Það dregur til tíðinda í handboltanum um næstu helgi þegar FINAL4 fer fram í bikarkeppni HSÍ. Þar mætast í keppni karla lið, Fjölnis úr 1. deildinni og úrvalsdeildarlið Vals í öðru undanúrslitaeinvíginu.
Skemmtilegt staðreynd tengd afreksíþróttasviðinu. Þrír leikmenn úr liði Vals og 10 leikmenn úr liði Fjölnis hafa lokið einum eða fleiri áföngum á afreksíþróttasviðinu hjá okkur. Sumir hafa klárað alla áfangana sex! Það verður því sérstaklega áhugavert fyrir okkur að fylgjast með þessum leik sem hefst kl. 18:00 á föstadag og ljóst að Borgarholtsskólanemendur hafa marga samnemendur að styðja!
Hér má sjá leikmenn sem hafa verið á skýrslu í liði Vals í vetur. http://hsi.is/motamal/motayfirlit/lid/?lid=453&mot=3080
Hér má sjá leikmenn sem hafa verið á skýrslu í liði Fjölnis í vetur http://hsi.is/motamal/motayfirlit/lid/?lid=101&mot=3083
Við hlökkum mikið til þessa leiks! Gangi ykkur vel drengir.
Nemendum í 9. og 10. bekk er boðið á sérstaka kynningaræfingu á afrekinu. Æfingin verður í formi hraðaþjálfunar og viðbragðs í bland við sálfræðilega ráðgjöf. Til að taka þátt í æfingunni þarf að mæta stundvíslega í íþróttafatnaði og innanhússskóm.
Þarna gefst nemendum einnig tækifæri á að kynnast sviðinu og spyrja verkefnisstjóra og kennara um fyrirkomulagið.
Æfingin fer fram í Fjölnishöll, fjölnotaíþróttasal Egilshallar. Gengið er inn um aðalinngang, framhjá fimleikum og inn eftir ganginum að stóra salnum.
Hlökkum til að sjá ykkur á mánudaginn!
Með umsjón æfingarinnar fara Sveinn Þorgeirsson og Hreiðar Haraldsson
Í metnaðarfullu nemendablaði sem kom út nýverið var fjallað um sviðið okkar og nemendur. Það var sérstaklega skemmtilegt og vel gert 🙂 Tryggið ykkur eintak af Mafíunni!
Blaðið kom út nú nýveriðVið fengum heila opnu 🙂Andrea fékk verðskuldaða umfjöllun
Við í Borgarholtsskóla viljum nota tækifærið hér og þakka kærlega fyrir okkur. Þakka fyrirlesurum okkar, Siggu Láru frá HÍ (Svefn),
Inga Þór frá HR (Æfing) og
Birnu frá Hæfi (Næring) fyrir frábær innlegg.
Sjálfur talaði verkefnisstjórinn ykkar um mikilvægi þess að muna að árangur næst aldrei án aðstoðar baklandsins (fjölskyldu, vina og sérfræðinga), og mikilvægi þess að hlúa að jafnvægi í lífunu hvað varðar líkamlega, andlega og félagslega þætti. Leiðin að árangri er hvorki beinn né breiður vegur – heldur seinfær ómerktur slóði 🙂
Minni á að það þarf að sækja um sviðið á menntagatt.is fyrir tilgreindan frest hverju sinni og að skila inn MEÐMÆLABRÉFI frá þjálfara sem viðhengi við umsókn.
Umsókn skilist á sveinn@bh.is eða í hólf verkefnisstjóra á skrifstofu skólans við Mosaveg í Grafarvogi.
Miðvikudaginn 9. janúar var landsliðsstyrkur afreksíþróttasviðs afhentur
Frá 9. afhendingu landsliðsstyrks afreksíþróttasviðs Borgarholtsskóla fyrir haust 2018. Efri röð frá vinstri; Ásta aðstoðarskólameistari, Jónína, Þorleifur, Goði, Hafsteinn Óli, Arnar (handbolti), Brynjólfur (sund), Þórður (karate), Kristófer og Dagbjartur (golf) og Sveinn verkefnisstjóri. Neðri röð frá vinstri; Sigvaldi (blak), Arnór (handbolti) Bergrún (frjálsar), Þórunn (borðtennis), Ragna (sund), Helga (frjálsar) og Axel (handbolti). Á myndina vantar Magnús Gauta (borðtennis).
Þau voru mörg og fjölbreytt verkefnin sem landsliðsfólkið okkar tók þátt í fyrir áramót. Hér erum við með yfirlit þeirra verkefna frá því fyrir áramót.
