Sýnum karakter þema haustsins: ÁHUGI

Afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla er virkur þátttakandi í átakinu „Sýnum Karakter“ þar sem áhersla er lögð á að vekja íþróttafólk, þjálfara og aðra til umhugsunar um mikilvægi þess að í íþróttaþjálfun sé þjálfuð upp sálfræðileg færni og félagsfærni líkt og líkamleg færni og tæknileg færni. Á hverri önn leggur Afreksíþróttasviðið áherslu á eitt af þeim 6 þemum sem tekin eru fyrir í átakinu. Í haust er þemað „Áhugi“.

Áhugi, eða áhugahvöt, segir til um af hversu miklum krafti og áhuga við stundum okkar íþrótt. Áhugahvöt íþróttafólks snýst um tvennt. Í fyrsta lagi hvata, hvers vegna einstaklingurinn fer á æfingar og leggur sig fram. Þessi ástæða getur haft mikið um það að segja hversu mikla ánægju einstaklingurinn fær útúr íþróttaiðkuninni og hversu mikið einstaklingurinn er tilbúinn að leggja á sig.  Í öðru lagi snýst áhugahvöt um styrkleika hvatans, hversu miklu máli hvatinn skiptir einstaklinginn og hversu hart einstaklingurinn er tilbúinn að leggja á sig vegna hvatans.

Ýmislegt verður gert í tengslum við Sýnum karakter þemað „áhuga“ á Afreksíþróttasviðinu í haust. Meðal þess sem verður gert er að hvetja nemendur til lesturs stuttra greina og áhorfs á myndbönd um áhuga. Fyrsta greinin sem við birtum er af síðunni „Psychology today“, þar er fjallað um áhugahvöt (motivation) og hvernig mikilvægt er að halda áhuganum á erfiðum tímum í íþróttaiðkuninni.

https://www.psychologytoday.com/us/blog/the-power-prime/200910/sports-what-motivates-athletes

Fyrir þá sem áhugasamir eru um Sýnum Karakter átakið bendum við á heimasíðu þess www.synumkarakter.is

Með afreks-kveðju

Hreiðar Haraldsson og Sveinn Þorgeirsson

Vel heppnuð nýnemaferð – nememdur til fyrirmyndar

Nemendur þóttu til fyrirmyndar í nýnemaferð afrekssviðsins á föstudaginn síðasta, 31. ágúst. Farið var með rútu austur fyrir fjall og þar var farið í leiki í samstarfi við Iceland Activities sem við þökkum fyrir góða dagskrá. Eitt aðalatriðið var svo hjólaferð sem reyndi þó nokkuð á færni nemenda.

Nemendur afrekssviðsins á hjólunum góðu 🙂

Þessi ferð tókst með miklum ágætum og lofar góðu fyrir vinnu nemendanna í vetur. Hlökkum til að starfa með þessum flotta hópi!

með bestu kveðju

Sveinn verkefnisstjóri, Hreiðar og Brynjar.

Fréttabréfið fer fljótt á flug

Það er stefna sviðsins að halda áfram að veita upplýsingar í tölvupóst formi í gegnum fréttabréf sviðsins. Á þeim póstlista verða nemendur og foreldrar ásamt öðrum áhugasömum, svo sem þjálfurum og öðru fólki tengdu íþróttahreyfingunni.

Fylgist með. Áætlað er að fyrsta bréf haustsins komi út núna um miðjan september.

Forsíða 15. fréttabréfsins!

SÞ

Bergrún kom, sá, og sópaði að sér verðlaunum!

Haustið hefur farið kröftuglega af stað hjá okkar nemendum. Einn nemandi sem hefur verið að gera frábæra hluti er hún Bergrún Ósk. Hún keppti nýverið á Evrópumeistaramóti í Berlín og stóð sig hreint frábærlega. Svo vel að hún fékk góða umfjöllun í fréttum RÚV (sjá hér að neðan) Virkilega vel gert Bergrún!

