Landsliðsstyrkur afhentur í 7. sinn

Landsliðsstyrkur afreksíþróttasviðsins var afhentur í 7. sinn mánudaginn 8. janúar sl. Það var og er alltaf góð stund og í þetta skiptið voru það hvorki fleiri né færri en 19 nöfn sem höfðu tekið þátt í verkefnum landsliða á vegum sérsambands á síðustu önn. Það er glæsilegur árangur og hér gefur að líta yfirlit yfir nemendurna og hvað þau voru að fást við.

Frá 7. afhendingu landsliðsstyrks fyrir haust 2017. Efri röð frá vinstri. Sveinn verkefnisstjóri, Bjarni stofnandi sviðsins, Tumi Steinn, Arnar Máni, Hafsteinn Óli, Daníel Freyr, Arnór Snær, Goði Ingvar, Kolbeinn Tómas, Björgvin Franz, Sigurjón Daði og Ásta Laufey aðstoðarskólameistari. Neðri röð frá vinstri: Brynjólfur Óli, Ragna Sigríður, Bryndís, Jón Albert, Magnús Gauti, Ómar Castaldo, Jóhann Árni. Á myndina vantar Þorleif, Andreu og Bergrúnu Ósk.

Verkefnin sem styrkt voru eru eftirtalin:

Ólympíumót æskunnar þar sem handboltaleikmennirnir Tumi, Arnar, Hafsteinn, Daníel, Björgvin, Þorleifur, Arnór og Goði kepptu fyrir Íslandshönd með U18 ára landsliði Íslands og enduðu í 8. sæti. Þess má geta að þeir kepptu einnig á Sparkassen Cup í Þýskalandi og sigruðu, fyrst íslenskra ka. landsliða til að gera það eftir 20 ára þátttöku í mótinu.

Magnús Gauti borðtennisspilari keppti á sterku móti í Finlandi í byrjun árs og sigraði þar tvær viðreignir sem telst góður árangur.

Norðurlandamótið í sundi skartaði 3 nemendum frá okkur. Bryndís Bolladóttir nældi sér í brons og persónulegar bætingar. Brynjólfur keppti og komst í úrslit í 200m baksundi og var 9.  100m baksundi. Ragna Sigríður keppti svo í 200m skriðsundi þar sem hún hafnaði í 9. sæti.

Andrea Jacobsen lék með A-landsliði Íslands í undankeppni EM í handbolta í tapleikjum gegn sterkum liðum Dana og Tékka.

Jón Albert lék með U18 ára íshokkílandsliði karla á HM 2. deild. Þar endaði liði í 5. sæti.

Ómar, Jóhann og Sigurjón kepptu með U17 ára landsliði Íslands í fótbolta í riðlakeppni EM sem fram fór í Finlandi. Drengirnir stóðu sig vel og komust áfram í milliðriðil.

Frjálsíþróttafólkið okkar lét ekki sitt eftir liggja. Kolbeinn Tómas keppti á Norðurlandamóti Unglinga í fjölþrautum. Þar hafnaði hann í 5. sæti í U18 ára flokki. Bergrún Ósk keppti á HM unglinga í Nottwill í Swiss og hafnaði þar í 1., 4. og 6. sæti í keppni í þrautum.

Við óskum nemendum til hamingju með árangurinn og velfarnaðar á íþrótta og skólaárinu 2018!

Sveinn verkefnisstjóri og þjálfarar

Frétt af bhs.is – Samstarfssamningur við TM í höfn

Þessi frétt er unninn upp úr frétt af http://www.bhs.is/skolinn/frettir/samningur-vid-tm

Miðvikudaginn 8. nóvember var skrifað undir samstarfssamning við TM sem með samkomulaginu styrkir afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla nú sem fyrri ár.  Í dag stunda tæplega 150 nemendur nám á afreksíþróttasviði.

Afreksíþróttasvið er fyrir nemendur sem vilja stunda sína íþrótt með álagi afreksmanna samhliða bóknámi. Boðið er upp á knattspyrnu, körfuknattleik, handbolta, íshokkí auk einstaklingsíþrótta.  Boðið er upp á sérsniðna dagskrá sem hentar vel þeim sem æfa mikið og vilja gott aðhald og fræðslu.

Frá vinstri, Sveinn Þorgeirsson, Gunnar Oddsson og Ársæll Guðmundsson skólameistari.

 

SÞ

Fitlight í fulla notkun

Við höfum undanfarnar vikur verið að þróa okkur áfram með fitlight búnaðinn okkar. Hann gefur okkur ótal möguleika á útfærslum í hraða og snerpuþjálfun. Hér má sjá nokkrar útgáfur af því sem við höfum verið að vinna með.

SÞ

Nýjasta fréttabréfið okkar!

Fyrsta fréttabréf vetrarins leit dagsins ljós fyrir skemmstu. Það var af nógu að taka og erfitt að velja inn í bréfið. Næsta bréf kemur í byrjun nóvember.

AIS_frettabref_sept17

Nemendur á afreksíþróttasviði borðtennis léku listir sínar í Egilshöllinni í október. Hlökkum til að þróa það samstarf áfram með BSÍ.

SÞ

Þökkum ÍSÍ fyrir fræðslu um lyfjamál!

Sem hluti af námi 3ja árs nema á afreksíþróttasviðinu fá nemendur fræðslu í lyfjamálum frá ÍSÍ. Birgir kom og leiddi okkur í sannleikann um hvernig staðið er að eftirliti og framkvæmd lyfjaeftrlits á Íslandi og úti í heimi. Þökkum fyrir heimsóknina!

Styrkur ehf. og Afreksíþróttasvið í samstarf

Okkur er það mikil ánægja að tilkynna að sjúkraþjálfunarstöðin Styrkur ehf. uppi á Höfðabakka og Afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla eru komin í formlegt samstarf um þjónustu sem stöðin og sviðið ætla að veita nemendum Borgarholtsskóla.

Þetta mun verða mikil bæting á þjónustu fyrir sviðið að hafa jafn gott aðgengi að stöð eins og Styrk sem er vel staðsett og útbúin ásamt því að vera með 2 af okkar þjálfurum innanborðs. Þetta gerir allt samstarf mjög skilvirkt og einfalt og munu nemendur okkar njóta þess að hafa aðgengi að tímum samdægurs, því við vitum vel hvað það getur skipt miklu máli fyrir íþróttamenn að fá góða meðhöndlun strax.

Hér á myndinni má sjá frá vinstri; Svein verkefnisstjóra, Ársæl skólameistara, Auði framkvæmdastjóra Styrks, Valgerði og Halldór sjúkraþjálfara sem einnig eru að þjálfa á afreksíþróttasviðinu.

Til hamingju með þetta nemendur afreksíþróttasviðs Borgarholtsskóla og Styrkur!