Sigvaldi í stólnum til hægri
Sigvaldi Örn blakmaður úr Aftureldingu var tvívegis valinn í landslið Íslands í blaki árið 2018. Hann var valinn í U-19 landsliðið sem tók þátt í NEVZA 2018 í Færeyjum í mars og í U-17 landsliðið sem tók þátt í NEVZA U-17 liða í Danmörku í október.
Magnús á vinstri hönd
Magnús Gauti borðtennismaður ársins 2018 hjá sínu sérsambandi tók þátt í Evrópumóti fullorðinna í Alicante dagana 18 – 23. september. Mótið var afskaplega erfitt segir Magnús en víst að þarna hefur hann nælt sér í góða reynslu enda ungur að árum.
Þórunn lengst til vinstri
Þórunn Ásta borðtenniskona fór til Eistlands með unglingalandsliðinu að keppa við stöllur sínar af Norðurlöndunum síðasta sumar og er reynslunni ríkari eftir þá ferð.
Bergrún Ósk íþróttakona fatlaðra keppti á Evrópumeistaramóti fatlaðra í Berlín. Þar tók hún þátt í fjórum greinum 400m (4. sæti), 200m (3ja sæti), 100m (3ja sæti) og langstökki (2. sæti) ásamt því að bæta persónulegan árangur í öllum greinunum.
Helga hér til hægri
Helga Þóra var valin til að taka þátt á Norðurlandamótinu U20 í Danmörku í Hvidovre þar sem hún tók þátt í hástökkskeppni fyrir hönd Íslands og Danmerkur (sameiginlegt lið) og stökk hún 1,66 metra sem er aðeins frá hennar besta sem er 1,74m og endaði í 6. sæti.
Dagbjartur kylfingur keppti með landsliðsliði pilta á síðasta ári og vann það sér rétt til þátttöku í A- deild með árangri sínum. Dagbjartur hefur verið mjög duglegur að taka keppa undanfarið ár og hefur það gengið mjög vel og hann er m.a. Íslandsmeistari í sínum aldursflokki 2 ár í röð og Klúbbmeistari GR.
Kristófer Karl golfari keppti fyrir Íslands hönd á EM í Búdapest. Þar tók hann átt í liðakeppni þar sem þeir drengir lönduðu 3. sæti og komust upp í aðra deild.
Hafsteinn Óli í efri röð fyrir miðju nr. 10, Þorleifur 4. frá hægri í efri röð. Neðri röð frá hægri, Arnór Snær, Goði Ingvar og Arnar Máni.
Hafsteinn Óli, Goði Ingvar, Arnar Máni, Arnór Snær og Þorleifur Rafn handboltamenn tóku þátt með U18 ára landsliði Íslands á EM í Króatíu síðasta haust. Þar var árangurinn hreint út sagt frábær og hafnaði liðið í 2. sæti.
Axel neðst til vinstri
Axel Hreinn ásamt fleirum af afrekssviðinu keppti með U18 á Sparkassen móti með handboltalandsliðinu milli jóla og nýárs. Liðið hafnaði í 3ja sæti eftir gott mót.
Benedikt lengst til vinstri
Benedikt Gunnar keppti á æfingamóti með U-17 ára landsliði í handbolta. Leikið var í Lille í Frakklandi 24. – 28. október sl.. Liðin sem tóku þátt voru auk Íslands, Frakkland, Króatía og Sviss. Liðið vann einn leik, gerði eitt jafntefli og tapaði einum.
Þórður Jökull karate maður keppti á tveim alþjóðlegum mótum með landsliði Íslands nú í haust. Í byrjun september keppti hann á Finnish Open Cup í Helsinki í tveim flokkum, í kata junior og í kata senior. Í lok nóvember keppti hann á Norðurlandameistaramótinu í karate í kata junior og hópkata karla (male team kata).
Jónína nr. 18 í efri röð
Jónína Hlín handboltakona fór ásamt U18 ára landsliði kvenna til Púchov í Slóvakíu. Þar kepptu þær þrjá vináttulandsleiki við Slóvakíu. Þær töpuðu fyrstu tveimur leikjunum en sigruðu seinasta leikinn.
Brynjólfur Óli sundmaður fór fyrst til Argentínu að keppa á Youth Olympic Games sem var haldið í Buenos Aires í október. Þar keppti hann í 50 og 200m baksundi. Þá keppti hann á Norðurlandameistaramótinu sem var haldið í Finnlandi í 50, 100 og 200m baksundi, og komst inn í úrslit og bætti sig í 100 og 200 baki.
Ragna í neðri röð, fjórða frá hægri
Ragna Sigríður sundkona fór á Norðurlandameistaramótið sem fór fram í Oulu í Finnlandi þar sem henni gekk vel og komst hún í úrslit með persónulegum bætingum.
Til hamingju öll – og haldið áfram þessu góða striki!