Hér er nýjasta fréttabréfið gjörið svo vel 🙂
SÞ

#afreks #AFR
Það var mikil jákvæð spenna í loftinu í gær þegar búningarnir voru afhentir með nýju merki skólans. Nemendur fengu þar utanyfirtreyju, boli, stuttbuxur og sokka. Fyrsta árið fékk svo töskur, annað ári nuddrúllur og þriðja árið jafnvægispúða líkt og venjan er. Á öllum æfingum eftir þetta eiga nemendur að klæðast þessum fatnaði svo þar verður mikill og góður heildarbragur á hópnum eftir þetta.
Við sama tækifæri var handsalaður samningur við Styrk ehf sjúkraþjálfunarstöð uppi á Höfða. Í gegnum Styrk fá nemendur sviðsins frábæran aðgang að tímum í sjúkraþjálfun hjá Valgerði Tryggvadóttur sem starfar hjá Styrk, og vinnur einnig hjá okkur á afreksíþróttasviðinu við kennslu.

SÞ
Það var góð heimsókn sem drengirnir í golfinu fengu í vikunni þegar afreksstjóri GSÍ Jussi Pitkänen kom við í Korpunni. Þar lagði hann inn nokkur góð ráð fyrir nemendurna og ræddi við þá um margt er tengist því að ná árangri í golfíþróttinni. Hér er svo mynd af hópnum við tilefnið!
Óskum drengjunum góðs gengis á æfingum í vetur og þökkum Jussi fyrir komuna!
SÞ og Davíð Gunnlaugsson
Kæru lesendur,
Hjálagt er 17. fréttabréf afreksíþróttasviðs og það næst síðasta þetta árið. Endilega hafið samband ef það er eitthvað sem ykkur langar að vita meira um sviðið.
með kærri kveðju
Sveinn Þorgeirsson
Fimmtudaginn 1. nóvember nk. kl. 8:20 í Egilshöll verður þjálfurum og öðrum áhugasömum boðið að koma og skoða starfið okkar. Á þessum tíma fer fram hefðbundin æfing hjá okkur og eftir hana verður boðið í kaffispjall og bakkelsi.
Endilega látið vita ef þið hyggist koma til að við getum áætlað í kaffið. Hlakka til að sjá sem flesta og eiga góðar samræður.
Við tókum á móti flottum nemendum úr sundi, karate, handbolta, fótbolta og körfubolta á fimmtudaginn sl. Þessir nemendur höfðu allir áhuga á að kynna sér hvernig æfingarnar eru á afrekinu og fengu að kynnast því af fyrstu hendi. Við þökkum kærlega fyrir sýndan áhuga og vonumst til að fá umsóknir frá þesusm flottu íþróttanemendum!
Sveinn Þorgeirsson, verkefnisstjóri
Hér má lesa ferðasögu þeirra Ísabellu og Maríu í ferð þeirra í VOSS í Noregi á vegum skólans.
Eftir morgunmat lögðum við af stað niðri í skola þar sem við áttum að fara á fyrirlestur og á æfingu eftir það. Þegar við mættum á svæðið var æfingin að byrja, þannig við drifum okkur í föt og á æfingu. Við æfðum á gervigrasi fyrir utan skólann. Þar sem þar er flott aðstæða. 2 gervigrasvellir, 2 grasvellir og track and field völlur. Á æfingunni, hituðum við upp með sendingum og tækni. Eftir það var tekin snerpa og drillur síðan var tekið spil á litlum velli, á lítil mörk, við æfðum með strákum fram að spili.
Eftir æfingu fórum við í fimleikasalin þar sem við hittum við þjálfarann Jóakim, og lagði hann fyrir okkur margar þrautir (t.d hoppa á púða þar sem margir féllu á andlitið, hoppa í heljarstökk o.fl.), og þegar í heildina var litið var það Gunni Már sem kom best út úr fimleikunum.
Þegar fimleikunum var lokið var frjáls tími til klukkan 16:00, þar sem næsta æfing myndi byrja. Sumir nýttu tímann í legu, en við stelpurnar exploruðum skólann og bæinn, og komumst að því að þetta er fallegur og krúttlegur bær.
Svo var haldið og æfingu. Þar sem stelpurnar á æfingu hjá Mfl FBK-Voss (sem eru í 3. Efstu deild af 5). Strákarnir fóru á æfingu hjá Mfl Karla hjá FBK-Voss (sem eru í 5. Efstu deild af 8). Segja má að við höfum bætt gæðin báðu meigin. Það er offseason hjá stelpunum núna en þær spiluðu síðasta leikin sinn á sunnudaginn, þannig leikmennirnir sem búa í Bergen voru ekki á staðnum sem voru þeirra sterkustu. Á æfingunni djokaði þjálfarinn með það að hann væri búin að kaupa 4 íslenska leikmenn Hegranesi. Æfingin var flott byrjuðum á æfingu mjög svipuð Finnska reitnum sem er Possesion æfing, en norðmaðurinn er mikið fyrir sendingar og tempo hér í Noregi. Svo var tekið spil á ½ velli, þar sem Íslendingunum var skipt niður í sitthvort liðið.

