Þýsku áfanginn 503 fór til Berlínar í skoðunarferð og það vildi svo heppilega til að Füchse var að spila á sunnudeginum, svo Logi fékk þá geggjuðu hugmynd um að fá að horfa á æfingu hjá þeim á laugardegi svo það var sett sig í samband við Bjarka má og fengum við Logi að fara á æfinguna ( og með leyfi frá kennurum til að komast undan dagskrá ) æfingin var í rólegri kantinum og hitað var upp í skallatennis og allir leikmenn liðsins voru frekar lúnknir í því. Þar sem þetta var síðasta æfing fyrir leik hjá þeim fóru þeir yfir kerfi og eftir það lauk æfingunni. Það sem var athugavert á æfingunni var hvað allir leikmennirnir voru rólegir og yfirvegaðir. Svo tókum við líka eftir að sumir þeirra voru bara stórir krakkar sem finnst gaman að leika sér. Daginn eftir fór svo hópurinn á leik Füchse Berlin – Erlangen sem endaði með sigri Füchse Berlin.
Það er skemmtileg tölfræði í U17 ára landsliði karla sem á verkefni framundan í Frakklandi nú eftir fáar vikur. Þarna eigum við 7 fulltrúa eða 44% liðsins í þeim Arnari, Arnór, Daníel, Óla, Jóni, Tuma og Goða, og þess að auki er Aron Breki einnig hjá okkur, en hann er varamaður í þessum hópi. Við óskum landsliðinu góðs gengis á æfingum og í verkefninu í Amiens í Frakklandi.
Þess má geta að þeir nemendur sem fara í út í landsliðsferðir fá landsliðsstyrk í vetur fyrir ferðinni og það er því stór hópur í vetur sem fær slíkan styrk.
Bryndís Bolladóttir nemandi af náttúrufræðibraut og afreksíþróttasviði varð í 1. sæti í smásagnasamkeppni sem Kennarasamband Íslands í samstarfi við Heimili og skóla, stóð fyrir. Bryndís hlaut verðlaunin fyrir söguna Hún kenndi mér allt sem ég kann – sigursaga þyrnidansara í þunglyndi. Úrslit voru tilkynnt við hátíðlega athöfn í Kennarahúsinu miðvikudaginn 5. október.
Keppendum var skipt í fimm flokka en þeir voru:
leikskólinn
grunnskólinn 1. – 4. bekkur,
grunnskólinn 5. – 7. bekkur
grunnskólinn 8. – 10. bekkur
framhaldsskólinn.
Allar verðlaunasögurnar verða birtar í Skólavörðunni, tímariti Kennarsambands Íslands.
Verðlaunahafarnir fengu Kindle-lestölvu auk blóma og viðurkenningarskjals.
Þátttaka í keppninni var mjög góð, en tæplega tvö hundruð smásögur bárust af öllum skólastigum. Dómnefndina skipuðu Kristín Ómarsdóttir skáld, Kristján Jóhann Jónsson, dósent á Menntavísindasviði HÍ, og Bryndís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SAMFOK.
Meðfylgjandi mynd er tekin af vef Kennarasambands Íslands og sýnir hún verðlaunahafa og dómnefndina.
Tvær handboltastelpur úr afrekinu, þær Helena og Berglind voru valdar til að vinna að Evrópuverkefni í síðasta mánuði. Við fengum þær til að lýsa þessu verkefni stuttlega fyrir okkur.
Instem Evrópuverkefni
Við tókum þátt í skemmtilegu Evrópuverkefni í skólanum ásamt sex öðrum nemendum. Verkefnið fólst í því að hafa einn nemanda heima hjá okkur í viku og að vera með þeim öllum stundum.
Nemendurnir sem tóku þátt í verkefninu komu frá Ítalíu, Litháen, Tyrklandi og Luxemborg. Frá hverju landi komu tveir nemendur og tveir kennarar. Við fengum stelpur frá Tyrklandi og Litháen.
Við tókum þátt í ýmsum verkefnum í skólanum og skoðuðum helstu staði landsins t.d. Árbæjarsafnið, Reykjadal og auðvitað Gullnahringinn. Þetta var ótrúlega þroskandi og gefandi verkefni. Þá sérstaklega að kynnast þessum krökkum og þeirra menningarheimi og fara með þeim í allar ferðirnar.
Næsta vor förum við svo til Litháens í viku og þá munum við fá að kynnast einhverri fjölskyldu og taka þátt í skemmtilegum ævintýrum
Við mælum með fyrir alla sem sem eiga þess kost að taka þátt í svona verkefni.
Við fengum góða heimsókn í áfanganum afrekshugsun II frá Kristni Björgúlfssyni frá Leikmannasamtökum Íslands og Arnari Theodórssyni umboðsmanni á réttindum leikmanna og mikilvægum atriðum sem snúa að samningagerð leikmanna við íþróttafélög. Þökkum þeim kærlega fyrir komuna!
Hin árlega nýnemaferð nemenda á Afreksíþróttasviðs Borgarholtsskóla var farin 2. september síðastliðinn. Dagurinn byrjaði snemma, 55 nemendur ásamt þremur kennurum fóru með rútu til Hveragerðis þar sem hópur frá Iceland Activites tók vel á móti okkur. Þau höfðu skipulagt marga skemmtilega hópeflisleiki sem reyndi á samvinnu og hina ýmsu færni.
