Nú fyrir skemmstu fór fram rástefna á vegum HSÍ undir nafninu Ný kynslóð – ný tækifæri og ræddu þar landsliðsþjálfararnir Geir Sveinsson og Axel Stefánsson framtíðina og stöðu A-landsliðs karla og kvenna. Þar kom meðal annar fram í máli Axels að leikmönnum þyrfti að vera gefinn kostur á því að taka nám sitt á lengri tíma til að gefa íþróttamönnum tækifæri á að einbeita sér betur að íþrótt sinni.
Fyrir tæpum 3 árum varð stytting náms til stúdentsprófs að veruleika og er í dag 3 ár samkvæmt nýju kerfi. Fullt nám er 200 framhaldsskólaeiningar sem skipt er á 6 annir. Miðað við 35 einingar (og 16-18 vikna önn) er gert er ráð fyrir 40 klst. vinnu nemenda í hverri viku samkvæmt þeirri áætlun. Algengt æfingaálag á hvern nemanda er frá um 8-12 klst. upp fyrir 20 klst. í viku, þó misjafnt eftir tímabili og eftir íþróttagreinum.
Ef við gerum ráð fyrir 15 klst í íþróttir, 40 í námið, 64 í svefn (9 klst fyrir ungt fólk), skiliur það eftir 49 klst á viku sem þurfa að fara í “allt hitt”.
Við vitum vel að álag í framhaldsskóla á nemendur er mikið, og leggst það á þá vinnu sem er unnin í íþróttafélögunum á hverjum tíma. Á hverri önn koma álagspunktar bæði í skóla (t.d. annarlok) og úrslitakeppnir og mót á keppnistímabili. Til að geta mætt því býður afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla nemendum sínum að taka námið á lengri tíma með því að fækka þeim einingum sem teknar eru á hverri önn. Það skilar sér í minna álagi á hverri önn og meiri tíma til hvíldar og einbeitingar á íþróttina sem stunduð er. Að taka stúdentspróf á 8 önnum, eða 4 árum lækkar álagið u.þ.b. fjórðung á hverri önn. Gefst þá einnig tækifæri til að bæta við áföngum tengdu því fagi sem nemandinn hyggst sækja á háskólastigi.
Hér má nálgast upptökur frá ráðstefnunni sem var hluti af 60 ára afmælishátíð HSÍ og fór fram í Arion banka við Borgartún. Axel nefnir álag á námsmenn þegar um 52 mínútur eru liðnar af myndskeiðinu.
Bein útsending frá fundi Handknattleikssambands Íslands: Ný kynslóð – ný tækifæri
Posted by Arion banki on 10. mars 2017
Þeir Axel og Geir ræddu framtíðina og hvað þyrfti til, svo landsliðin megi taka næstu skref í sívaxandi alþjóðlegri samkeppni. Virkilega áhugaverð erindi og fróðleg.
Hér má nálgast uppsetningu og lýsingar á náminu á afreksíþróttasviði. http://bhs.is/namid/brautir/afreksithrottasvid/
með kveðju
Sveinn Þorgeirsson (sveinn@bhs.is)

