Nú fyrir skemmstu kom landslið U19 kvenna heim eftir þátttöku sína í undankeppni EM. Þar var liðið í riðili með Litháen, Króatíu og Spáni. Króatía hafði gert jafntefli við Ísland í milliriðli síðustu keppni, í apríl á þessu ári. Spánverjar voru með öflugt lið. Sjö leikmenn voru áfram í u19 liðinu sem hafði komist í úrslitaleik EM í júlí og yngri leikmennirnir höfðu tapað úrslitaleik á HM u17 ára í apríl fyrir Japan. Afreksíþróttasviðið átti sinn fulltrúa í Fylkisstúlkunni Huldu Hrund.
Markmiðið var að komast í milliriðil. Sigurvegarar riðlana ásamt besta árangrinum í 2. sæti komust áfram í milliriðil.
Ísland vann Litháen 8 – 0
Ísland vann Króatíu 1 – 0 í hörkuleik þar sem að liðið lék einum færri í 62 mínútur.
Ísland tapaði fyrir Spáni í uppbótartíma 1- 2. Hulda Hrund skoraði mark Íslands á 78 mínútu.
Það fór því svo að Ísland komst áfram og verður milliriðillinn leikinn 4. – 9. apríl 2015. Dregið verður í milliriðil 20. nóvember.
Hér má svo sjá markið sem Hulda skoraði gegn Spáni – það var af dýrari gerðinni vægast sagt 🙂
Mark – Hulda Hrund from Breiðablik on Vimeo.
með bestu kveðju
Þjálfarar afreksíþróttasviðs BHS
með bestu kveðju
Þjálfarar knattspyrnunnar, Daði, Úlfar og Henrik