Greinilegt var að í hópnum okkar er nóg af flottu íþróttafólki með keppnisskap því þau tóku að sjálfsögðu þátt af fullum krafti og stóðu sig vel. Eftir leikina var komið að hápunkti ferðarinnar en það var að fara í aparóluna. Aparólan er um 90 metra löng og strengd þvert yfir Reykjafoss í Varmá og fengu allir að fara eina sallýbunu yfir.
Eftir aparóluna var farið í sund þar sem einhverjir sóluðu sig í heita pottinum á meðan aðrir sýndu listir sínar á stökkbrettinu. Þá var komið að öðrum hápunkti að mati margra en það var að fá sér hádegismat. Hoflandssetrið tók vel á móti okkur með hlaðborði, þar sem boðið var upp á lambakjöt með öllu tilheyrandi.
Mjög vel heppnuð ferð, nemendur til fyrirmyndar og allir virtust njóta dagsins í botn. Við hlökkum til að vinna með þessum flottu krökkum á afrekssviðinu í haust.
Það er okkur á afreksíþróttasviðinu mikið ánægjuefni að tilkynna að bóklegi hluti okkar náms hefur verið metinn til þjálfarastigs ÍSÍ 1. og 2. almenns hluta. Þetta gerir það að verkum að þeir nemendur sem fara í gegnum 3 ár hjá okkur í núverandi skipulagi útskrifast með skírteini upp á þjálfunarmenntun frá ÍSÍ, stig 1. og 2. Þetta er okkur afar jákvæð viðurkenning og sterkt fyrir okkar nemendur sem sumir hverjir eiga eftir að koma nálægt þjálfun í framtíðinni. Bóklegi hluti okkar náms er settur upp sem einn tími í viku allar 6 annirnar. Þemun eru í eftirfarandi röð: næring og heilsa, þjálffræði, íþróttasálfræði, afrekshugsun I, afrekshugsun II og lokaverkefni.
Þjálffræðibókin sem við kennum í gegnum okkar bóklegu tíma. Hún er kjölfestan ásamt viðeigandi aukaefni.
Þjálfaramenntun ÍSÍ er áfangaskipt fræðslukerfi í fimm þrepum þar sem skilgreindar eru kröfur um menntun fyrir ákveðna markhópa. Þetta kerfi er samræmt fyrir allar íþróttagreinar. Fræðslukerfið er í samræmi við samræmdar kröfur sem settar hafa verið fram af “Network of Sport Sciences in Higher Education” (ENSSHE). Jafnframt hafa samtök frjálsra íþróttasamtaka í Evrópu (ENGSO) samþykkt að leggja beri aukna áherslu á menntun þjálfara, leiðbeinenda og leiðtoga fyrir íþróttastarf barna og unglinga.
Menntun á fyrstu þrem þrepunum, sem kallast almennur hluti, er innan íþróttahreyfingarinnar. Þjálfarastig 4 og 5 á að kenna á háskólastigi. Eins og er þá er aðeins hægt að taka þrjú þrep í almennahlutanum. Fyrstu þrjú þrepin eru hvert um sig 120 kennslustundir að lengd: Þeim er ýmist skipt niður í 20 stunda afmarkaðar einingar eða styttri einingar. Ýmist eru þessar einingar almennar og í umsjón ÍSÍ eða sérhæfðar í umsjón sérsambands. Almenni hluti námskeiðanna sem er í höndum ÍSÍ fer fram í fjarnámi.
Stefnuyfirlýsingu um þjálfaramenntun má nálgast hér.
Þjálfari 1 – átta vikna námskeið í fjarnámi
Skilgreining:
Að loknu þessu stigi á þjálfarinn að geta skipulagt og stjórnað æfingatíma hjá börnum og unglingum á byrjendastigi. Til þess þarf hann að hafa grundvallarþekkingu á líkamlegum og andlegum þroska barna og unglinga. Hann þarf að þekkja starfsemi líkamans auk helstu aðferða við kennslu. Þjálfarinn á að kunna helstu grunnatriði í tækni, leikfræði og reglum í séríþróttagrein.
Þjálfari 2 – fimm vikna námskeið í fjarnámi
Skilgreining:
Að loknu þessu stigi á þjálfarinn að geta þjálfað unglinga og fullorðna sem hafa árangur í keppni að markmiði. Til þess þarf hann að hafa haldgóða þekkingu á starfsemi líkamans og skipulagi þjálfunar til lengri og skemmri tíma. Hann þarf að hafa undirstöðuþekkingu á hreyfingarfræði og kunna grunnatriði í næringarfræði og sálfræði íþrótta.
Þjálfarinn þarf að hafa fengið þjálfun í að tjá sig og koma fram fyrir framan hóp af fólki.
Þjálfarinn þarf að hafa góða þekkingu á tækni, leikfræði og reglum í séríþróttagrein. Auk þess þarf hann að kunna skil á helstu þjálfunaraðferðum viðkomandi greinar.
Hann Birnis Snær Fjölnismaður hefur nýlokið 6 önnum á afreksíþróttasviði Borgarholtsskóla og er svo sannarlega að standa sig vel með úrvalsdeildarliði Fjölnis. Hann skoraði meðal annars tvö mörk gegn Þrótti í leik nýverið og var “allt í öllu í sóknarleik” liðsins. Það er virkilega gaman að heyra 🙂 Meðfylgjandi er frétt um frammistöðu liðsins þar sem Birnir er sérstaklega nafngreindur. Mynd af mbl.is