Leikmannasamtökin í heimsókn!

Leikmannasamtök Íslands komu í heimsókn á 3ja árið okkar á afreksíþróttasviðinu í gær. Þar fengu nemendur fræðslu í réttindum leikmanna gagnvart félögum sínum og hagnýt ráð í samningagerð svo dæmi séu tekin.

Við þökkum þeim Kristni Björgúlfssyni og Arnari Theodórssyni fyrir flotta kynningu og gagnleg ráð. Fyrir áhugasama er slóðin á vefsíðu samtakana http://leikmenn.is/.

Leikmannasamtök Íslands.

 

Fyrirmyndarsvið Borgarholtsskóla

Nýnemar fóru í árlega ferð afreksíþróttasviðs í dag í blíðskaparveðri í Hveragerði. Þangað var haldið í morgun og aðalverkefni dagsins var hjólreiðatúr um Reykjadalinn. Það er skemmst frá því að segja að ferðin heppnaðist afar vel og við vorum ánægð með nemendurna okkar sem voru til fyrirmyndar. Annars segja myndir meira en mörg orð…

SÞ og kennarar

Afrekssviðsnemendur með verðlaun í tugþraut 16-17 ára

Tveir af okkar nemendum í einstaklingsíþróttum kepptu á meistaramótinu í fjölþrautum núna um helgina, þar sem þeir höfnuðu í 1. og 3. sæti í tugþraut 16-17 ára. Þetta eru þeir Kolbeinn Tómas Jónsson (2. ár) og Úlfur Árnason (nýnemi) og keppa þeir báðir fyrir hönd ÍR. Við óskum drengjunum til hamingju með árangurinn og gangi þeim vel á mótum vetrarins!

Nánar um mótið hér á vef ÍR um mótið http://ir.is/frjalsar-news/mikid-um-baetingar-a-mi-i-fjolthrautum/

Hér er Kolbeinn fyrir miðju og Úlfurr til hægri. Til hamingju drengir!

Sveinn og Brynjar G

Rafal í skoðun í Englandi

Þessa dagana er hann knattspyrnumarkmaðurinn Rafal Stefán Daníelsson nýnemi á afreksíþróttasviðinu til reynslu í Englandi, m.a. hjá Everton og Liverpool. Rafal hefur stundað námið í fjarnámi fyrstu vikurnar og mun svo koma til landsins í september og hefja staðarnámið hér í Borgarholtsskóla. Við óskum Rafal góðs gengis og hlökkum til að fá hann á æfingar hjá okkur!
Rafal Stefán Daníelsson
Fæddur í Fjarðabyggð árið 2001 og hefur leikið með Fjarðabyggð, Hetti Egilsstöðum og nú síðast FRAM þar sem hann hefur leikið síðan árið 2013, hann er sem stendur í A-liði 3. flokks en hefur æft með bæði 2. flokki og meistaraflokki og spilað einn leik með hvorum flokki. Rafal hefur einnig verið á úrtaksæfingum fyrir yngri landslið Íslands. Hann hefur farið á fjölmörg markvarðarnámskeið, m.a. hjá Siergiej Szypowski sem er þekktur pólskur markvarðarþjálfari en einnig hjá Billy Stewart í Englandi og er Rafal t.d. að fara til hans í sex vikur í ágúst og september og mun æfa og spila með Accrington Stanley. Ásamt þjálfurum Rafal hjá FRAM hefur hann m.a. verið í þjálfun hjá Stefáni Loga Magnússyni markmanni KR.

Staðfesting á inngöngu

Kæru umsækjendur á afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla

Við höfum fengið þó nokkuð af fyrirspurnum varðandi inngöngu á afreksíþróttasviðið. Þið ættuð að hafa fengið sendan staðfestingarpóst á inngöngu í Borgarholtsskóla. Í því bréfi er afreksíþróttasvið hvergi nefnt. En hafi viðkomandi sótt um afreksíþróttasvið í fyrsta val og fengið bréfið

Enn fremur ætti viðkomandi að hafa borist greiðsluseðill sem er 40.000 kr hærri en sá sem er venjulega greiddur fyrir nám á framhaldsskólastigi. Það er efnisgjaldið á afreksíþróttasviði.

Ef einhverjar spurningar vakna eða vafi er á, endilega sendið póst á sveinn@bhs.is.

 

Hlökkum til að sjá ykkur í haust!

SÞ

Og Máttarstólpann 2017 fær….

Afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla!!!

Grafarvogsdagurinn var haldinn hátíðlegur í hverfinu nýlega líkt og mörg undanfarin ár. Mikið er um að vera á þessum degi í Grafarvogi og koma margir að dagskránni.

Hverfisráð Grafarvogs hefur staðið fyrir veitingu Máttarstólpans, hvatningarverðlaunum ráðsins. Í reglum um viðurkenninguna segir m.a.

d. Mikilvægt er Grafarvogsbúar fái að njóta árangurs af starfinu og að starf viðkomandi verki hvetjandi á menningar-, íþrótta- og tómastundalíf í hverfinu.
Nánar hér http://reykjavik.is/reglur-um-mattarstolpann-midgardur.

