Nú er vorönninni lokið og margt jákvætt sem áunnist hefur á þessari önn. Við eigum 10 einstaklinga sem fóru erlendis í keppnisferð með landsliðum sínum á þessari önn og hljóta þar af leiðandi landsliðsstyrkinn okkar. Það er bæting frá því í fyrra og vonandi heldur þessi þróun áfram.
Styrkurinn var veittur í 2. sinn þann 30. apríl og hlaut hver og einn nemandi 25.000 kr.
Hér að neðan má sjá hópinn sem fékk viðurkenninguna ásamt Inga Boga aðstoðarskólameistara og Sveini Þorgeirssyni verkefnisstjóra afreksíþróttasviðs.

Íshokkí: Elvar Snær Ólafsson, Edmunds Induss og Gabriel Camilo kepptu fyrir U18 í 3. deild A í Tævan nýverið. Strákarnir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu sína deild. Liðinu var stjórnað af Vilhelm Má Bjarnasyni, þjálfara á afreksíþróttasviði.
Handbolti: Andrea Jacobsen og Helena Ósk Kristjánsdóttir voru valdar í U17 ára landslið kvenna sem tók þátt í undankeppni EM í Færeyjum. Liðið komst því miður ekki áfram. Thea Imani Sturludóttir og Hulda Dagsdóttir voru valdar í U19 og tóku þátt í undankeppni EM í Makedóníu í apríl, liðið komst því miður ekki áfram. Kristján Örn Kristjánsson var valinn í æfingaferð til Þýskalands með U19 ára liðinu og skoraði 21 mark í 5 leikjum.
Fótbolti: Hulda Hrund Arnarsdóttir og Jasmín Erla Ingadóttir fóru til Frakklands og tóku þátt í undankeppni EM með U19 ára landsliði kvenna.
með þökk fyrir veturinn og gangi ykkur vel í keppni og æfingum í sumar!
Sveinn og þjálfarar afreksíþróttasviðs
