5 stelpur á Afreksíþróttasviði valdar í U18 og U19

Okkur er það mikið gleðiefni að tilkynna að við eigum hvorki fleiri né færri en 5 stelpur í U18 og U19 ára landsliðsúrtökum kvenna!

Þetta eru þær Thea Imani Sturludóttir, Hulda Dagsdóttir, Ástríður Glódís, Berglind Benediktsdóttir og Andrea Jacobsen.

Við óskum þeim að sjálfsögðu innilega með valið og óskum þeim góðs gengis á æfingunum!

með kveðju,

Þjálfarar AIS

Æfingar hafnar af fullum krafti!

Nú eru æfingar hafnar af fullum krafti og gaman að sjá kraftinn í nemendum. Fótboltinn hefur æft utandyra vegna grasskipta í Egilshöllinni. Það er hins vegar í góðu lagi þegar veðrið er svona rosalega gott 🙂

20150915_093241

 

Veturinn lítur vel út með þennan góða nemendahóp sem við höfum. Við hlökkum bara til!

með kveðju

Sveinn Þorgeirsson

Donni í 8 liða úrslit heimsmeistaramóts U19 landsliða!

Kristján Örn Kristjánsson, oftast kallaður Donni, er nú staddur í Rússlandi ásamt liðsfélögum sínum í U19 ára landsliði Íslands. Liðið stendur í ströngu þessa dagana og hafa staðið sig sérstaklega vel. Unnið alla leiki til dagsins í dag og það hefur skilað þeim í undanúrslit. Nú síðast var það glæstur sigur á góðu liði Brasilíu.

11873994_591923790946283_2048810712_n

 

Við óskum Donna og liðsfélögum hans góðs gengis í undanúrslitum!

Þess má geta að fyrir þessari ferð fær Donni leyfi frá skóla sem er hluti af því að vera á afreksíþróttasviði. Einnig fær hann landsliðsstyrk afreksíþróttasviðs fyrir að vera valinn í liðið.

f.h. AIS

Sveinn  Þorgeirsson, verkefnisstjóri

Jón Frímann á holu í höggi!

Sá skemmtilegi atburður átti sér stað í gær að nemandi okkar á afreksíþróttasviði golfsins, Jón Frímann fór holu í höggi á 18 braut á Jaðarsvelli á Akureyri. Jón Frímann var að taka þátt í Sveitakeppni GSÍ í flokki 18 ára og yngri. Hann spilar fyrir lið GR og hefur leikið vel í mótinu. Hann var að leika í fjórmenning gegn GHD/GA/GÓ og þarf varla að taka það fram að hann sigraði þessa holu nokkuð örugglega!

11910832_10206441652592142_1203553141_n

Við óskum Jóni til hamingju með draumahöggið og vonum að þau verði fleiri! – og einnig óskum við honum góðs gengis það sem eftir er af Sveitakeppninni!

F.h. AIS, Sveinn Þorgeirsson og Davíð Gunnlaugsson

Davíð Gunnlaugsson orðinn PGA kennari!

Þann 17. júní sl. útskrifaðist, kennari við Afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla, golfi, Davíð Gunnlaugsson úr 3ja ára PGA námi hér á landi. Davíð stóð sig hreint frábærlega og hlaut sérstök verðlaun fyrir bestan námsárangur og besta einkakennsluprófið. Þetta er ennfrekari staðfesting á því sem við vissum að kennslan í golfinu á AIS er í fremsta flokki, þar sem Davíð hefur haft veg og vanda af þeirri kennslu undanfarin ár.
Námið er til þriggja og viðurkennt af PGA í Evrópu og veitir þar með alþjóðleg réttindi til golfkennslu. Þetta eru frábær tíðindi, og AIS óskar Davíð innilega til hamingju með þennan áfanga.
10336764_10206003605481238_3903769622347564409_n
Hér má sjá Davíð við útskriftina úr PGA náminu með viðurkenningarnar fyrir árangurinn.
F.h. AIS
Sveinn Þorgeirsson, verkefnisstjóri

Frábær aðsókn á afreksíþróttasviðið!