Hér má sjá innslag með viðtali við Bergrúnu í fréttum RÚV.

http://www.ruv.is/frett/bergrun-osk-med-silfur-jon-margeir-i-7-saeti

Hér er svo önnur frétt frá því þegar Bergrún tryggði sér brons í 200m spretti í flokki T37, flokki hreyfihamlaðra.

http://www.ruv.is/frett/frabaer-endasprettur-tryggdi-bergrunu-brons

með kærri kveðju,

Sveinn og þjálfarar afreksíþróttasviðs

 

Enn styrkist aðstaðan fyrir nemendur

Þann 8. ágúst nk. verður fjölnotaíþróttahús við Egilshöllina afhent til notkunar fyrir Fjölni, Borgarholtsskóla og aðra leigjendur. Þetta er okkur gríðarlega mikið fagnaðarefni enda verður góð aðstaða okkar enn betri með aðgengi að þessari frábæru aðstöðu.

Þessi salur hefur lengið verið í umræðunni, en eftir að ákvörðun var tekin og vinnuvélar mættu á svæðið gerðust hlutirnir hratt. Framkvæmdin hefur tekið tæpt ár frá því þær hófst, seint síðasta haust í fyrra.

Mynd frá framkvæmdum í sumar. Hér átti m.a. eftir að parketleggja og setja inn mörk og körfur.

Í vetur koma nemendur í handbolta og körfubolta til með að æfa í fjölnotasalnum ásamt mögulega fleiri greinum í framtíðinni. Þessar greinar bætast því í hóp fótbolta, styrkþjálfunar, frálsíþrótta, borðtennis, keilu og íshokkí sem áður hafa verið kenndar í Egilshöllinni. Í dag er það því aðeins golfíþróttin sem sækir aðstöðu utan veggja hallarinnar, en þó hefur golfið verið á grasinu öðru hverju undanfarin misseri.

Það er því óhætt að segja að tilhlökkunin fyrir nýja salnum og starfi vetrarins sé farin að byggjast upp hjá þjálfurum og vonandi nemendum sviðsins líka.

Með bestu kveðju,

Verkefnisstjóri SÞ

Minnum umsækjendur á að skila inn SKRIFLEGRI umsókn einnig

Bréf til umsækjenda á afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla vorið 2018

Kæri umsækjandi,

Um leið og við þökkum þér fyrir sýndan áhuga á afreksíþróttasviði Borgarholtsskóla viljum við benda þér á að það er afar mikilvægt að ganga frá umsókn á sviðið SKRIFLEGA samhliða rafrænni umsókn. Sá hluti snýr að íþróttalegum bakgrunni þínum. Hafir þú þegar gengið frá þessum hluta þökkum við þér kærlega fyrir.

Biðjum við þig að fylla út umsóknareyðublað sog skila á skrifstofur skólans á skrifstofutíma eða á sveinn@bhs.is fyrir 12. júní nk. Eyðublaðið má nálgast hér: Umsokn 2018 afrekssvid 

Í því felst að fylla út meðfylgjandi eyðublað og skila inn meðmælum frá þjálfara sem hefur starfað með þér á undanförnum misserum.

Við minnum á að almennur umsóknarfresturinn er til 8. júní nk. og niðurstöðu er að vænta um viku síðar. Ef einhverjar spurningar vakna bendum við á vefsíðu sviðsins (http://afrek.bhs.is/) þar sem ýmsar upplýsingar er að finna. Einnig má beina fyrirspurnum til sviðsstjóra, tölvupóstfang sveinn@bhs.is.

Með kærri kveðju

Sveinn Þorgeirsson, verkefnisstjóri Afreksíþróttasviðs Borgarholtsskóla

Milljónastyrkur fyrir nemendur afreksins til Noregsferða

Það er okkur mikil ánægja að tilkynna að skólinn okkar í samstarfi við íþróttabraut framhaldsskólans í VOSS í Noregi hafa fengið NORDplus styrk. Styrkurinn er til 3ja ára og byggir á því að hópur nemenda frá Noregi koma hingað til lands og við förum út til þeirra. Norski skólinn á veg og vanda að umsókninni og er hún sniðin að handbolta og fótboltanemendum.

