Hreyfibingó í boði Afreksíþróttasviðs!

Hér að ofan er bingó-æfing í boði Arnórs Ásgeirssonar í styrkteymi afreksíþróttasviðsins. Hlaðið pdf skjalinu niður, prentið og setjið á ísskápinn t.d. Í skjalinu eru hlekkir á æfingarnar 🙂

LEIÐBEININGAR:

Markmið verkefnisins er að klára allar æfingar á bingóspjaldinu.

Tímaramminn er vikan 23. til 27.mars.    Nemendur hafa frjálsar hendur við framkvæmd æfinganna og geta því skipt þeim í nokkrar lotur. Það væri t.d. hægt að skipta “300 snerta gagnstæða öxl” í 10 lotur x 30 endurtekningar eða Tabata þar sem unnið er í 20 sek og hvílt í 10 sek, alveg þar til að öllum 300 endurtekningum er lokið.   Við mælum með að velja 4-5 æfingar til að gera á einum degi.

Gangi ykkur vel og góða helgi!

SÞ og Arnór Ásgeirsson

Elín er á forsíðunni

Í haust kom markaðsfyrirtækið SAHARA í heimsókn og tók upp efni til að nýta í kynningar á afreksíþróttasviðinu. Þau Elín og Viktor Andri gerðu það með glæsibrag og nú er það efni komið í dreifingu. Flott reynsla fyrir þau og útkoman góð 🙂

Boost og fræðsla

Boðið verður upp á næringarfyrirlestur og boost vinnusmiðju eftir skóla þann 11. mars nk. Viðburðurinn er í boði afreksíþróttasviðs og er hugsaður fyrir ungt afreksíþróttafólk og forráðamenn þeirra. Á þessu kvöldi fá viðstaddir að smakka boost, fá ráð um framreiðslu slíks og upplýsingar um næringu. Auk þess fá þau að hafa áhrif á vöruúrvalið í mötuneytinu þar sem til stendur að fara að bjóða upp á boost og safa.

Viðburðurinn fer fram í Borgarholtsskóla og hefst fyrri fyrirlesturinn kl. 17:30 og sá síðari kl. 19:30. Fólk getur valið milli erinda eftir því hvor tímasetningin hentar, þar sem sama dagskrá er á báðum tímum.

Örfá orð um fyrirlesarann.
Birna Varðardóttir er með BS gráðu í næringarfræði frá Háskóla Íslands og MS gráðu í þjálffræðivísindum/íþróttanæringarfræði frá Maastricht háskóla í Hollandi. Sjálf hefur Birna mikla reynslu úr íþróttum, bæði sem íþróttakona og þjálfari. Jafnframt hefur hún starfað sem rannsóknarnemi og kennari við HÍ og komið að innlendum og erlendum rannsóknar- og fræðsluverkefnum.

Vinnsla á boostinu er svo í höndum Atla og Páls frá Matfangi. Matfang sér um mötuneyti skólans og hefur gert það frá því í haust. Matfang er tilbúið að fara í aukið samstarf við skólann og nemendur um það framboð af fæðu sem verður í mötuneytinu. Það tel ég að séu flottar fréttir fyrir ungt íþróttafólk sem vill hafa næringarumhverfi sitt sem best.

með bestu kveðju
Sveinn verkefnisstjóri,
Birna og Matfang umsjónarmenn mötuneytisins.

Borgó heimsótti afrekssvið MK á þemadögum!

Að fá tvö afreksíþróttasvið til að hittast og keppa í ýmsum þrautum var bara hugmynd, þar til á þemadögum Borgarholtsskóla í febrúar. Þá fóru nemendur á 2. og nokkrir af 3. ári í heimsókn til nýstofnaðs sviðs við Menntaskólann við Kópavog.

Sú heimsókn gekk ferlega vel og gefur tilefni til þess að endurtaka leikinn síðar. Markmiðið var að koma hópunum saman, brjóta upp starfið og fara í annars konar leiki. Þessum morgni lauk svo á sameiginlegum morgunverði fyrir hópinn sem taldi samtals vel yfir 100 manns. Þetta var einnig kjörið tækifæri fyrir kennara að hittast og deila hugmyndum.

Takk fyrir móttökurnar MK – við bjóðum ykkur eflaust brátt í heimsókn í Voginn!

SÞ og kennarar AFR