Ferðasaga #1

Dagur 1

Ferðin byrjaði á flugi til Düsseldorf, þar tók við langt ferðalag og hvíldin nauðsynleg. Þegar lent var í Düsseldorf tók Gunnar Steinn og liðsfélagi hans Magnus við okkur og ferðalagið hélt áfram til Gummersbach.
Við komum að hótelinu klukkan 8:30 að staðaltíma en herbergin voru ekki tilbúin fyrr en 10 – 10:30 svo Gunnar Steinn sýndi okkur bæinn og fór með okkur á skemmtilegan veitingarstað.
Þegar herbergin voru tilbúin komum við okkur fyrir og hvíldum okkur eftir strembið ferðalag.
Eftir góða hvíld tóku þeir sem þurftu að taka próf prófin sín og restin fór að rolta í góður veðri niður í bæ að skoða.
Klukkan 18:30 tók svo við skemmtileg æfing í gömlu Gummersbach höllinni.
Eftir æfingu sýndi Gunnar Steinn okkur flottan Ítalskan stað rétt hjá hótelinu.
Það var komin ró um 23:00.

Dagur 2

Í dag tókum við góða morgunstyrktaræfingu í Schwalbe arena og gekk það mjög vel. Eftir hana var það heit sturta og smá matur á hótelinu og svo beint að horfa á Gummersbach æfa í sömu höll. Höllin var mjög flott og mjög gaman að horfa á þessa reyndu menn æfa.
Við tók æfing með Gummersbach akademíunni og var það mjög skemmtileg og góð æfing.
Við fórum aftur á sama Ítalska stað í kvöldmat en þeir sem vildu ekki borða þar máttu fara eitthvert annað t.d. fóru sumir á McDonald’s og kebab.
Eftir kvöldmat kom Kiel og allir urðu mjög spenntir, seinna um kvöldið spjölluðu sumir við Aron og hina leikmennina.
Eftir allt gamanið var komin ró kl 23:00.

 

11114781_10203945149381889_641913022274133077_o 11124415_10203945149101882_413289633085111020_o 11270454_10203945153501992_6340612117146323094_o 11218579_10203945155902052_4174845829939470917_o

Leave a Reply

Your email address will not be published.