Dagbók frá degi 3 og 4

Dagur 3 byrjaði með morgunmat klukkan 08:00. Eftir það var frjáls tími til 12:00 þar sem það var skýjað. Nokkrir skelltu sér í bæinn en aðrir voru eftir upp á hóteli. Við mættum Gunnar Steini niðri í bæ og hann var hress eins og alltaf. Klukkan 12 löbbuðum við öll á eitthvern stað í hádegismat. Kál í karrý, pylsur og frankar, fiskur með spínatmauki. Eftir matinn tókum við strætó að vatninu þar sem við tókum skógarhlaup en aðrir lágu í sólinni enda var mjög gott veður. Planið var að skokka sirka 4 km en sumir enduðu á því að skokka 11 km. Flestir þeir sem ætluðu að skokka hringinn villtust á leiðinni og voru hræddir um að finnast ekki aftur í um það bil tvo daga. Eftir einn og hálfan tíma komu seinustu mennirnir í mark og voru feykiánægðir með það. Flestir skelltu sér í vatnið og tóku nokkra sundspretti. Bergur veiddi dauðann fisk. Þegar allir voru komnir löbbuðum við upp að strætóskýli en rétt misstum af honum svo við láum á gangstéttinni í sólbaði og blöstuðum tónlist. Í strætó ákváðu sumir að fara á Burger King en aðrir fóru á Kebab. Klukkan 18:30 röltuðum við á leikinn. Svenni fór að redda miðunum. Það var allt troðið af fólki og mikill spenningur í hópnum. Við sátum þar sem aðal stuðningslið Gummerbach var. Þetta var mjög flottur leikur hjá báðum liðum. Þessi leikur var ótrúleg upplifun og flest allir voru hásir eftir hann. Að leik loknum fengum við að fara á völlinn og tala við leikmennina og fá myndir með þeim. Alli sjallaði við Santos. Eftir það var kvöldvaka í herbergi 106.

Á degi 4 var vaknað og farið í morgunmat, eftir það löbbuðu við á lestar stöðina til að fara til Kölne sem tók ein og hálfan tíma. Þegar við vorum komin tókum við myndir af Dómskirjunni og löbbuðum yfir brú með fullt af ástarlásum. Til að byrja verslunarleiðangurinn fóru allir á mc donalds þar sem flestir voru svangir. Í bænum var mikið líf og næstum troðið allstaðar þar sem útsölur voru í gangi. Flestir byrjuðu í H&M en eftir það splitupust allir upp. Berglind og Logi tóku þátt í skemmtilegri keppni í eini íþróttar búðinni þar sem þau þurfti að fara í snerpustiga og taka þrjár burdbis og fara aftur í gegn um stigan og taka þrjár burdbis allt á tíma. Auðvitað kláruðu þau keppnina með stæl og lentu þau í sæti.(Logi 3 sæti karla megin og Berglind í 1 sæti kvenna megin). Þegar klukkan var orðinn 18:30 hittumst við og ætluðum á Hard rock en því miður komumst við ekki þangað útaf því það var allt fullt þannig við fórum og fengum okkur dýrindis pizzu á Pizza Hut. Eftir að allir voru búnir að borða löbbuðum við upp á lestar stöð og fórum til baka með lestinni. Við vorum komin upp á hótel klukkan 23:00. Dagurinn endaði svo með rosalegri Kosningarvöku í herbergi 103 þar sem var boðið upp á drykki og snakk.

11256855_10205701513008477_1814553905915829059_n 11268364_10205701513808497_329983467271819200_n 11058352_10205701515448538_2930235232979173388_n

Ferðasaga #1

Dagur 1

Ferðin byrjaði á flugi til Düsseldorf, þar tók við langt ferðalag og hvíldin nauðsynleg. Þegar lent var í Düsseldorf tók Gunnar Steinn og liðsfélagi hans Magnus við okkur og ferðalagið hélt áfram til Gummersbach.
Við komum að hótelinu klukkan 8:30 að staðaltíma en herbergin voru ekki tilbúin fyrr en 10 – 10:30 svo Gunnar Steinn sýndi okkur bæinn og fór með okkur á skemmtilegan veitingarstað.
Þegar herbergin voru tilbúin komum við okkur fyrir og hvíldum okkur eftir strembið ferðalag.
Eftir góða hvíld tóku þeir sem þurftu að taka próf prófin sín og restin fór að rolta í góður veðri niður í bæ að skoða.
Klukkan 18:30 tók svo við skemmtileg æfing í gömlu Gummersbach höllinni.
Eftir æfingu sýndi Gunnar Steinn okkur flottan Ítalskan stað rétt hjá hótelinu.
Það var komin ró um 23:00.