Það teljum við svo sannarlega að sé raunin. Starfið fer fram í hverfisframhaldsskólaskóla Grafarvogs og nýtist því sérstaklega þeim sem búa í nærumhverfinu og æfa íþróttir af miklum dug. Fjölnir hefur notið góðs af þessari starfsemi og nú stendur til að efla það samstarf ennfrekar með uppbyggingu íþróttamannvirkis við Egilshöll og samstarfssamnings milli sviðsins og Fjölnis.

Gleðilegt sumar, þessi vetur hefur verið frábær!

Sveinn Þorgeirsson

Umsóknarfrestur er til 9. júní

Til allra þeirra sem hafa áhugu á að sækja um námið okkar á næsta ári.

Umsóknarfrestur í skólann er til 9. júní nk. (föstudagur). Þann dag rennur einnig út frestur til að sækja um á afreksíþróttasvið og skila inn sérstakri umsókn (sjá HÉR AIS_umsokn_vor_2017-18_nytt uppfaert) ásamt meðmælabréfi.

Tilkynnt verður svo um viku síðar um inntöku.

Verkefnsstjóri ásamt Patreki Jóhannessyni landsliðsþjálfara Austurríkis sem kom og tók gestakennslu á afreksíþróttasviði.

SÞ, verkefnisstjóri

Rannsókn sjúkraþjálfaranema á meiðslum á afreksíþróttasviði

Í vetur starfaði afreksíþróttasviðið með nemendum úr sjúkraþjálfunarskori HÍ undir leiðsögn Árna Árnasonar. Verkefnið var mjög áhugvert, enda hefur ekkert sambærilegt verið gert hér á landi. Hér er að finna ágrip en verkefnið veðrur aðgengilegt á Skemman.is í sumar. Við þökkum stúlkunum fyrir samstarfið og kynninguna á niðurstöðum sem þær héldu fyrir kennara sviðsins nú í vikunni.

Inngangur: Æfingaálag hjá ungu íþróttafólki hefur aukist á síðastliðnum árum. Rannsóknir gefa til kynna að samband sé á milli æfingaálags og meiðslatíðni hjá íþróttafólki. Íþróttameiðsli geta verið stórt vandamál. Þau geta m.a. valdið tímabundinni fjarveru frá íþróttum og jafnvel skóla eða vinnu ásamt því að hafa andleg og félagsleg áhrif. Ekki er mikið til af rannsóknum á íþróttameiðslum barna og unglinga á Íslandi.

Markmið: Kanna meiðslatíðni og æfingaálag hjá ungu íþróttafólki, ásamt því að skoða hvort tengsl séu þar á milli. Skoða hvort munur sé á meiðslatíðni og æfingaálagi á milli kynja annars vegar og íþróttagreina hinsvegar. Kanna hvert hlutfall álagseinkenna og bráðameiðsla er af heildarfjölda íþróttameiðsla.

Aðferðafræði: Tvennskonar spurningalistar voru lagðir fyrir framhaldsskólanemendur á afreksíþróttasviði haustið 2016. Annar þeirra var lagður fyrir nemendur einu sinnu og hinn alls fjórum sinnum yfir 8 vikna tímabil. Gögnum var safnað saman og flutt yfir í Excel og SAS Enterprice Guide 7.1 til úrvinnslu.

Niðurstöður: Marktækt minna æfingaálag og lægra meiðslahlutfall er í fótbolta miðað við handbolta og aðrar íþróttagreinar. Einnig er tíðni álagseinkenna í mjóbaki, hnjám og öðrum líkamshlutum lægri í fótbolta en handbolta á þessum árstíma. Ekki er marktækur munur á æfingaálagi og meiðslatíðni milli kynjanna þrátt fyrir að stúlkurnar hafi í öllum tilvikum haft hærri meiðslatíðni. Auk þess voru stúlkurnar með marktækt fleiri höfuð- og andlitsmeiðsli en drengir ásamt marktækt fleiri meiðsli í neðri útlimum. Álagseinkenni mældust marktækt fleiri en bráðameiðslin, bæði hjá stúlkum og drengjum. Ekki er fylgni milli aukins æfingaálags og hærri meiðslatíðni meðal ungs íþróttafólks.

Ályktanir: Þessi rannsókn var lítil og náði yfir stutt tímabil og það gæti hafa haft áhrif á niðurstöður. Því er þörf á stærri og yfirgripsmeiri rannsókn á þessu sviði hér á landi. Niðurstöður gefa þó innsýn í meiðslatíðni og æfingaálag hjá ungu íþróttafólki í mörgum mismunandi íþróttagreinumi og geta þar með byggt grunn að fyrirbyggjandi aðgerðum.

20 styrkir og aldrei fleiri!

