Páskarnir eru uppbrot, jafnvel á þessum tímum. Hér fáið þið í hendurnar æfingaplan fyrir hraða og sprengikraft. Mælum með þessu fyrir okkar nemendur 🙂


Afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla
#afreks #AFR
Páskarnir eru uppbrot, jafnvel á þessum tímum. Hér fáið þið í hendurnar æfingaplan fyrir hraða og sprengikraft. Mælum með þessu fyrir okkar nemendur 🙂

Við höfum undanfarnar vikur verið að þróa okkur áfram með fitlight búnaðinn okkar. Hann gefur okkur ótal möguleika á útfærslum í hraða og snerpuþjálfun. Hér má sjá nokkrar útgáfur af því sem við höfum verið að vinna með.
SÞ
Nú nýverið eignaðist Afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla nýtt og glæsilegt æfingatæki, Fitlight. Tækið býður upp á fjölmarga möguleika til að þjálfa viðbragð og hraða í íþróttum. Einn helsti kostur þess er á hversu marga vegu stilla má tækinu upp til að búa til aðstæður og hreyfingar sem líkjast leik og keppni.
Tækið er samansett af 8 ljósum og stjórnborði sem stýrir því hvernig og hvenær það kviknar á ljósunum. Þannig má stilla ljósum upp allt eftir því hvert markmið æfingarinnar er. Markmið íþróttamannsins er svo að bregðast við og “slökkva” á ljósinu með því að snerta eða nálgast ljósið eins hratt og hægt er.
Stefnt er að því að setja upp sérstakar hraða og snerpuvinnusmiðjur næsta haust þar sem tækin verða notuð vikulega.
Eins og svo oft áður segir myndskeið svo miklu meira en 1000 orð, svo við látum eitt kynningarvídeó fylgja með hér.
Við hlökkum mikið til að kynna þetta verkfæri fyrir nemendum okkar, og gaman að geta þess að mörg af flottustu liðum úti í heimi eiga svona tæki til þjálfunar. Þá eru skólar á borð við IMG academy og Aspire fótbolta akademían með samskonar tæki.
Sveinn Þorgeirsson
Verkefnisstjóri