Þann 10. maí fór fram 6. afhending á landsliðsstyrk á afreksíþróttasviðinu. Þeir nemendur sem hafa tekið þátt í landsliðsverkefnum á vegum sérsambands fá 25.000 kr. styrk. Hér er um að ræða nemendur sem keppa fyrir Íslands hönd (ein keppir fyrir BNA) í yngri landsliðum (nokkrir hafa þó keppt fyrir A landslið).

Afhendingin var sérlega fjölmenn á þessu vori og hafa aldrei fleiri fengið styrk á einni önn, eða alls 20 nemendur sem hver um sig fékk 25.000 kr. í styrk. Talnaglöggir lesendur sjá að um er að ræða hálfa milljón í styrk! Eftirfarandi nemendur fengu styrk að þessu sinni fyrir verkefni sem tilgreind eru hér að neðan.
- Sara Dögg Hjaltadóttir og Sara Sif Helgadóttir tóku þátt í undankeppni í Póllandi með U17 ára landsliði kvenna í handbolta.
- Arnar Máni, Goði Ingvar, Arnór Snær, Tumi Steinn, Daníel Freyr og Hafsteinn Óli tóku allir þátt í verkefni unglingalandsliði karla U17 í Frakklandi í handbolta.
- Bryndís Bolladóttir sundkona var valin til þátttöku á Smáþjóðaleikunum sem fara fram snemmsumars í San Marínó.
- Sigríður Dröfn Auðunsdóttir skíðakona keppti í Tyrklandi á Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar sem fram fer í Erzurum.
- Maksymilian Jan, Vignir Freyr Arason, Hugi Rafn Stefánsson og Jón Albert Helgason ferðuðust alla leið til Nýja Sjálands til að keppa í íshokkí með U20 ára landsliði Íslands.
- Hjalti Jóhannsson og Elvar Snær Ólafsson kepptu fyrir hönd Íslands í Rúmeníu á heimsmeistaramóti í íshokkí.
- Berlind Benediktsdóttir og Andrea Jacobsen handboltakonur kepptu í undankeppni Evrópumótsins á Spáni í mars.
- Sara Margrét Brynjarsdóttir tók þátt í verkefni með bandaríska A landsliði kvenna í handbolta í Bandaríkjunum.
Það þarf varla að taka það fram en auðvitað voru þau landi og þjóð til sóma og stóðu sig vel! Óskum þeim áframhaldandi góðs gengis í sumar.
SÞ, verkefninsstjóri