Dagur 2

Í dag tókum við góða morgunstyrktaræfingu í Schwalbe arena og gekk það mjög vel. Eftir hana var það heit sturta og smá matur á hótelinu og svo beint að horfa á Gummersbach æfa í sömu höll. Höllin var mjög flott og mjög gaman að horfa á þessa reyndu menn æfa.
Við tók æfing með Gummersbach akademíunni og var það mjög skemmtileg og góð æfing.
Við fórum aftur á sama Ítalska stað í kvöldmat en þeir sem vildu ekki borða þar máttu fara eitthvert annað t.d. fóru sumir á McDonald’s og kebab.
Eftir kvöldmat kom Kiel og allir urðu mjög spenntir, seinna um kvöldið spjölluðu sumir við Aron og hina leikmennina.
Eftir allt gamanið var komin ró kl 23:00.

 

11114781_10203945149381889_641913022274133077_o 11124415_10203945149101882_413289633085111020_o 11270454_10203945153501992_6340612117146323094_o 11218579_10203945155902052_4174845829939470917_o

Landsliðsstyrkur Afreksíþróttasviðs veittur í annað sinn!

Nú er vorönninni lokið og margt jákvætt sem áunnist hefur á þessari önn. Við eigum 10 einstaklinga sem fóru erlendis í keppnisferð með landsliðum sínum á þessari önn og hljóta þar af leiðandi landsliðsstyrkinn okkar. Það er bæting frá því í fyrra og vonandi heldur þessi þróun áfram.

Styrkurinn var veittur í 2. sinn þann 30. apríl og hlaut hver og einn nemandi 25.000 kr.

Hér að neðan má sjá hópinn sem fékk viðurkenninguna ásamt Inga Boga aðstoðarskólameistara og Sveini Þorgeirssyni verkefnisstjóra afreksíþróttasviðs.

Þessi fengu styrk fyrir landsliðssferðir sem þau tóku þátt í á þessari önn.
Eftirfarandi fengu styrk fyrir landsliðssferðir sem þau tóku þátt í á þessari önn. Efri frá vinstri: Elvar Snær Ólafsson, Edmunds Induss, Gabriel Camilo, Andrea Jacobsen, Thea Imani Sturludóttir, Kristján Örn Kristjánsson. Neðri röð frá vinstri: Hulda Dagsdóttir, Hulda Hrund Arnarsdóttir, Jasmín Erla Ingadóttir og Helena Ósk Kristjánsdóttir.

Íshokkí: Elvar Snær Ólafsson, Edmunds Induss og Gabriel Camilo kepptu fyrir U18 í 3. deild A í Tævan nýverið. Strákarnir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu sína deild. Liðinu var stjórnað af Vilhelm Má Bjarnasyni, þjálfara á afreksíþróttasviði.

Handbolti: Andrea Jacobsen og Helena Ósk Kristjánsdóttir voru valdar í U17 ára landslið kvenna sem tók þátt í undankeppni EM í Færeyjum. Liðið komst því miður ekki áfram. Thea Imani Sturludóttir og Hulda Dagsdóttir voru valdar í U19 og tóku þátt í undankeppni EM í Makedóníu í apríl, liðið komst því miður ekki áfram. Kristján Örn Kristjánsson var valinn í æfingaferð til Þýskalands með U19 ára liðinu og skoraði 21 mark í 5 leikjum.

Fótbolti: Hulda Hrund Arnarsdóttir og Jasmín Erla Ingadóttir fóru til Frakklands og tóku þátt í undankeppni EM með U19 ára landsliði kvenna.

með þökk fyrir veturinn og gangi ykkur vel í keppni og æfingum í sumar!