Eftir æfingu löppuðum við heim í kvöldmat samferða Ingibjörgu sem á heima í Voss og spilar með liðinu sem við æfum með.
Eftir mat ætluðum við stelpunar í sund en þegar þangað var komið var hún lokuð. Þá sáum við að það var leikir í gangi og horfðum við á fyrri hálfleik og förum í bæjarrölti eftir það. Þegar heim var komið var spila borðtennis, Pool og spil. Svo var undirbúið sig fyrir morgun daginn. Þar sem við förum til Bergen og Æfum með Brann.
Ísabella Anna og María Eir

Sæl öll,
Fyrsta ferðin er hafin í samstarfi VOSS skólans og Borgarholtsskóla. Verkefnið fékk styrk frá Nordplus og munum við því fá heimsókn í mars nk. frá þeim. Verkefnið er til 2ja ára og mun því annar hópur frá Borgarholtsskóla fara á næsta ári til VOSS.
Hér er ferðasaga frá 1. degi frá þeim Viktori og Valgeiri
Jæja, þá hefst ferðalagið sem við öll höfum beðið eftir. Við ætlum að segja ykkur aðeins frá því hvernig okkar fyrsti dagur var. Þetta byrjaði allt á því að rútubílstjórinn lenti í Breiðholtinu en ekki á flugvellinum. Sem betur fer náðum við að breyta tveimur flugum yfir í eitt. Flogið var beint til Bergen og þaðan keyrt í rúmlega eina og hálfa klukkustund til Voss þar sem við dveljum yfir vikuna. Hótelið er sæmilegt, fínn matur, lélegt klósett, og góð rúm. Við fengum hakk og spagetti í kvöldmat fyrsta daginn sem var upp á 10. Eftir mat skelltum við okkur í Pool og Ping Pong. Eftir það fórum við svo að íhuga að svefninum um klukkan 10:30. Mjög skemmtilegur dagur að baki og allir hressir.
Hér má sjá hvar VOSS er staðsett á landakorti 🙂
með nemendum í för eru þeir Gunnar Már og Sigurður Þórir
SÞ
Kæru nemendur í 9. og 10. bekk grunnskóla,
Í hausthléi grunnskóla Grafarvogs munum við opna æfingar fyrir heimsóknum í tíma til okkar. Þið skráið ykkur á þetta eyðublað hér:
Frekari upplýsingar eru í skráningareyðublaðinu. Ef eitthvað er óljóst, endilega hafið samband við verkefnisstjórann á sveinn@bhs.is.
Hlökkum til að sjá ykkur á æfingu!
Undanfarna tvo vetur hefur sviðið staðið fyrir útgáfu fréttabréfs sem best nemendum, forráðamönnum, þjálfurum, kennrurum skólans og öðrum áhugasömum. Hér fyrsta fréttabréf þessa skólaárs fyrir september mánuð.
Góðar stundir!
SÞ