Afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla hefur verið starfrækt í 7 ár og er stöðugt að eflast og verða betra. Á skólagöngu sinni í Borgó hafa margir frábærir íþróttamenn þjálfað færni sína og eru í dag að spila í atvinnumennsku í körfubolta og knattspyrnu svo dæmi séu tekin. Þá eru nokkrir leikmenn sem spila með liðum í efstu deild karla og kvenna í knattspyrnu, handbolta og körfubolta. Þá er ótalin golfsviðið okkar sem kom nú nýverið heim úr vel heppnaðri árlegri æfingaferð til Spánar.
Þess má geta að til stendur að fara með knattspyrnuhópinn okkar til London næsta haust á leiki og til æfinga. Á meðfylgjandi mynd má sjá nemendur körfuboltasviðsins í ferð þeirra til Spánar nú í maí. Þá er stefnt að því að fara út með handboltann næsta vor.
Hér er Kynningarvídeó af starfsemi afreksíþróttasviðs og hér er nánari útskýring á því sem fram fer á sviðinu. Útskýringar á uppsetningu afreksíþróttasviðs.
Hér er svo umsóknareyðublaðið. Umsóknareyðublað Afreksíþróttasvið haust 2014.
Vakin er athygli á því að þeir nemendur sem hafa áhuga á að stunda nám á afreksíþróttasviði BHS sækja um það á sérstöku eyðublaði, sem skila þarf á skrifstofu skólans við Mosaveg, Grafarvogi í síðasta lagi fimmtudaginn 5. júní.
Umsækjendum og forráðamönnum þeirra er bent að þeir nemendur sem fá umsókn sína um inngöngu á afreksíþróttasvið samþykkta, fá staðfestingu þess efnis mánudaginn 9. júní. Þá liggur fyrir hvaða nemendur hafa fengið inngöngu í skólann og unnið hefur verið úr umsóknum.
Með bestu kveðju
Sveinn Þorgeirsson, verkefnisstjóri afreksíþróttasviðs
sveinn@bhs.is / 697 5098

