Nemendur úr einstaklingslínu afrekssviðis Borgarholtsskóla hafa ekki slegið slöku við á þessu tímabili. Kolbeinn Tómas varð nú fyrir skemmstu fjórfaldur Íslandsmeistari í sínum aldursflokki þar sem hann vann gull í kúluvarpi, þrístökki og 4x200m boðhlaupi og lokum yfirburðasigur í sinni helstu grein á innanhússtímabilinu í sjöþraut.
Hér sjáum við Kolbein koma í mark með keflið í 200m boðhlaupi fyrir sveit ÍR. Óskum Kolbeini og þjálfara hans Brynjari (þjálfara á afreksíþróttasviðinu) innilega til hamingju með árangurinn!
Helgina 25.-26. febrúar fór fram Meistaramót Íslands 15-22 ára í frjálsum íþróttum. Þar urðu þau Helga Þóra Sigurjónsdóttir og Styrmir Dan Hansen Steinunnarson Íslandsmeistarar í sínum aldursflokki. Þau eru bæði á afreksíþróttasviði í Borgarholtsskóla og keppa fyrir Fjölni.
Við óskum þeim innilega til hamingju með þetta, og Styrmi góð gengis í bata eftir aðgerð sem hann fór nýlega í!
með bestu kveðju
Sveinn, þjálfarar afreksíþróttsviðsins og Teddi Fjölnisþjálfari
Viðar Ari Jónsson fyrrum nemi af afreksíþróttasviði hefur samið við ´urvalsdeildarlið Brann í Noregi og gert við liðið atvinnumannasamning. Þetta er stórt skref en við vitum að Viðar er toppeintak og vel undirbúinn. Hann útskrifaðist frá Borgarholtsskóla á afreksíþróttasviði haustið 2014 og hefur undanfarin ár farið mikinn með úrvalsdeildarliði Fjölnis í Pepsi deildinni.
Við óskum Viðari innilega til hamingju og gangi honum sem allra best úti!
Dagskrá skóhlífadaga var með hefðbundnu sniði og gengu þeir vel fyrir sig. Á þessum þemadögum skólans er hefðbundið skólastarf brotið upp með námskeiðum og uppákomum í skólanum sem nemendum gefst færi á að velja sig í eftir áhugasviði. Afreksíþróttasvið hefur staðið fyrir góðri dagskrá undanfarin ár með flottum fyrirlestrum og veglegum hádegismat. Árið í ár var engin undantekning og fengum við að hlusta á Margréti Lilju frá íþróttafræðisviði HR fjalla um hve mikill árangur hefur náðst varðandi forvarnir vímuefna í skipulögðu íþróttastarfi og fleira byggt á rannsóknum Rannsókna og greiningu. Var sá fyrirlestur hluti af samstarfi AÍS við íþróttafræðisviðið í HR. Að því loknu steig Margrét Lára Viðarsdóttir, íþróttafræðingur og meistaranemi í sálfræði á stokk og fjallaði um andlegan styrk íþróttamanna. Talaði hún einnig af eigin reynslu ásamt því að tala stuttlega um kvíða, sjálfstraust og túlkun tilfinninga.
Við á afreksíþróttasviði bjóðum ykkur öll velkomin, og sérstaklega einstaklinga í 9. og 10. bekk grunnskóla. Mælingarnar fara fram 21. febrúar kl. 10-12.
Þær mælingar sem í boði verða eru:
Spretthraði (á 10 og 30m)
Skothraðapróf (með hraðamælingarbyssu)
Illinois agility (snerpupróf í kringum keilur)
Davies próf (styrkur í miðju líkamans)
Yfirhöfuð hnébeygja (hreyfanleiki)
Lóðrétt stökkhæð (með viðurkenndri aðferð)
Mælingarnar eru ókeypis og munu þátttakendur fá létta hressingu og mælingablað með niðurstöðum.
Í boði verður að fá upplýsingar og kynningu á náminu við afreksíþróttasviðið og námsráðgjafar á svæðinu.
Óvenju stór og glæsilegur hópur nemenda útskrifaðist frá afreksíþróttasviði Borgarholtsskóla í desember síðastliðnum. Nemendurnir höfðu lokið 6 áföngum á afrekinu og fengu öll útskriftargjöf frá sviðinu sem samkvæmt venju var POLAR púlsklukka. Þó nokkrir höfðu lokið nokkrum áföngum á afreksíþróttasviðinu og óskum við þeim einnig til hamingju með útskriftina.
Frá vinstri, Sveinn verkefnisstjóri, María Eva, Sæmundur, Þorgeir, Thea, Guðný, Hulda, Diljá, Óðinn, Hulda Hrund, Stefanía, Nína, Ragnar og Logi.
Eins og svo oft áður voru afreksíþróttanemendur fyrirferðarmiklir á útskrift. Þar má nefna að tónlistaratriðin flutti dúx útskriftarinnar og handknattleiksmaðurinn úr Víking hann Logi Gliese Ágústsson. Þar að auki flutti Thea Imani Sturludóttir handknattleikskona og landsliðskona úr Fylki ávarp útskriftarnemenda. Þar að auki sópuðu nemendur af afreksíþróttasviðinu til sín verðlaunum, svo mörgum að ég man þau ekki öll og læt því ógert að nefna einhver og gleyma öðrum 🙂 Innilega til hamingju engu að síður!
Logi Gliese Ágústsson spilaði tvö lög á píanó, fyrra lagið var frumsamið og heitir Jazz on a Tuesday eða Djass á þriðjudegi og síðara lagið var eftir Emmsé Gauta og Aron Can og heitir Silfurskotta.
Að lokum er vert að geta þess að þetta var fyrsti hópurinn sem útskrifast frá afreksíþróttasviðinu með ÍSÍ þjálfarastig 1. Þeir hópar sem innritast frá og með haustinu 2016 fá stig 1. og 2. að því gefnu að þau hafi gilt skyndihjálparnámskeið (verður í boði í Borgarholtsskóla fyrir þau) og þjálfarareynslu uppáskrifaða af sínu félagi.
Við erum ákaflega stolt af þessum nemendum okkar og óskum þeim velfarnaðar í framtíðinni!
Allir nemendur sem vilja sækja um að komast inn á afreksíþróttasvið þurfa að skila inn skriflegri umsókn fyrir kl. 16:00 þann 14. desemeber á skrifstofu skólanns í hólf verkefnisstjóra “Sveinn”.
Nemendur sem eru á sviðinu þurfa ekki að skila inn umsókn fyrir vorönnina.
Gengið hefur verið frá því af hálfu menntamálaráðherra að Borgarholtsskóli fái aukið fjármagn næstu fimm árin til að byggja áfram upp og þróa starfsemi á sviði íþrótta og lýðheilsu. Á afreksíþróttasviði skólans eru nú um 120 nemendur en þeir stunda nám á hinum ýmsu brautum skólans. Stefnt er að auknu samstarfi skólans og Ungmennafélagsins Fjölnis í Grafarvogi sem snýr að þjálfun og faglegu starfi. Borgarholtsskóli mun í framtíðinni því geta sinnt kennslu íþrótta á einum stað, þ.e. í Egilshöll. Hingað til hefur skólinn þurft að vera með starfsemi á mörgum stöðum í tveimur sveitarfélögum vegna mikillar aðsóknar nemenda á afreksíþróttasvið. Einnig hefur skólinn í farvatninu nýjar námsbrautir á sviði björgunar- og öryggismála. Nýlega skrifaði skólameistari Borgarholtsskóla undir samstarfssaming við Háskólann í Reykjavík um samstarf á sviði íþrótta og lýðheilsu.