Frá 11. afhendingu landsliðsstyrk fyrir haustmisseri 2019. Frá vinstri, Sveinn verkefnisstjóri, Brynjólfur (sund), Jóhann Árni (fótbolti), Þórður Jökull (karate), Sigvaldi (blak), Ragna (sund) Bergrún (frjálsar íþróttir), Samuel (karate), Böðvar (golf), Gestur (borðtennis). Á myndina vantar Elínu (íshokkí), Valdísi (blak), Dagbjart (golf), Þórð (fótbolta) og Benedikt Gunnar (handbolti).
Elín Boamah Darkoh Alexdóttir fór í ferð með U20 ára kvennalandsliði Íslands í íshokkí til Skotlands
Benedikt Gunnar fór í ferð með U17 ára landsliði Íslands í handbolta á opna Evrópumótið í Gautaborg 30. júní – 6. júlí 2019. Liðið spilaði um 3 sætið og vann þann leikinn og fékk því brons.
Samuel Josh Mazanillo Ramos karatemaður fór til Helsinki og keppti aftur í opna og -63 kg flokkinum og lenti í fyrsta í -63 og þriðja í opna. Í september varð hann svo Smáþjóðaleikameistari í -63 annað skiptið í röð. Í nóvember keppti hann á Norðurlandameistaramótinu á sterkt mót þar sem hann tapaði fyrsta bardaganum sínum.
Gestur Gunnarsson fór í A-landsliðsferð á alþjóðlega mótið Estonia open í Tallinn, Eistlandi. Árangur var ekki eins og vonir stóðu til en hann þó hafði sigur gegn einum afar sterkum leikmanni Lettlands. Hann öðlaðist mikla reynslu í þessari ferð og lærði mikið. Mótið stóð fór fram 28. nóv-1. des. 2019. Þórður og Jóhann Árni með landsliði U19. Þeir spiluðu æfingaleiki gegn Finnlandi og Svíþjóð með u-19 landsliðinu þann 9. og 11. okt. 11. nóvember fóru þeir til Belgíu að keppa á undankeppni EM og gerðu góða ferð því eftir 3 leiki gegn Albaníu, Grikklandi og Belgíu komumst þeir upp úr riðlinum og eru komnir í milliriðla.Á myndinni má sjá Davíð Gunnlaugsson kennara 2. frá vinstri. Böðvar er svo 4. frá vinstri og Kristófer Karl 5. frá vinstri.Sigvaldi blakmaður í landsliðsbúningnum.Valdís rétt fyrir leik með unglinga landsliði Íslands í blaki.Ragna lengst til vinstri og Brynjólfur við hlið hennar. Ragna keppti á Norðurlandameistaramótinu í sundi helgina 28. nóvember til 1. desember og náði þriðja sæti í 800 metra skriðsundi og var nálægt sínum besta tíma. Þá tók hún einnig þátt í 4x200metra boðsundi með íslensku sveitinni. Brynjólfur náði sér ekki alveg á skrið og var aðeins frá sínum bestu tímum en lenti samt í 2. sæti í 200 m flugsundi og 5. sæti í 100 og 200 metra baksundi 18 og eldri. Bergún í langstökkinu þar sem hún keppti á heimsmeistaramótinu í frjálsum í Dubai. Hún keppti í 100m, 200m og langstökki. Í langstökki varð hún í fimmta sæti og bætti sinn persónulega árangur um 1cm, 4,27m. Í 100m náði hún besta tímanum á árinu þegar hún hljóp á 14,97s og var í 14. sæti. Í 200m bætti hún sig líka og hljóp á 31,30s og hafnaði í 15. sæti. Þórður á móti (ekki Norðurlandamótinu). Norðurlandameistaramót í karate var haldið í Kolding í Danmörku 23. nóvember. Þar keppti Þórður í flokki junior (16-17 ára) í kata. Lenti í öðru sæti, tapaði í úrslitum með hársbreidd. Dagbjartur hér þriðji frá vinstri. Hann var valinn í A-landsliðið á síðasta ári.
Jólaútskriftin okkar fór fram á föstudaginn og var hún haldin hátíðleg í Borgarholtsskóla. 9 nemendur útskrifuðust frá afreksíþróttasviðinu ásamt fleirum sem höfuðu tekið einn eða fleiri áfanga með okkur. Við óskum þeim öllum innilega til hamingju með áfangann!
Nemendur fengu púlsúr IGNITE frá POLAR sem viðurkenningu á þessum áfanga eins og hefð hefur verið fyrir.
Hér er svo hópurinn glæsilegi að athöfn lokinni ásamt verkefnisstjóra og skólameistara.