Við erum virkilega hreykin að þeim fjölda umsókna sem afreksíþróttasviðið fékk nú í vor. Þetta er okkur mikil hvatning til að gera vel á þessum tímum breytinga næsta haust. Við erum að breyta um stokka og að fara í 3ja ára skipulag. Það eru spennandi tímar framundan og það verður gaman að kynna til leiks allt það flotta sem á eftir að koma fram í haust.

2013-09-13 11.10.13
Eitt af fyrstu verkefnum AIS á haustin er að fara með nýnema í nýnemaferð!

Með sumarkveðju

Sveinn Þorgeirsson, verkefnisstjóri afreksíþróttasviðs

Gummersbach Akademía U19 vs Afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla

Afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla fór í afar vel lukkaða ferð til Gummersbach nú í maí síðastliðnum. Við lékum meðal annars leik gegn heimamönnum í akademíunni U19 ára. Sjón er sögu ríkari.

 

Vil nota tækifærið og þakka nemendum fyrir frábæra ferð, þið voruð glæsilegir fulltrúar okkar, Gumma fyrir samfylgdina og Gunnari Steini Jónssyni, Elísabetu og Ölbu Mist fyrir geggjaðar móttökur 🙂

með þökkum

Sveinn Þorgeirsson

Ferðasaga frá USA

Afreksíþróttasviðsnemendurnir Andrea og Sara Margrét fóru í flotta ferð til USA að keppa í handbolta nú fyrir skemmstu. Við grípum hér inn í stutta ferðasögu frá þeim.
Erum mættar út, svaka sól og hiti erum í New Jersey. Erum að keppa með Ocean NJ Team Handball Club, mótið byrjar á föstudaginn og við munum keppa 4 leiki í riðlinum okkar og svo byrja úrslitin. Eigum leiki gegn 2 liðum frá West point, einu frá Boston og einu frá Carolina.
 11262289_10204184896448385_1135933189_n
Liðið okkar komst í undanúrslit og við töpuðum gegn New York með þremur (þær lentu síðan í 2. sæti) og enduðu á því að keppa um 3. sætið gegn North Carolina, leikurinn endaði sem jafntefli en við töpuðum síðan í framlengingu. North Carolina liðið voru allt stelpur sem spila í A landsliði USA. Seinast þegar New Jersey Ocean keppti á þessu móti lentu þær í 9. sæti en núna lentum við í 4.

Vorútskrift Borgarholtsskóla 2015

Eins og oft áður átti afreksíþróttasviðið glæsilega fulltrúa á útskrift Borgarholtsskóla í gær. Útskriftin var haldin hátíðlega í gær (laugardaginn 23. maí) fyrir fullum sal. Í ár útskrifuðust 7 nemendur af afreksíþróttasviðinu, 2 úr körfbolta, einn úr fótbolta og 4 úr handbolta. Handboltastrákarnir eru einmitt úr fyrsta handboltaárganginum sem byrjaði við skólann. Þeir eru því frumkvöðlarnir sem byggðu upp handboltann og eiga stóran þátt í því að í dag eru 24 nemendur þar skráðir og fleiri á leiðinni, farið hefur verið í 2 utanlandsferðir og 6 nemendur þaðan hafa fengið landsliðsstyrki fyrir þátttöku sína í verkefnum með landsliðum, af 18 sem fengu styrk á þessu skólaári (samtals 450.000 kr.).

Þeir nemendur sem fara alla leið hjá okkur eru sérstaklega mikilvægir því þeir gegna miklu fyrirmyndarhlutverki gagnvart þeim sem koma inn nýir á hverju ári. Og þessir drengir hafa svo sannarlega staðið sig þar.

