Höfuðáverkafræðsla

Í gær fengum við góða heimsókn frá Maríu Kristínu Jónsdóttur dósent við sálfræðideild Háskólans í Reykjavík. María er sérfróð um höfuðáverka í íþróttum og deildi með okkur þekkingu sinni á efninu í fyrirlestri fyrir alla nemendur afreksíþróttasviðsins. Við þökkum Maríu fyrir heimsóknina og við erum margsvísari um alvarleika þess að fá höfuðhögg, einkenni og bataferlið.

SÞ

Ferðasaga Sveins Jose í Evrópukeppni í handbolta

Serbía

Ferðalagið til Serbíu var langt og strembið. Flugum til Búdepest í Ungverjalandi á miðvikudegi. Vorum komnir það seint að liðið þurfti að gista í Budapest. Daginn eftir hófst rútuferð til Serbíu. Eftir 9 klukkutíma rútuferð vorum við loksins komnir til Zlatibor í Serbíu. Zlatibor er pínu lítið þorp utan Pozega sem er bærinn sem við kepptum í.

Unnum leikinn 27:30 og fórum því heim kátir með 3 marka forskot.

Ferðalagið heim var langt líka, byrjuðum á 3 tíma rútuferð til Belgrade. Þar tókum við flug til Berlín og svo heim til Íslands.

Rúmenía

Eitt enn evrópuævintýrið og aftur haldið á Balkanskagann. Eftir að hafa unnið Rúmenska liðið Turda með 8 mörkum héldum við til Rúmeníu. Flugum snemma að morgni fimmtudags, kvöldinu áður höfðum við komust 2:0 yfir í einvíginu við Fram í úrslitakeppninni, svo lítið var um hvíld.

Flugum við til Luton í Bretlandi, þar þurftum við að bíða í 8 tíma til að taka næsta flug. Notuðum við það og kíktum í miðbæ Luton, sem er úthverfi London.

Eftir skoðunarferð í Luton skelltum við okkur í næstum 4 tíma flug til Cluj Napoca í Rúmeníu. Þá fórum við í hálftíma rútuferð til Turda, þar sem við áttum leik á sunnudegi. Leikurinn fór ekki eins og við vildum, en töpuðum með 9 mörkum.

Fórum við heim með sárt ennið eftir að hafa verið flautaðir úr Evrópukeppninni.

Ferðin heim var svipuð nema var millilent í Birmingham og þaðan beinustu leið til Íslands. En tímabilið er langt frá því að vera búið, og dveljum við ekkert við þessi ósanngjörnu úrslit. Og förum beint að einbeita okkur að 3 leiknum við Fram, þar sem við ætlum okkur í úrslitarimmuna við FH.

Sveinn Jose

Við þökkum Sveini fyrir söguna og óskum honum góðs gengis í úrslitaeinvíginu sem hefst einmitt í kvöld

Verkefnisstjóri,

SÞ

Afreks býður upp á sveigjanleika!

Nú fyrir skemmstu fór fram rástefna á vegum HSÍ undir nafninu Ný kynslóð – ný tækifæri og ræddu þar landsliðsþjálfararnir Geir Sveinsson og Axel Stefánsson framtíðina og stöðu A-landsliðs karla og kvenna. Þar kom meðal annar fram í máli Axels að leikmönnum þyrfti að vera gefinn kostur á því að taka nám sitt á lengri tíma til að gefa íþróttamönnum tækifæri á að einbeita sér betur að íþrótt sinni.

Fyrir tæpum 3 árum varð stytting náms til stúdentsprófs að veruleika og er í dag 3 ár samkvæmt nýju kerfi. Fullt nám er 200 framhaldsskólaeiningar sem skipt er á 6 annir. Miðað við 35 einingar (og 16-18 vikna önn) er gert er ráð fyrir 40 klst. vinnu nemenda í hverri viku samkvæmt þeirri áætlun. Algengt æfingaálag á hvern nemanda er frá um 8-12 klst. upp fyrir 20 klst. í viku, þó misjafnt eftir tímabili og eftir íþróttagreinum.

Ef við gerum ráð fyrir 15 klst í íþróttir, 40 í námið, 64 í svefn (9 klst fyrir ungt fólk), skiliur það eftir 49 klst á viku sem þurfa að fara í “allt hitt”.

Við vitum vel að álag í framhaldsskóla á nemendur er mikið, og leggst það á þá vinnu sem er unnin í íþróttafélögunum á hverjum tíma. Á hverri önn koma álagspunktar bæði í skóla (t.d. annarlok) og úrslitakeppnir og mót á keppnistímabili. Til að geta mætt því býður afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla nemendum sínum að taka námið á lengri tíma með því að fækka þeim einingum sem teknar eru á hverri önn. Það skilar sér í minna álagi á hverri önn og meiri tíma til hvíldar og einbeitingar á íþróttina sem stunduð er. Að taka stúdentspróf á 8 önnum, eða 4 árum lækkar álagið u.þ.b. fjórðung á hverri önn. Gefst þá einnig tækifæri til að bæta við áföngum tengdu því fagi sem nemandinn hyggst sækja á háskólastigi.

