Síðasta fréttabréf sviðsins á þessu skólaári

Sæl öll,

Hér hafið þið síðasta fréttabréf afreksíþróttasviðs þetta skólaárið. Síðustu tveimur fréttabréfum hefur verið skeytt saman þar sem verkefnisstjóri var í orlofi á þeim tíma sem síðasta bréf átti að koma út.

Við viljum þakka samfylgdina og lesturinn á þessu skólaári og hlökkum til að senda ykkur glóðvolgar fréttir af starfinu næsta haust.

Forsíða 15. fréttabréfsins!

AIS_frettabref_mar18

Sveinn og kennarar sviðsins

Hvernig sæki ég um?

Vorið er komið og nemendur löngu farnir að huga að næstu skrefum varðandi umsóknir í framhaldsskóla. Hér eru skrefin sem þarf að taka til að sækja um hjá okkur. Í dag er í gangi forval og hægt er að velja okkur þar sérstaklega undir bóknámi Borgarholtsskóla.

Til að sækja um í skólann skulu nemendur sækja um á www.menntagatt.is og skila inn á skrifstofu skólans (á skrifstofutíma) umsóknareyðublaði OG meðmælabréfi. Einnig er hægt að skanna og senda slíkt bréf í tölvuvpósti beint á sveinn@bhs.is.

Hér er umsóknareyðublaðið.

AIS_umsokn_ekki_samningur_2018-19

Nemendur sem komast inn í námið fá svo sendan samning um vímuefnaleysi og mætingarskyldu eftir verslunarmannahelgi síðla sumars.

með bestu kveðju,

Sveinn Þorgeirsson

Magnús Íslandsmeistari og Ellert 1. flokks meistari

Við erum ákaflega ánægð með árangurinn sem náðist hjá Magnúsi og Ellert um helgina. Magnús nældi sér í Íslandsmeistaratitil og Ellert vann 1. flokkinn. Þá kepptu einnig Gestur og Þórunn sem ætla sér stærri hluti á næstu mótum.

Magnús til vinstri og Ellert til hægri.

Daníel í sveiflu í Boston

Daníel Sverrir nemandi í dansi á afreksíþróttasviði stóð sig frábærlega ásamt dansdömu sinni Sóley er þau kepptu dagana 15.-18. febrúar í Boson. Þar tóku þau þátt í danskeppni Eastern United States Dancesport Championships þar sem þau voru í fyrsta sæti í standard dönsum í hópi ungmenna undir 21 árs og þá höfnuðu þau í öðru sæti í hópi Amateur Rising star.
Hér má sjá Daníel ásamt Sóleyju. Þau eru dansparið sem er til vinstri við miðju.

með hamingjuóskum

Verkefnisstjóri og þjálfarar

Steindór í Katar

Steindór, nemandi á einstaklingsíþróttasviði ferðaðist dagana 12.-18. febrúar til Katar þar sem hann var staddur með U20 landsliðinu í keilu. Þetta var geggjuð ferð í alla staði og lærði ég ýmislegt nýtt, ekki bara keilulega séð heldur líka bara andrúmsloftið í borginni Doha. Þetta var þvílik upplifun og forréttindi að fá að fara þangað á vegum landsliðs. Árangurinn var ágætur (meðalskor um 170) en því miður komst hann ekki  í masterinn eins og hann stefndi á fyrir mótið.
Snyrtilegt í Katar
Steindór hér til vinstri ásamt félaga sínum í landsliðinu í keilu.
Steindór og borgin í bakgrunni
Það vantar ekki turnana í Katar

Steindór leggur alla áherslu á næsta verkefni sem er mun stærra. Evrópumót unglinga 2018 sem haldið verður í Álaborg dagana 22. mars til 2. apríl. Eins og Steindór segir sjálfur “Þannig núna verður tekið á því. Geggjað að hafa afrekið þarna á milli til að fá aukin styrk og halda góðu mataræði því það skiptir miklu máli. ” Það verður gaman að fylgjast með Steindóri á næstunni og hvort hann nái ekki markmiðum sínum í vor – áfram Steindór!

SÞ

Opnar æfingar á afrekssviðinu

Það var okkur mikil ánægja að taka á móti nemendum úr 9. og 10. bekk á opnar æfingar í körfubolta, handbolta, golfi og fótbolta á afrekssviði. Auk þess buðum við upp á opnar mælingar þar sem nemendur fengu að bera sig saman við getu framhaldsskólanemanna.

Körfuboltahópurinn sem mætti hjá Lárusi

 

Fótboltahópurinn sem mætti í Egilshöllina hjá Gunna, Sigga og Bjarna.
Fáninn góði.
Mælingar í boði sviðsins. Hér er mæling á stökkhæð.
Röðin í stefnubreytingaprófið.
Stefnubreyting í prófinu.

Fréttabréf fyrir desember 2017 og janúar 2018 gjörið svo vel

Hér er nýjasta fréttabréfið okkar gjörið svo vel.

Bendum sérstaklega á tækifæri fyrir 9. og 10. bekk til að koma í heimsókn næsta fimmtudag. Meira um það hér:

AIS_frettabref_jan18

AIS_frettabref_jan18

Opnar mælingar 15. feb

Grunnskólanemendum stendur til boða að meta sig við líkamleg próf afreksíþróttasviðsins og fá endurgjöf strax. Einnig verður Fitlight þraut á boðstólunum. SJÁ: OPNAR MÆLINGAR 15. feb.

SMELLTU-> Körfuboltaæfing með Lárusi Jónssyni í Dalhúsum

SMELLTU-> Golfæfing með Davíð Gunnlaugssyni í Korpu

SMELLTU-> Handboltaæfing með Arnari Gunnarssyni og Roland Eradze

SMELLTU-> Fótboltaæfing með Bjarna Jó, Sigga Þorsteins og Gunna Má

 

SÞ