Það er ekki ólíklegt að mjaðmirnar þínar séu að fá að finna fyrir samkomubanninu. Við sitjum og liggjum eflaust meira en venjulega, og þess utan hreyfum okkur ívið minna en venjulega.
Þá er kjörið að dekra aðeins við mjaðmasvæðið með þessum góðu æfingum frá Valgerði Tryggvadóttur, sjúkraþjálfara afreksíþróttasviðsins.
pisitll eftir Valgerði Tryggvadóttur sjúkraþjálfara og Svein Þorgeirsson verkefnisstjóra
Valgerður er sjúkraþjálfari hjá Styrk ehf. og á afreksíþróttasviði Borgarholtsskóla.
Styrkteymi Afreksíþróttasviðs Borgarholtsskóla samanstendur af reyndum íþróttafræðingum og sjúkraþjálfara. Unnið er markvisst að því að kynna fyrir nemendum mismunandi þjálfunaráherslur til að hámarka árangur sinn í íþróttum. Það er lögð rík áhersla á að þau þekki líkama sinn og læri inn á sín mörk hvað þjálfunarálag varðar til að vinna gegn álagsmeiðslum. Þjálfarar mæta þeim því þar sem þau eru stödd í sinni íþrótt með tilliti til íþróttar og aðstoða við að stýra álaginu og æfa framhjá meiðslum.
Í þjálfuninni er farið yfir mikilvægi góðs grunnþols og þreyta nemendur þolpróf í upphafi annar. Ef þörf er á fá nemendur leiðbeiningar varðandi hvernig má bæta þolið. Þolþjálfun bætir frammistöðu íþróttamannsins og hefur einnig forvarnargildi gagnvart meiðslum. Gott grunnþol flýtir fyrir endurheimt og gerir okkur kleift að klára æfingar og keppnir með góðri tækni og líkamsbeitingu. Það gerir það að verkum að við höfum úr fleiri hreyfingum að velja til að bregðast við mismunandi áreiti í keppni og drögum því úr endurteknu álagi á ákveðin svæði. Einnig bætir gott þol svefn og getur haft jákvæð áhrif á andlega líðan og einbeitingu til náms og keppni.
Algeng ástæða meiðsla við keppni er þegar leikmenn þurfa að stoppa hreyfingu sína skyndilega og því er farið vel yfir bremsuþátt hreyfinga í þjálfun okkar hjá afrekinu. Aðrir þættir sem lögð er rík áhersla á eru snerpa og viðbragð, tækni við almennar styrkjandi æfingar, hlaup og hopp. Stuðst m.a. við viðurkennt stökkprógramm sem heitir Sportsmetrics og sérstaklega hannað til að draga úr meiðslum og kenna uppstökks og lendingartækni í stigvaxandi útfærslum.
Þegar meiðsli gera vart við sig er nauðsynlegt að draga tímabundið úr álagi á meiðslasvæðinu. Það er mjög mikilvægt að draga ekki úr almennu æfingaálagi samhliða því. Ef það er dregið úr almennu æfingaálagi við meiðsli er hætta á að íþróttamaðurinn sé ekki í standi til að hefja æfingar og keppni af krafti aftur þegar búið er að vinna með meiðslin sjálf og hann verður því útsettari fyrir endurteknum meiðslum. Í meiðslum þarf íþróttamaðurinn því að taka ábyrgð á þjálfun sinni og vera hugmyndaríkur við að finna æfingar sem gera honum mögulegt að æfa af fullum krafti án þess að setja álag á meiðslasvæðið. Sjúkraþjálfari er til staðar á öllum æfingum afreksíþróttasviðsins til að ráðleggja nemendum varðandi meiðsli og æfingar.
Valgerður sjúkraþjálfari með nemanda í Kaupmannahafnarprófinu á aðfærsluvöðvum læris.
Auk eftirlits sjúkraþjálfara með æfingum gefst nemendum
kostur á einstaklingstíma í sjúkraþjálfun, utan skólatíma og án biðtíma, hjá
Styrk sjúkraþjálfunarstofu á Höfðabakka 9. Best er að panta tíma í gegnum
netfangið valgerdur@styrkurehf.is.
Það var mikil jákvæð spenna í loftinu í gær þegar búningarnir voru afhentir með nýju merki skólans. Nemendur fengu þar utanyfirtreyju, boli, stuttbuxur og sokka. Fyrsta árið fékk svo töskur, annað ári nuddrúllur og þriðja árið jafnvægispúða líkt og venjan er. Á öllum æfingum eftir þetta eiga nemendur að klæðast þessum fatnaði svo þar verður mikill og góður heildarbragur á hópnum eftir þetta.
Við sama tækifæri var handsalaður samningur við Styrk ehf sjúkraþjálfunarstöð uppi á Höfða. Í gegnum Styrk fá nemendur sviðsins frábæran aðgang að tímum í sjúkraþjálfun hjá Valgerði Tryggvadóttur sem starfar hjá Styrk, og vinnur einnig hjá okkur á afreksíþróttasviðinu við kennslu.
Mynd af Ársæli skólameistara og Auði frá Styrk handsala samninginn. Nánar má lesa um samstarfið hér á síðu sviðsins.