Hér má nálgast upptökur frá ráðstefnunni sem var hluti af 60 ára afmælishátíð HSÍ og fór fram í Arion banka við Borgartún. Axel nefnir álag á námsmenn þegar um 52 mínútur eru liðnar af myndskeiðinu.

https://www.facebook.com/arionbanki/videos/1275576865855101/

Þeir Axel og Geir ræddu framtíðina og hvað þyrfti til, svo landsliðin megi taka næstu skref í sívaxandi alþjóðlegri samkeppni. Virkilega áhugaverð erindi og fróðleg.

Hér má nálgast uppsetningu og lýsingar á náminu á afreksíþróttasviði. http://bhs.is/namid/brautir/afreksithrottasvid/

með kveðju

Sveinn Þorgeirsson (sveinn@bhs.is)

Fitlight búnaður í verkfærakistuna

Nú nýverið eignaðist Afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla nýtt og glæsilegt æfingatæki, Fitlight. Tækið býður upp á fjölmarga möguleika til að þjálfa viðbragð og hraða í íþróttum. Einn helsti kostur þess er á hversu marga vegu stilla má tækinu upp til að búa til aðstæður og hreyfingar sem líkjast leik og keppni.

Tækið er samansett af 8 ljósum og stjórnborði sem stýrir því hvernig og hvenær það kviknar á ljósunum. Þannig má stilla ljósum upp allt eftir því hvert markmið æfingarinnar er. Markmið íþróttamannsins er svo að bregðast við og “slökkva” á ljósinu með því að snerta eða nálgast ljósið eins hratt og hægt er.

Stefnt er að því að setja upp sérstakar hraða og snerpuvinnusmiðjur næsta haust þar sem tækin verða notuð vikulega.

Eins og svo oft áður segir myndskeið svo miklu meira en 1000 orð, svo við látum eitt kynningarvídeó fylgja með hér.

Við hlökkum mikið til að kynna þetta verkfæri fyrir nemendum okkar, og gaman að geta þess að mörg af flottustu liðum úti í heimi eiga svona tæki til þjálfunar. Þá eru skólar á borð við IMG academy og Aspire fótbolta akademían með samskonar tæki.

Sveinn Þorgeirsson

Verkefnisstjóri

25 handboltanemendur unnu sér sæti í Olís-deildinni með Fjölni

Hvorki fleiri né færri en 25 nemendur (útskrifaðir og núverandi) afreksíþróttasviðsins komu við sögu og spiluðu risastóran þátt í velgengni meistaraflokka Fjölnis í vetur þegar bæði lið unnu sér sæti meðal þeirra bestu. Það er gaman til þess að hugsa að árið 2012 hóf handbolti á afreksíþróttasviði göngu sína með 14 nemendur á skrá. Haustið 2016 voru skráðir 44 nemendur úr 7 félögum af höfuðborgarsvæðinu. Það má því með sanni segja að starfið hafi vaxið og dafnað hratt. Þáttur sviðsins í uppganginum á afreksíþróttasviðinu er mjög áhugaverður og verður spennandi að fylgjast með þessum hópi á næstu árum.

Kvennaliðið tryggði sér 1. sætið með sigri í úrslitaleik gegn KA/Þór á heimavelli um helgina. Leikurinn var jafn og spennandi lengst af og urðu lokatölur 28-26.

Karen Birna nemandi á AÍS átti stórleik gegn KA/Þór í úrslitaleiknum og varði 21 skot. Mynd: Þorgils G.

Hér má sjá tölfræði frá tímabili afrekssviðs nemenda.

NAFN LEIKIR MÖRK GUL 2 MÍN
Berglind Benediktsdóttir 21 58 5 7
Andrea Jacobsen 20 101 4 4
Sara Sif Helgadóttir *markm. 19 2 0 0
Helena Ósk Kristjánsdóttir 18 35 4 1
Andrea Björk Harðardóttir 18 22 1 14
Kristín Lísa Friðriksdóttir 17 15 2 3
Karen Birna Aradóttir *markm. 16 0 0 0
Þórhildur Vala Kjartansdóttir 9 2 2 7
Sara Margrét Brynjarsdóttir 9 1 0 0
Sara Dögg Hjaltadóttir 1 0 0 0
samtals 148 236 18 36

Drengirnir höfðu þegar tryggt sér sæti í efstu deild fyrir sigurleikinn gegn Mílunni með 17 sigurleikjum í röð í byrjun tímabils.

