Nemendur þóttu til fyrirmyndar í nýnemaferð afrekssviðsins á föstudaginn síðasta, 31. ágúst. Farið var með rútu austur fyrir fjall og þar var farið í leiki í samstarfi við Iceland Activities sem við þökkum fyrir góða dagskrá. Eitt aðalatriðið var svo hjólaferð sem reyndi þó nokkuð á færni nemenda.

Þessi ferð tókst með miklum ágætum og lofar góðu fyrir vinnu nemendanna í vetur. Hlökkum til að starfa með þessum flotta hópi!
með bestu kveðju
Sveinn verkefnisstjóri, Hreiðar og Brynjar.
