Hulda Hrund með frábært mark í undankeppni EM U19 ára í fótbolta!

Nú fyrir skemmstu kom landslið U19 kvenna heim eftir þátttöku sína í undankeppni EM. Þar var liðið í riðili með Litháen, Króatíu og Spáni.  Króatía hafði gert jafntefli við Ísland í milliriðli síðustu keppni, í apríl á þessu ári.  Spánverjar voru með öflugt lið.  Sjö leikmenn voru áfram í u19 liðinu sem hafði komist í úrslitaleik EM í júlí og yngri leikmennirnir höfðu tapað úrslitaleik á HM u17 ára í apríl fyrir Japan. Afreksíþróttasviðið átti sinn fulltrúa í Fylkisstúlkunni Huldu Hrund.

Markmiðið var að komast í milliriðil. Sigurvegarar riðlana ásamt besta árangrinum í 2. sæti komust áfram í milliriðil.

Ísland vann Litháen 8 – 0
Ísland vann Króatíu 1 – 0 í hörkuleik þar sem að liðið lék einum færri í 62 mínútur.
Ísland tapaði fyrir Spáni í uppbótartíma 1- 2.  Hulda Hrund skoraði mark Íslands á 78 mínútu.

Það fór því svo að Ísland komst áfram og verður milliriðillinn leikinn 4. – 9. apríl 2015.  Dregið verður í milliriðil 20. nóvember.

Hér má svo sjá markið sem Hulda skoraði gegn Spáni – það var af dýrari gerðinni vægast sagt 🙂

Mark – Hulda Hrund from Breiðablik on Vimeo.

með bestu kveðju

Þjálfarar afreksíþróttasviðs BHS

með bestu kveðju

Þjálfarar knattspyrnunnar, Daði, Úlfar og Henrik

Leave a Reply

Your email address will not be published.