Verðlaun fyrir námsárangur á afreksíþróttasviði við útskrift – haust 2020

Það er fátt venjulegt við þetta ár, eins og t.d. útskriftin sem er framundan. Þar ætlum við að byrja nýtt fyrirkomulag við viðurkenningar sem kynnt var í vor í annarri tilkynningu. Í ár verða veittar viðurkenningar þeim tveimur nemendum sem hafa áunnið sér hæstu meðaleinkunn úr áföngum á afreksíþróttasviðinu. Þau fá POLAR FT7 púlsúr að launum svo þau viti hvað hjartað þeirra slær á erfiðum æfingum.

Það er reyndar líka mikilvægt upp á framtíðina hlusta á og fylgja hjartanu því við óskum öllum nemendum okkar þess að þau hafi kjark og dug til að eltast við sína drauma, í hverju sem þeir geta verið fólgnir.

Verðlaunin í ár fyrir frábæran námsárangur á afreksíþróttasviði fá

Ingi Þór Ólafsson, kylfingur

Ingi Þór úti á golfvelli, hvar annarsstaðar?

Karítas María Arnardóttir, fótboltakona

Karítas María í leik með Fram (eigandi myndar er Kidditr)

Við óskum þeim tveimur innilega til hamingju með frábæran námsárangur hjá okkur á tíma sínum í skólanum.

Adda Sólbjört HögnadóttirHandbolti
Edda Björg EiríksdóttirFótbolti
Egill Árni JóhannessonHandbolti
Elvar Karl AuðunssonFrjálsar íþróttir
Emil Skorri Þorsteins BrynjólfssonFótbolti
Guðni Emil GuðnasonFótbolti
Heiðrún Anna HauksdóttirFimleikar
Hrafnhildur Jónsdóttir KvaranHandbolti
Ingi Þór ÓlafsonGolf
Jóhann Árni GunnarssonFótbolti
Jón Kristinn IngasonFótbolti
Karítas María ArnardóttirFótbolti
Leó Ernir ReynissonFótbolti
Lilja Nótt LárusdóttirFótbolti
María Eir MagnúsdóttirFótbolti
Ólafur Már EinarssonFótbolti
Sigursteinn ÁsgeirssonFrjálsar íþróttir
Tumi Steinn RúnarssonHandbolti
Þórður Gunnar HafþórssonFótbolti
Útskriftarhópurinn haust 2020 – 19 nemendur sem er með því allra mesta frá upphafi 🙂

Vegna sóttvarna verður því miður ekki hægt að taka hópmynd eins og gert hefur verið undanfarin ár.

Gangi ykkur ótrúlega vel!

með bestu kveðju

SÞ, verkefnisstjóri afreksíþróttasviðs og kennarar AFR

Afrekssviðsnemendur með verðlaun í tugþraut 16-17 ára

Tveir af okkar nemendum í einstaklingsíþróttum kepptu á meistaramótinu í fjölþrautum núna um helgina, þar sem þeir höfnuðu í 1. og 3. sæti í tugþraut 16-17 ára. Þetta eru þeir Kolbeinn Tómas Jónsson (2. ár) og Úlfur Árnason (nýnemi) og keppa þeir báðir fyrir hönd ÍR. Við óskum drengjunum til hamingju með árangurinn og gangi þeim vel á mótum vetrarins!

Nánar um mótið hér á vef ÍR um mótið http://ir.is/frjalsar-news/mikid-um-baetingar-a-mi-i-fjolthrautum/

Hér er Kolbeinn fyrir miðju og Úlfurr til hægri. Til hamingju drengir!

Sveinn og Brynjar G

Og Máttarstólpann 2017 fær….

Afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla!!!

Grafarvogsdagurinn var haldinn hátíðlegur í hverfinu nýlega líkt og mörg undanfarin ár. Mikið er um að vera á þessum degi í Grafarvogi og koma margir að dagskránni.

Hverfisráð Grafarvogs hefur staðið fyrir veitingu Máttarstólpans, hvatningarverðlaunum ráðsins. Í reglum um viðurkenninguna segir m.a.

d. Mikilvægt er Grafarvogsbúar fái að njóta árangurs af starfinu og að starf viðkomandi verki hvetjandi á menningar-, íþrótta- og tómastundalíf í hverfinu.
Nánar hér http://reykjavik.is/reglur-um-mattarstolpann-midgardur.

Það teljum við svo sannarlega að sé raunin. Starfið fer fram í hverfisframhaldsskólaskóla Grafarvogs og nýtist því sérstaklega þeim sem búa í nærumhverfinu og æfa íþróttir af miklum dug. Fjölnir hefur notið góðs af þessari starfsemi og nú stendur til að efla það samstarf ennfrekar með uppbyggingu íþróttamannvirkis við Egilshöll og samstarfssamnings milli sviðsins og Fjölnis.

Gleðilegt sumar, þessi vetur hefur verið frábær!

Sveinn Þorgeirsson

Glæsilegur og stór útskriftarhópur frá afreksíþróttasviðinu

Óvenju stór og glæsilegur hópur nemenda útskrifaðist frá afreksíþróttasviði Borgarholtsskóla í desember síðastliðnum. Nemendurnir höfðu lokið 6 áföngum á afrekinu og fengu öll útskriftargjöf frá sviðinu sem samkvæmt venju var POLAR púlsklukka. Þó nokkrir höfðu lokið nokkrum áföngum á afreksíþróttasviðinu og óskum við þeim einnig til hamingju með útskriftina.

Frá vinstri, Sveinn verkefnisstjóri, María Eva, Sæmundur, Þorgeir, Thea, Guðný, Hulda, Diljá, Óðinn, Hulda Hrund, Stefanía, Nína, Ragnar og Logi.

Eins og svo oft áður voru afreksíþróttanemendur fyrirferðarmiklir á útskrift. Þar má nefna að tónlistaratriðin flutti dúx útskriftarinnar og handknattleiksmaðurinn úr Víking hann Logi Gliese Ágústsson. Þar að auki flutti Thea Imani Sturludóttir handknattleikskona og landsliðskona úr Fylki ávarp útskriftarnemenda. Þar að auki sópuðu nemendur af afreksíþróttasviðinu til sín verðlaunum, svo mörgum að ég man þau ekki öll og læt því ógert að nefna einhver og gleyma öðrum 🙂   Innilega til hamingju engu að síður!

Logi Gliese Ágústsson spilaði tvö lög á píanó, fyrra lagið var frumsamið og heitir Jazz on a Tuesday eða Djass á þriðjudegi og síðara lagið var eftir Emmsé Gauta og Aron Can og heitir Silfurskotta.

Að lokum er vert að geta þess að þetta var fyrsti hópurinn sem útskrifast frá afreksíþróttasviðinu með ÍSÍ þjálfarastig 1. Þeir hópar sem innritast frá og með haustinu 2016 fá stig 1. og 2. að því gefnu að þau hafi gilt skyndihjálparnámskeið (verður í boði í Borgarholtsskóla fyrir þau) og þjálfarareynslu uppáskrifaða af sínu félagi.

Við erum ákaflega stolt af þessum nemendum okkar og óskum þeim velfarnaðar í framtíðinni!

Sveinn Þorgeirsson