Eins og oft áður átti afreksíþróttasviðið glæsilega fulltrúa á útskrift Borgarholtsskóla í gær. Útskriftin var haldin hátíðlega í gær (laugardaginn 23. maí) fyrir fullum sal. Í ár útskrifuðust 7 nemendur af afreksíþróttasviðinu, 2 úr körfbolta, einn úr fótbolta og 4 úr handbolta. Handboltastrákarnir eru einmitt úr fyrsta handboltaárganginum sem byrjaði við skólann. Þeir eru því frumkvöðlarnir sem byggðu upp handboltann og eiga stóran þátt í því að í dag eru 24 nemendur þar skráðir og fleiri á leiðinni, farið hefur verið í 2 utanlandsferðir og 6 nemendur þaðan hafa fengið landsliðsstyrki fyrir þátttöku sína í verkefnum með landsliðum, af 18 sem fengu styrk á þessu skólaári (samtals 450.000 kr.).
Þeir nemendur sem fara alla leið hjá okkur eru sérstaklega mikilvægir því þeir gegna miklu fyrirmyndarhlutverki gagnvart þeim sem koma inn nýir á hverju ári. Og þessir drengir hafa svo sannarlega staðið sig þar.


