Það er fátt venjulegt við þetta ár, eins og t.d. útskriftin sem er framundan. Þar ætlum við að byrja nýtt fyrirkomulag við viðurkenningar sem kynnt var í vor í annarri tilkynningu. Í ár verða veittar viðurkenningar þeim tveimur nemendum sem hafa áunnið sér hæstu meðaleinkunn úr áföngum á afreksíþróttasviðinu. Þau fá POLAR FT7 púlsúr að launum svo þau viti hvað hjartað þeirra slær á erfiðum æfingum.
Það er reyndar líka mikilvægt upp á framtíðina hlusta á og fylgja hjartanu því við óskum öllum nemendum okkar þess að þau hafi kjark og dug til að eltast við sína drauma, í hverju sem þeir geta verið fólgnir.
Verðlaunin í ár fyrir frábæran námsárangur á afreksíþróttasviði fá
Ingi Þór Ólafsson, kylfingur

Karítas María Arnardóttir, fótboltakona

Við óskum þeim tveimur innilega til hamingju með frábæran námsárangur hjá okkur á tíma sínum í skólanum.
| Adda Sólbjört Högnadóttir | Handbolti |
| Edda Björg Eiríksdóttir | Fótbolti |
| Egill Árni Jóhannesson | Handbolti |
| Elvar Karl Auðunsson | Frjálsar íþróttir |
| Emil Skorri Þorsteins Brynjólfsson | Fótbolti |
| Guðni Emil Guðnason | Fótbolti |
| Heiðrún Anna Hauksdóttir | Fimleikar |
| Hrafnhildur Jónsdóttir Kvaran | Handbolti |
| Ingi Þór Ólafson | Golf |
| Jóhann Árni Gunnarsson | Fótbolti |
| Jón Kristinn Ingason | Fótbolti |
| Karítas María Arnardóttir | Fótbolti |
| Leó Ernir Reynisson | Fótbolti |
| Lilja Nótt Lárusdóttir | Fótbolti |
| María Eir Magnúsdóttir | Fótbolti |
| Ólafur Már Einarsson | Fótbolti |
| Sigursteinn Ásgeirsson | Frjálsar íþróttir |
| Tumi Steinn Rúnarsson | Handbolti |
| Þórður Gunnar Hafþórsson | Fótbolti |
Vegna sóttvarna verður því miður ekki hægt að taka hópmynd eins og gert hefur verið undanfarin ár.
Gangi ykkur ótrúlega vel!
með bestu kveðju
SÞ, verkefnisstjóri afreksíþróttasviðs og kennarar AFR