Frá vinstri, Halla Karen fagstjóri íþrótta, Sveinn verkefnistjóri afreksíþróttasviðs, Helgi Freyr, Alexander Þór, Þorgeir, Jón Pálsson, Breki Dagssson, Helgi Karl og Bjarki Lárusson

Polar púlsúr í útskriftargjöf

 

Ferðasaga #3

Dagur 5

Fengum að sofa aðeins lengur en venjulega og mættum kl. 09:00 í morgunmat. Eftir það var mæting niður í lobby kl. 11:00 og þaðan fórum við á styrktaræfingu í Schalbe Arena frá 11:30-13:00. Þar var tekið verulega á því: upphífingar – glútæfingar – snerpuhopp – kaðlaæfingar – köst með medicine-bolta og 20m sprettir m/30-40kg í afturdragi svo eitthvað sé nefnt. Held að öllum fannst kaðlaæfingarnar langerfiðastar. Eftir æfinguna var farið heim uppí hótel, í sturtu og hádegismat. Flest allir fóru saman á City Grill, sem við köllum yfirleitt “Kebob”, sem seldi pizzur og auðvitað kebab vefjur. Eftir matinn var um það bil klukkutími í næstu æfingu þannig fólk keypti sér vatn og nesti fyrir hana og slökuðu á þar til 16:30. Á þeim tíma var mæting niður í lobby og svo röltuðum við síðan aftur í höllina og biðum eftir Gunnari Steini sem opnaði fyrir okkur. Æfingin hófst 17:00 og var til 18:00. Á æfingu var farið yfir sóknarleik og varnarleik fyrir leikinn á móti Gummersbach-akademíunni á morgun. Sóknakerfin sem við æfðum voru Barca, Køben, Cairo og Strasbourg. Við ætlum okkur að spila annaðhvort 6-0 vörn með aggressíva tvista/bakverði eða 3-2-1 vörn sem fer eftir því hvernig leikurinn mun þróast. Eftir æfinguna var farið upp á hótel og tekið létt chill þar sem ákveðið var hvað ætti að borða. Allir ætluðu að fara saman á veitingastaðinn niðri á hótelinu en það sem þurfti að panta borðið fyrirfram fyrir stóra hópa þá fóru flestallir í bæinn en Logi og Donni fóru á rómantískt deit á veitingastað hótelsins. Hinir fóru á einhvern ljúffengan pizzustað og fengu sér rjúkandi heitar flatbökur. Eftir mat var farið uppí herbergin og þar spjölluðum við tímunum saman en þó var farið snemma að sofa enda leikur næsta dag.

Dagur 6

Gameday! Fórum í morgunmat kl. 09:00 og gerðum okkur klár fyrir stuttan taktískan fund kl. 11:00. Þar var farið yfir varnarskipulagið og sóknakerfin sem Sveinn hafði tekið upp á myndband á æfingunni deginum áður. Eftir það var mæting niður í lobby kl. 11:30 og gerðum okkur klár fyrir teygju/styrktaræfingu í Schalbe Arena. Æfingin hófst kl. 12:00 og stjórnaði styrktarþjálfari Gummersbach-liðsins hana og var hún krefjandi á alla vegu. Einblínt var á að liðka líkaman til fyrir leikinn um kvöldið en jafnframt verið að styrkja miðju/kjarna líkamans eða “core”-ið. Æfingar á borð við plankar og hliðarplankar með skemmtilegum tvisti og fjölbreyttar æfingar með medicine-bolta einkenndu æfinguna og því var tekið vel á því. Eftir æfingu var farið upp í hótel og beint í sturtu. Eftir það var frjáls tími fram að mætingu fyrir leik sem var kl. 18:00. Margir nýttu sér tíman og versluðu inn á meðan aðrir hvíldu sig vel fyrir leikinn. Auðvitað fengu allir sér góða næringu fyrir leik og allir mættir á réttum tíma upp á hótel. Þaðan var farið aftur í Schalbe Arena og þar hófst venjulegur undirbúningur fyrir leik eins og að spila háværa þýska teknó-tónlist inni í klefa. Klukkutíma síðar hófst leikurinn. Leikurinn var í járnum nær allan tíman og spiluðu bæði lið flottan varnarleik. Gummersbach leikmennirnir voru samt einu skrefi á undan okkur og breikkuðu bilið á milli okkar jafnt og þétt. Staðan í hálfleik 15-9. Seinni hálfleikurinn var jafn skemmtilegur og sá fyrri og voru bæði lið staðráðin í að vinna. Baldur var logandi í markinu og varði hvert dauðafærið á fætur öðru og einnig hraðaupphlaupi. Berglind kom sterk inn í leikinn og skoraði 4 mörk og var ein af markahæstu mönnum leiksins. Heilt yfir spiluðu allir flottan leik og gátum við borið höfuðið hátt þrátt fyrir 10 marka tapi 31:21. Ekki slæmt miðað við að hafa bara tekið eina æfingu áður til að spila okkur saman og það degi fyrir leik. Eftir leik var klukkan orðin mjög margt þannig að nokkrir drifu sig í sturtu inni í klefa á meðan aðrir slepptu sturtunni alveg og drifu sig að finna stað til að borða á. Margir fóru á “Kebob” en aðrir héldu að allir veitingastaðir væru lokaðir, enda klukkan orðin vel yfir tíu, og fóru þeir í Asíu-búðina rétt hjá hótelinu og reyndu að finna næringu við hæfi. Brauð, súkkulaðikrem, pringles-snakk, haribo-nammipokar, gos, súkkulaði-kex, súkkulaði-stangir og margt fleira í þessum dúr var borið út úr Asíu-búðinni í þremur stórum innkaupapokum. Eftir mishollum kvöldmat var chillað saman langt fram á nótt og var meðal annars horft á Monsters University teiknimyndina góðu í herbergi 103.