Þann 10. maí fór fram 6. afhending á landsliðsstyrk á afreksíþróttasviðinu. Þeir nemendur sem hafa tekið þátt í landsliðsverkefnum á vegum sérsambands fá 25.000 kr. styrk. Hér er um að ræða nemendur sem keppa fyrir Íslands hönd (ein keppir fyrir BNA) í yngri landsliðum (nokkrir hafa þó keppt fyrir A landslið).

 

Frá 6. afhendingu landsliðsstyrks fyrir vor 2017. Á myndinni eru: Efri röð frá vinstri; Sveinn verkefnisstjóri, Ingi Bogi aðstoðar- og Ársæll skólameistari, Tumi, Arnór, Goði, Vignir, Sara Sif, Arnar Máni, Sara Dögg, Hafsteinn, Sara Margrét, Daníel Freyr og Andrea. Neðri röð, Jón Albert, Sigríður Dröfn, Hjalti, Bryndís og Berglind. Á myndina vantar Elvar Snæ, Maksymilian Jan og Huga Rafn.

Afhendingin var sérlega fjölmenn á þessu vori og hafa aldrei fleiri fengið styrk á einni önn, eða alls 20 nemendur sem hver um sig fékk 25.000 kr. í styrk. Talnaglöggir lesendur sjá að um er að ræða hálfa milljón í styrk! Eftirfarandi nemendur fengu styrk að þessu sinni fyrir verkefni sem tilgreind eru hér að neðan.

  • Sara Dögg Hjaltadóttir og Sara Sif Helgadóttir tóku þátt í undankeppni í Póllandi með U17 ára landsliði kvenna í handbolta.
  • Arnar Máni, Goði Ingvar, Arnór Snær, Tumi Steinn, Daníel Freyr og Hafsteinn Óli tóku allir þátt í verkefni unglingalandsliði karla U17 í Frakklandi í handbolta.
  • Bryndís Bolladóttir sundkona var valin til þátttöku á Smáþjóðaleikunum sem fara fram snemmsumars í San Marínó.
  • Sigríður Dröfn Auðunsdóttir skíðakona keppti í Tyrklandi á Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar sem fram fer í Erzurum.
  • Maksymilian Jan, Vignir Freyr Arason, Hugi Rafn Stefánsson og Jón Albert Helgason ferðuðust alla leið til Nýja Sjálands til að keppa í íshokkí með U20 ára landsliði Íslands.
  • Hjalti Jóhannsson og Elvar Snær Ólafsson kepptu fyrir hönd Íslands í Rúmeníu á heimsmeistaramóti í íshokkí.
  • Berlind Benediktsdóttir og Andrea Jacobsen handboltakonur kepptu í undankeppni Evrópumótsins á Spáni í mars.
  • Sara Margrét Brynjarsdóttir tók þátt í verkefni með bandaríska A landsliði kvenna í handbolta í Bandaríkjunum.

Það þarf varla að taka það fram en auðvitað voru þau landi og þjóð til sóma og stóðu sig vel! Óskum þeim áframhaldandi góðs gengis í sumar.

SÞ, verkefninsstjóri

 

Afreksstelpur valdar til verksins

Þær 3ja árs stöllur úr handboltanum á afrekinu Helena Ósk og Berglind voru valdar í Evrópuverkefni sem heitir Rasmus og hér fylgir stutt ferðasaga.

Við fórum 23. apríl til Litháens. Jóhanna og Guðrún voru ferðafélagar okkar. Við millilentum í Svíþjóð og fórum að skoða Stokkhólm aðeins áður en við flugum til Litháens. Með okkur í þessu verkefni voru krakkar frá Tyrklandi, Ítalíu, Lúxemborg og svo auðvitað Litháen. Við gistum heima hjá þeim og vorum þar í viku. Fórum á ráðstefnu þar sem ég og Berglind fluttum fyrirlestur um “Electrical Energy from River Korpa”.

Jóhanna, Berlind, Guðrún og Helena

 

Hópurinn í heild

 

Við vorum mest allan tíman í höfuðborginni Vilníus, fengum að vita mikið um sögu þeirra og fórum á helstu staðina. Þegar leið á ferðina fórum við í rútuferð til Palanga. Á leiðinni stoppuðum við í Kauruna, fórum í bátsferð og löbbuðum í sandinum. Við gistum á flottu hóteli í Palanga. Daginn eftir var ekki leiðinlegt að fara í spa og enduðum á að fara á Rafsafn (Amber Museum). Í bakaleiðinni skoðuðum við Hill of Crosses og Trakai Island kastalann. Þetta verkefni var aðeins út fyrir þægindaramman en samt sem áður var þetta góð reynsla. Það var roslega gaman að fá að kynnast nýju fólki og heyra þeirra hefðir og siði. Gaman að kynnast nýrri menningu og hafa tengl út í heim.

Berlind og Helena

 

Við þökkum fyrir þetta og ljóst að ferðin var gefandi – eins og svona ferðir eiga að vera 🙂

Sveinn Þ