Afreksíþróttasviðið tekur við umsóknum fyrir inngöngu um áramótin líkt og áður. Hér má nálgast kynningarefni fyrir námið okkar, bæði einstaklingsíþróttagreinarnar sem eru nýjar og svo hópgreinarnar.
AIS_kynningarefni_einstaklings
Sveinn Þorgeirsson

Afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla
#afreks #AFR
Afreksíþróttasviðið tekur við umsóknum fyrir inngöngu um áramótin líkt og áður. Hér má nálgast kynningarefni fyrir námið okkar, bæði einstaklingsíþróttagreinarnar sem eru nýjar og svo hópgreinarnar.
AIS_kynningarefni_einstaklings
Sveinn Þorgeirsson
Við áttum skemmtilegan dag, þann 15. október síðastliðinn. Þá hittust allar greinar saman í myndatöku í Egilshöll. Eftir að hafa tekið flottar myndir tókum við Kóreska upphitun og fórum í leiki þar sem Kristján Ómar leiddi hópinn. Að því loknu stjórnaði Halla Karen slökun og lagðist það vel í hópinn. Hópmyndina má sjá hér efst á síðunni.
Hér má sjá stutt vídeó frá deginum sem við köllum Afreksleika Borgarholtsskóla!
Sveinn Þorgeirsson
Enn einn ísinn er brotinn! Thea Imani Sturludóttir var í gær fyrsta stelpan af AIS Borgarholtsskóla til að vera valin í A-landslið í handknattleik! Þetta er virkilega ánægjulegt og gefur okkur byr undir báða vængi.
Við óskum Theu og félagi hennar Fylki til hamingju með valið og megi þau vera miklu fleiri í framtíðinni 🙂
með kveðju
Sveinn og Addi, þjálfarar í handbolta á AIS
Okkur er það mikið gleðiefni að tilkynna að við eigum hvorki fleiri né færri en 5 stelpur í U18 og U19 ára landsliðsúrtökum kvenna!
Þetta eru þær Thea Imani Sturludóttir, Hulda Dagsdóttir, Ástríður Glódís, Berglind Benediktsdóttir og Andrea Jacobsen.
Við óskum þeim að sjálfsögðu innilega með valið og óskum þeim góðs gengis á æfingunum!
með kveðju,
Þjálfarar AIS
Nú eru æfingar hafnar af fullum krafti og gaman að sjá kraftinn í nemendum. Fótboltinn hefur æft utandyra vegna grasskipta í Egilshöllinni. Það er hins vegar í góðu lagi þegar veðrið er svona rosalega gott 🙂
Veturinn lítur vel út með þennan góða nemendahóp sem við höfum. Við hlökkum bara til!
með kveðju
Sveinn Þorgeirsson
Kristján Örn Kristjánsson, oftast kallaður Donni, er nú staddur í Rússlandi ásamt liðsfélögum sínum í U19 ára landsliði Íslands. Liðið stendur í ströngu þessa dagana og hafa staðið sig sérstaklega vel. Unnið alla leiki til dagsins í dag og það hefur skilað þeim í undanúrslit. Nú síðast var það glæstur sigur á góðu liði Brasilíu.
Við óskum Donna og liðsfélögum hans góðs gengis í undanúrslitum!
Þess má geta að fyrir þessari ferð fær Donni leyfi frá skóla sem er hluti af því að vera á afreksíþróttasviði. Einnig fær hann landsliðsstyrk afreksíþróttasviðs fyrir að vera valinn í liðið.
f.h. AIS
Sveinn Þorgeirsson, verkefnisstjóri
Sá skemmtilegi atburður átti sér stað í gær að nemandi okkar á afreksíþróttasviði golfsins, Jón Frímann fór holu í höggi á 18 braut á Jaðarsvelli á Akureyri. Jón Frímann var að taka þátt í Sveitakeppni GSÍ í flokki 18 ára og yngri. Hann spilar fyrir lið GR og hefur leikið vel í mótinu. Hann var að leika í fjórmenning gegn GHD/GA/GÓ og þarf varla að taka það fram að hann sigraði þessa holu nokkuð örugglega!
Við óskum Jóni til hamingju með draumahöggið og vonum að þau verði fleiri! – og einnig óskum við honum góðs gengis það sem eftir er af Sveitakeppninni!
F.h. AIS, Sveinn Þorgeirsson og Davíð Gunnlaugsson
Við erum virkilega hreykin að þeim fjölda umsókna sem afreksíþróttasviðið fékk nú í vor. Þetta er okkur mikil hvatning til að gera vel á þessum tímum breytinga næsta haust. Við erum að breyta um stokka og að fara í 3ja ára skipulag. Það eru spennandi tímar framundan og það verður gaman að kynna til leiks allt það flotta sem á eftir að koma fram í haust.

Með sumarkveðju
Sveinn Þorgeirsson, verkefnisstjóri afreksíþróttasviðs
Afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla fór í afar vel lukkaða ferð til Gummersbach nú í maí síðastliðnum. Við lékum meðal annars leik gegn heimamönnum í akademíunni U19 ára. Sjón er sögu ríkari.
Vil nota tækifærið og þakka nemendum fyrir frábæra ferð, þið voruð glæsilegir fulltrúar okkar, Gumma fyrir samfylgdina og Gunnari Steini Jónssyni, Elísabetu og Ölbu Mist fyrir geggjaðar móttökur 🙂
með þökkum
Sveinn Þorgeirsson