Dagur 7

Í dag var kominn tími á að fara heim til Íslands þannig allir voru búnir að pakka og tilbúnir í flug.
Við vöknuðum fyrir níuleytið og fengum okkur seinasta morgunverðinn á hótelinu, náðum svo í töskurnar okkar og fermuðum
mini-rútuna sem keyrði okkur til Düsseldorf. Við skrifuðum líka öll þakkarbréf fyrir ferðina handa Gunnari Stein, sem var reyndar farinn þegar Sveinn ætlaði að afhenda honum það þannig við sendum honum það í pósti á flugvellinum. Eftir langa keyrslu á flugvöllinn vorum við komin þangað um hádegi, og þá voru um 6 tímar í flugið okkar. Við ákváðum þá að láta geyma ferðatöskurnar okkar hjá ferðatöskugeymslu einni og fara með lest sem hengur í loftinu, eða svokölluð “Skytrain”, og svo venjulega lest inn í miðbæinn á Dusseldorf og þar svo að versla og skoða okkur um. Þar löbbuðum við öll niður göturnar, sumir fengu sér að borða, aðrir fóru og versluðu í búðunum og aðrir hins vegar bara skoðuðu sig um. Um klukkan korter í 6 var ákveðið að hittast við lestarstöðina og fara aftur á flugvöllinn, en þar sem allir voru nú þegar komnir á stöðina fórum við bara fyrr af stað. Við byrjuðum lestarferðina á flugvöllinn með því að fara í öfuga átt, en sem betur fer áttuðum við okkur á því og hoppuðum af á næstu stöð og skiptum um lest. Þegar við komum á flugvöllinn fórum við að ná í töskurnar aftur og fengum okkur svo að borða fyrir flugið. Við fórum svo að checka okkur inn og láta leita á okkur og sjá hvort við værum eitthvað hættulegt á okkur. Logi og Alli þurftu að láta taka dótið sitt og sjá hvort einhver ólögleg efni voru þar, en sem betur fer voru engin. Um tíuleytið á þýskum tíma var flug heim og allir voru tilbúnir í flugið heim. Þriggja tíma flugið leið eins og við höfðum bara flogið í 15 mínútur og allir skemmtu sér konunglega að tala saman og skemmta sér. Klukkan 11 á íslenskum tíma vorum við lent og var smá verslað líka í fríhöfninni. Allir voru komnir inn í rútu klukkan 11:50 og við keyrðum í átt að borgarholtsskóla. Allir voru mjög glaðir með ferðina og ég held að við tölum fyrir alla þegar við segjum að við höfum verið heiðraðir með að fá þetta tækifæri að fara með svona rosalega skemmtilegum krökkum í topp 1 besta sem við höfum a.m.k farið í. Við viljum bara þakka fyrir okkur krakkana að fá að fara í þessa vel heppnuðu ferð og hún hefði ekki getað gengið betur upp.
Takk fyrir okkur.

10922872_916521065070970_9171703830898677098_n 11351161_916521101737633_1762021242265484988_n 20150518_212538