Frá vinstri, Sveinn verkefnisstjóri, Arnór, Viktor, Hrannar, Grímur, Nikulás, Kristín, Sigurður, Þórunn og Lovísa ásamt Ársæli skólameistara.
pisitll eftir Valgerði Tryggvadóttur sjúkraþjálfara og Svein Þorgeirsson verkefnisstjóra
Valgerður er sjúkraþjálfari hjá Styrk ehf. og á afreksíþróttasviði Borgarholtsskóla.
Styrkteymi Afreksíþróttasviðs Borgarholtsskóla samanstendur af reyndum íþróttafræðingum og sjúkraþjálfara. Unnið er markvisst að því að kynna fyrir nemendum mismunandi þjálfunaráherslur til að hámarka árangur sinn í íþróttum. Það er lögð rík áhersla á að þau þekki líkama sinn og læri inn á sín mörk hvað þjálfunarálag varðar til að vinna gegn álagsmeiðslum. Þjálfarar mæta þeim því þar sem þau eru stödd í sinni íþrótt með tilliti til íþróttar og aðstoða við að stýra álaginu og æfa framhjá meiðslum.
Í þjálfuninni er farið yfir mikilvægi góðs grunnþols og þreyta nemendur þolpróf í upphafi annar. Ef þörf er á fá nemendur leiðbeiningar varðandi hvernig má bæta þolið. Þolþjálfun bætir frammistöðu íþróttamannsins og hefur einnig forvarnargildi gagnvart meiðslum. Gott grunnþol flýtir fyrir endurheimt og gerir okkur kleift að klára æfingar og keppnir með góðri tækni og líkamsbeitingu. Það gerir það að verkum að við höfum úr fleiri hreyfingum að velja til að bregðast við mismunandi áreiti í keppni og drögum því úr endurteknu álagi á ákveðin svæði. Einnig bætir gott þol svefn og getur haft jákvæð áhrif á andlega líðan og einbeitingu til náms og keppni.
Algeng ástæða meiðsla við keppni er þegar leikmenn þurfa að stoppa hreyfingu sína skyndilega og því er farið vel yfir bremsuþátt hreyfinga í þjálfun okkar hjá afrekinu. Aðrir þættir sem lögð er rík áhersla á eru snerpa og viðbragð, tækni við almennar styrkjandi æfingar, hlaup og hopp. Stuðst m.a. við viðurkennt stökkprógramm sem heitir Sportsmetrics og sérstaklega hannað til að draga úr meiðslum og kenna uppstökks og lendingartækni í stigvaxandi útfærslum.
Þegar meiðsli gera vart við sig er nauðsynlegt að draga tímabundið úr álagi á meiðslasvæðinu. Það er mjög mikilvægt að draga ekki úr almennu æfingaálagi samhliða því. Ef það er dregið úr almennu æfingaálagi við meiðsli er hætta á að íþróttamaðurinn sé ekki í standi til að hefja æfingar og keppni af krafti aftur þegar búið er að vinna með meiðslin sjálf og hann verður því útsettari fyrir endurteknum meiðslum. Í meiðslum þarf íþróttamaðurinn því að taka ábyrgð á þjálfun sinni og vera hugmyndaríkur við að finna æfingar sem gera honum mögulegt að æfa af fullum krafti án þess að setja álag á meiðslasvæðið. Sjúkraþjálfari er til staðar á öllum æfingum afreksíþróttasviðsins til að ráðleggja nemendum varðandi meiðsli og æfingar.
Valgerður sjúkraþjálfari með nemanda í Kaupmannahafnarprófinu á aðfærsluvöðvum læris.
Auk eftirlits sjúkraþjálfara með æfingum gefst nemendum
kostur á einstaklingstíma í sjúkraþjálfun, utan skólatíma og án biðtíma, hjá
Styrk sjúkraþjálfunarstofu á Höfðabakka 9. Best er að panta tíma í gegnum
netfangið valgerdur@styrkurehf.is.
Þá er haustönnin loksins að hefjast. Fyrstu tímarnir verða kenndir í þessari viku og kennarar eru þessa stundina að leggja lokahönd á skipulag námsins í haust. Það er tilhlökkun í kennaraliðinu þar sem við ætlum að frumsýna uppfært skipulag sem við teljum að verði til þess fallið að styrkja sviðið enn meir.
Fyrsti tími með okkar á afrekinu með ykkur nemendum verður á miðvikudaginn 20. ágúst.
2. og 3. árs nemendur mæta kl. 8:10 í stofur 108 og 110 í Borgó
Nýnemar mæta kl. 9:10 í stofum 108 og 110 í Borgarholtsskóla