Afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla er í stöðugum vexti og er verkefnið að eflast með hverju árinu. Samhliða breytingum í 3ja ára nám í framhaldsskóla mun afrekssviðið breytast aðeins. Við munum áfram bjóða upp á 6 annir (öll 3 árin) og vera þrisvar í viku líkt og verið hefur.
Með nýju fyrirkomulagi verður einnig opnað fyrir einstaklingsíþróttagreinar að sækja um. Þar erum við spennt fyrir að bjóða upp á sérsniðna dagskrá sem hentar vel þeim sem æfa mikið og vilja gott utanumhald og fræðslu í sína þátttöku í íþróttum.
Forinnritun 10. bekkjarnema verður frá 4.-10. mars. Opið verður fyrir umsóknir á afreksíþróttasvið frá og með 4. mars. Opið verður fyrir umsóknir eldri nema til 31. maí. Nánari upplýsingar eru á menntagatt.is.
Umsóknarfrestur er til 10. júní næst komandi. Lokainnritun verður auglýst og þeim sem komast inn á sviðið tilkynntum það fyrir 17. júní.
Til að sækja um þarf að skila inn útfylltu umsóknareyðublaði ásamt meðmælabréfi á skrifstofu skólans virka daga milli kl. 8:00-16:00 við Mosaveg. Að auki skal sótt um Borgarholtsskóla rafrænt inni á menntagatt.is. Þar skal þess getið undir „aðrar athugasemdir“ að sótt sé um afreksíþróttasvið.
Hér má nálgast eyðublaðið:
Afreksithrottasvid_BHS_Umsoknareydublad_haust_2015
Fyrirspurnir skulu sendast á verkefnisstjóra afreksíþróttasviðs, sveinn@bhs.is
Með bestu kveðju
Sveinn Þorgeirsson

