsibrag!
Útskrift – 19. desember 2015. Sveinn, Katla og Þorri.
Verkleg próf afreksíþróttasviðs fóru fram í byrjun mánaðarins. Prófin eru samsett til að reyna að helstu þætti líkamlegrar frammistöðugetu og gefa þannig góða vísbendingu um líkamlegt form nemenda. Þol hefur ekki verið einn af prófþáttunum þar sem það hefur ekki þótt verjandi að setja nemendur í þungt þolpróf ofan á annað álag, ásamt því sem það tekur lengstan tíma að mæla þann þátt.
Prófin eru 20% af heildarnámsmati nemenda við afreksáfangann og samanstendur af eftirfarandi prófum.
Miðjustyrkur: Davies test, fjöldi snertinga á handarbak talinn
Snerpa og hröðun: Illinois Agility Test, tími mældur í sekúndum
Láréttur sprengikraftur: Langstökk, mælt í sentimetrum
Lóðréttur sprengikraftur: Counter Movement Jump, mælt í sentimetrum
Hreyfanleiki: Overhead Squat test úr FMS prófinu, skor frá 1-3 og 0 fyrir verk í hreyfingu
Að lokum er hæð og þyngd skráð og á tíma sínum í afrekinu fá nemendur 6 mælingar í þessum þáttum, það er eina á hverri önn. Það er því kjörið tækifæri á að skoða og meta framfarir á 3ja ára tímabili.
Við erum stöðugt að leita að aðferðum til að bæta okkur, bæði nemendur og þjálfarar. Hér er dæmi um útgáfu af hraðaþjálfun sem hefur verið í gerjun hjá okkur undanfarnar vikur. Við erum bara nokkuð ánægðir með útkomuna 🙂
Lykilþáttur í þessu er að stilla fjarlægðirnar milli hlauparans og sendingamanna til að gera sprettina krefjandi. Viðbragðsmerkið er fyrri sendingin, þá leggur hlauparinn af stað og á að stela seinni sendingunni.
Afreksíþróttasvið knattspyrnu fékk ánægjulega heimsókn frá KSÍ í síðustu viku. Halldór Björnsson landsliðsþjálfari U17 karla og starfsmaður hæfileikamótunar KSÍ kom við og átti nokkur góð orð við hópinn okkar. Við þökkum Halldóri fyrir heimsóknina og við erum þess fullviss að nemendur okkar hafi notið góðs af.
Innilega til hamingju stelpur! Glódís, Andrea og Berglind hafa verið valdar í U18 ára landsliðið sem er á leið til Póllands í desember. Þær eru virikilega vel að þessu komnar enda æfa þær vel og eru til fyrirmyndar í öllu sínu.
Við óskum þeim góðs gengis í þessu landsliðsverkefni.