Goði er einn margra yngri landsliðsmanna sem eru á afreksíþróttasviði í handbolta. Mynd: Þorgils G.

Hér má sjá tölfræði frá tímabili afrekssviðs nemenda.

NAFN LEIKIR MÖRK GUL 2 MÍN
Kristján Örn Kristjánsson 22 131 5 17
Arnar Máni Rúnarsson 18 6 2 7
Jón Pálsson *markm 21 0 0 0
Breki Dagsson 21 121 3 12
Brynjar Óli Kristjánsson 21 9 2 2
Björgvin Páll Rúnarsson 20 111 5 3
Bergur Snorrason 18 28 2 9
Bjarki Lárusson 18 30 0 2
Daníel Freyr Rúnarsson 11 7 0 0
Sveinn Þorgeirsson *verkefnisstjóri AÍS 11 6 4 5
Goði Ingvar Sveinsson 6 1 0 1
Egill Árni Jóhannesson 4 0 0 0
Hafsteinn Óli Berg Ramos Rocha 4 0 0 0
Drengur Arnar Kristjánsson 1 0 0 0
Viktor Berg Grétarsson 1 1 0 0
Þorleifur Rafn Aðalsteinsson 1 0 0 0
samtals 198 451 23 58
Starfsmenn
Arnar Gunnarsson *þjálfari AÍS 22 3 1

 

Kolbeinn Tómas átti frábært mót

Nemendur úr einstaklingslínu afrekssviðis Borgarholtsskóla hafa ekki slegið slöku við á þessu tímabili. Kolbeinn Tómas varð nú fyrir skemmstu fjórfaldur Íslandsmeistari í sínum aldursflokki þar sem hann vann gull í kúluvarpi, þrístökki og 4x200m boðhlaupi og lokum  yfirburðasigur í sinni helstu grein á innanhússtímabilinu í sjöþraut.

Hér sjáum við Kolbein koma í mark með keflið í 200m boðhlaupi fyrir sveit ÍR. Óskum Kolbeini og þjálfara hans Brynjari (þjálfara á afreksíþróttasviðinu) innilega til hamingju með árangurinn!

með bestu kveðju

Sveinn verkefnisstjóri

Helga og Styrmir Íslandsmeistarar

Helgina 25.-26. febrúar fór fram Meistaramót Íslands 15-22 ára í frjálsum íþróttum. Þar urðu þau Helga Þóra Sigurjónsdóttir og Styrmir Dan Hansen Steinunnarson Íslandsmeistarar í sínum aldursflokki. Þau eru bæði á afreksíþróttasviði í Borgarholtsskóla og keppa fyrir Fjölni.

Við óskum þeim innilega til hamingju með þetta, og Styrmi góð gengis í bata eftir aðgerð sem hann fór nýlega í!

með bestu kveðju

Sveinn, þjálfarar afreksíþróttsviðsins og Teddi Fjölnisþjálfari

Viðari Ari semur við Brann!

Virkilega ánægjulegar frengir!

Viðar Ari Jónsson fyrrum nemi af afreksíþróttasviði hefur samið við ´urvalsdeildarlið Brann í Noregi og gert við liðið atvinnumannasamning. Þetta er stórt skref en við vitum að Viðar er toppeintak og vel undirbúinn. Hann útskrifaðist frá Borgarholtsskóla á afreksíþróttasviði haustið 2014 og hefur undanfarin ár farið mikinn með úrvalsdeildarliði Fjölnis í Pepsi deildinni.

Við óskum Viðari innilega til hamingju og gangi honum sem allra best úti!

með kveðju

Sveinn verkefnisstjóri og þjálfarar

Fróðlegir skóhlífadagar

Dagskrá skóhlífadaga var með hefðbundnu sniði og gengu þeir vel fyrir sig. Á þessum þemadögum skólans er hefðbundið skólastarf brotið upp með námskeiðum og uppákomum í skólanum sem nemendum gefst færi á að velja sig í eftir áhugasviði. Afreksíþróttasvið hefur staðið fyrir góðri dagskrá undanfarin ár með flottum fyrirlestrum og veglegum hádegismat. Árið í ár var engin undantekning og fengum við að hlusta á Margréti Lilju frá íþróttafræðisviði HR fjalla um hve mikill árangur hefur náðst varðandi forvarnir vímuefna í skipulögðu íþróttastarfi og fleira byggt á rannsóknum Rannsókna og greiningu. Var sá fyrirlestur hluti af samstarfi AÍS við íþróttafræðisviðið í HR. Að því loknu steig Margrét Lára Viðarsdóttir, íþróttafræðingur og meistaranemi í sálfræði á stokk og fjallaði um andlegan styrk íþróttamanna. Talaði hún einnig af eigin reynslu ásamt því að tala stuttlega um kvíða, sjálfstraust og túlkun tilfinninga.