Tvær handboltastelpur úr afrekinu, þær Helena og Berglind voru valdar til að vinna að Evrópuverkefni í síðasta mánuði. Við fengum þær til að lýsa þessu verkefni stuttlega fyrir okkur.
Instem Evrópuverkefni
Við tókum þátt í skemmtilegu Evrópuverkefni í skólanum ásamt sex öðrum nemendum. Verkefnið fólst í því að hafa einn nemanda heima hjá okkur í viku og að vera með þeim öllum stundum.
Nemendurnir sem tóku þátt í verkefninu komu frá Ítalíu, Litháen, Tyrklandi og Luxemborg. Frá hverju landi komu tveir nemendur og tveir kennarar. Við fengum stelpur frá Tyrklandi og Litháen.
Við tókum þátt í ýmsum verkefnum í skólanum og skoðuðum helstu staði landsins t.d. Árbæjarsafnið, Reykjadal og auðvitað Gullnahringinn.
Þetta var ótrúlega þroskandi og gefandi verkefni. Þá sérstaklega að kynnast þessum krökkum og þeirra menningarheimi og fara með þeim í allar ferðirnar.
Næsta vor förum við svo til Litháens í viku og þá munum við fá að kynnast einhverri fjölskyldu og taka þátt í skemmtilegum ævintýrum

Við mælum með fyrir alla sem sem eiga þess kost að taka þátt í svona verkefni.
Takk fyrir okkur 
