



Steindór leggur alla áherslu á næsta verkefni sem er mun stærra. Evrópumót unglinga 2018 sem haldið verður í Álaborg dagana 22. mars til 2. apríl. Eins og Steindór segir sjálfur “Þannig núna verður tekið á því. Geggjað að hafa afrekið þarna á milli til að fá aukin styrk og halda góðu mataræði því það skiptir miklu máli. ” Það verður gaman að fylgjast með Steindóri á næstunni og hvort hann nái ekki markmiðum sínum í vor – áfram Steindór!
SÞ











