Afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla er virkur þátttakandi í átakinu „Sýnum Karakter“ þar sem áhersla er lögð á að vekja íþróttafólk, þjálfara og aðra til umhugsunar um mikilvægi þess að í íþróttaþjálfun sé þjálfuð upp sálfræðileg færni og félagsfærni líkt og líkamleg færni og tæknileg færni. Á hverri önn leggur Afreksíþróttasviðið áherslu á eitt af þeim 6 þemum sem tekin eru fyrir í átakinu. Í haust er þemað „Áhugi“.
Áhugi, eða áhugahvöt, segir til um af hversu miklum krafti og áhuga við stundum okkar íþrótt. Áhugahvöt íþróttafólks snýst um tvennt. Í fyrsta lagi hvata, hvers vegna einstaklingurinn fer á æfingar og leggur sig fram. Þessi ástæða getur haft mikið um það að segja hversu mikla ánægju einstaklingurinn fær útúr íþróttaiðkuninni og hversu mikið einstaklingurinn er tilbúinn að leggja á sig. Í öðru lagi snýst áhugahvöt um styrkleika hvatans, hversu miklu máli hvatinn skiptir einstaklinginn og hversu hart einstaklingurinn er tilbúinn að leggja á sig vegna hvatans.
Ýmislegt verður gert í tengslum við Sýnum karakter þemað „áhuga“ á Afreksíþróttasviðinu í haust. Meðal þess sem verður gert er að hvetja nemendur til lesturs stuttra greina og áhorfs á myndbönd um áhuga. Fyrsta greinin sem við birtum er af síðunni „Psychology today“, þar er fjallað um áhugahvöt (motivation) og hvernig mikilvægt er að halda áhuganum á erfiðum tímum í íþróttaiðkuninni.
https://www.psychologytoday.com/us/blog/the-power-prime/200910/sports-what-motivates-athletes
Fyrir þá sem áhugasamir eru um Sýnum Karakter átakið bendum við á heimasíðu þess www.synumkarakter.is
Með afreks-kveðju
Hreiðar Haraldsson og Sveinn Þorgeirsson