Fyrsta ferð er fyrirhuguð strax á næstu önn. Nánari upplýsingar um uppsetningu og framkvæmd koma í sumar og verkefnið fer á fullt strax á fyrstu vikum næstu hausthannar.

Til hamingju með þetta kæru nemendur,

Hlökkum til að fara til Noregs og læra!

Sveinn og kennarar

Landsliðsstyrkur fyrir vor 2018

Landsliðsstyrkur afreksíþróttasviðs var veittur nú fyrir helgi og þáðu 17 nemendur styrk. Eins og svo oft áður eru verkefnin fjölbreytt eins og greinarnar sem nemendur koma úr og hér er stutt samantekt.

Arnór Snær, Arnar Máni, Daníel Freyr, Viktor Gísli og Hafsteinn Óli kepptu með U18 ára handboltalandsliðinu og sigruðu Sparkassen mótið í Þýskalandi.

Bergrún Ósk keppti fyrir hönd Íþróttafélags fatlaðra á Ítalíu í 100, 200 og 400m hlaupi ásamt langstökki.

Brynjólfur Óli var á Tenerife með sundlandsliðinu í verkefni sem er liður í undirbúningi fyrir Summer Youth Olympics í október í Argentínu.

Daníel Sverrir Guðbjörnsson ásamt dansfélaga sínum urðu Austur-Bandaríkjameistarar 2018 og eru sem stendur í 13. sæti í Evrópu yfir sterkustu pörin.

Jóhann Árni og Valgeir Lunddal kepptu í milliriðli fyrir undankeppni Evrópumóts U17 í fótbolta. Þar spiluðu þeir við stórþjóðir í fótboltanum, Holland, Ítalíu og Tyrkland, en máttu sætta sig við tap að þessu sinni.

Viktor Andri og Ómar Castaldo  tóku þátt í æfingamóti á vegum U17 ára landsliðsins í fótbolta í Hvíta-Rússlandi þar sem 4 sigrar unnust og 1 tap var staðreyndin.

Ellert Kristján og Magnús Gauti eru úti í Grænlandi þegar þessi frétt er skrifuð að keppa í borðtennis fyrir Íslands hönd.

Jón Albert keppti í Króatíu með U18 ára landsliði Íslands í íshokkí. Leikið var á Heimsmeistaramóti 2. deild B og töpuðu Jón og félagar öllum sínum leikjum því miður.

Steindór Máni keppti með U20 í keilu í Katar í febrúar og Evrópumóti unglinga í Danmörku þar sem Steindór byrjaði mótið afar vel og endaði í 26. sæti, og rétt missti af þátttökurétt í Masternum sem 24. efstu sætin gáfu.

Frá 8. afhendinglandsliðsstyrks í Borgarholtsskóla 17. maí 2018. Efri röð frá vinstri, Daníel Sverrir, Viktor Gísli, Goði Ingvar, Ómar Castaldo, Arnór Snær, Daníel Freyr, Arnar Máni, Hafsteinn Óli, Viktor Andri og aðstoðarskólameistari Ásta Laufey. Neðri röð frá vinstri; Valgeir Lunddal, Jóhann Árni, Magnús Gauti, Ellert Kristján, Steindór Máni, Brynjólfur Óli, Jón Albert og Sveinn verkefnisstjóri afreksíþróttasviðs. Á myndina vantar Bergrúnu Ósk Aðalsteinsdóttur.

Svona lítur viðurkenningaskjalið út sem nemendur fengu. Til hamingju aftur öll!

með vor-kveðju!

Sveinn og kennarar á afreksíþróttasviði

Lokaverkefnisvika

Í þessari viku fluttu nemendur á 3ja ári hjá okkur lokaverkefni sitt á afreksíþróttasviðinu. Eins og sjá má voru viðfangsefnin af ýmsum og áhugaverðum toga. Þó tengdist þetta allt heimi íþróttanna og íþróttamannsins. Virkilega áhugaverðir fyrirlestrar og pælingar.

Hluti af þeim lokaverkefnum sem kynnt voru á mánudaginn sl.

SÞ