Sveinn og þjálfarar afreksíþróttasviðs

Afreksíþróttasvið í golfferð til Portúgal

Nú nýlega fóru golfarar frá afreksíþróttasviði Borgó í æfingaferð. Heppnaðist hún virkilega vel og tóku allir drengirnir miklum og góðum framförum. Hálfur dagur fór í æfingar og svo voru spilaðar 18 holur, ýmist fyrir eða eftir æfingu. Það var því verið í æfingum frá 9 á morgnanna til 18 á daginn þessa viku sem ferðin stóð yfir.
 
Ferðin var farin í samfloti við Golfklúbb Mosfellsbæjar annað árið í röð og gekk það allt mjög vel. Drengirnir stóðu sig allir þrír afar vel og voru skólanum til mikils sóma. 
Með þökk fyrir ferðina
Davíð Gunnlaugsson
mynd 5 mynd2 mynd3 mynd4 mynd1

Góð ferð íshokkístrákanna með U18 til Tævan

Fyrir páska fóru þrír nemendur af afreksíþróttasviði Borgarholtsskóla í U18 landsliðferð í íshokkí til Tævan, þar sem keppt var í 3 deild riðli A. Leikmennirnir eru Edmunds Induss, Gabríel Camillo Gunnlaugsson og Elvar Snær Ólafsson ásamt Vilhelm Má Bjarnasyni þjálfara U18 einnig þjálfari íshokkísviðsins. Íslenska landsliðið vann alla sína leiki og komst þar af leiðandi upp um deild. Edmunds Induss var valin besti maður leiks Íslands á móti Suður Afríku og Elvar Snær Ólafsson var valinn besti maður leiksins á móti Tævan auk þess að vera valinn besti maður Íslenska landsliðsins á mótinu og besti sóknarmaður mótsins. Við óskum strákunum og þjálfara þeirra til hamingju með þennan árangur. Þetta er frábær árangru hjá okkar strákum sem ætla sér langt í framtíðinni.

Hér að neðan má sjá myndir frá ferðinni til Tævan.

11119190_10153136684372110_348619678_n 11092975_10153136684387110_2096873374_n 11092972_10153136684377110_2136490283_n

Nýtt námstilboð! Einstaklingsgreinar á afreksíþróttasviði

Það er okkur sönn ánægja að greina frá því að ákveðið hefur verið að bjóða upp á einstaklignsgreinar á afreksíþróttasviði frá og með næsta hausti. Ákveðin tækifæri hafa skapast með breytingu á náminu í 3ja ára skipulag.

Í vor verður því hægt að skrá sig í einstaklingsíþróttalínu afreksíþróttasviðs.

Umsækjendur skila inn umsókn líkt og aðrir nemendur og tilgreina sína íþrótt. Hver umsóknn verður metin fyrir sig. Munið að skila inn meðmælabréfi frá þjálfara ásamt umsóknareyðublaðinu sjálfu.

083

Námið verður byggt upp á sama hátt og hópíþróttirnar, s.s. með einum bóklegum tíma og einum styrktíma í viku, nema í stað tækniæfinga hjá hópíþróttum verður verkefnavinna með leiðbeinanda og fundir.

Hér má nálgast kynningarefni fyrir einstaklingsíþróttir

afreks_kynning_einstaklingsgreinar_vor_2015

Hér má nálgast umsóknareyðublaðið

Afreksithrottasvid_BHS_Umsoknareydublad_haust_2015

Tilkynning frá Afreksíþróttasviði: Umsóknir fyrir haust 2015

Afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla er í stöðugum vexti og er verkefnið að eflast með hverju árinu. Samhliða breytingum í 3ja ára nám í framhaldsskóla mun afrekssviðið breytast aðeins. Við munum áfram bjóða upp á 6 annir (öll 3 árin) og vera þrisvar í viku líkt og verið hefur.

Með nýju fyrirkomulagi verður einnig opnað fyrir einstaklingsíþróttagreinar að sækja um. Þar erum við spennt fyrir að bjóða upp á sérsniðna dagskrá sem hentar vel þeim sem æfa mikið og vilja gott utanumhald og fræðslu í sína þátttöku í íþróttum.

Forinnritun 10. bekkjarnema verður frá 4.-10. mars. Opið verður fyrir umsóknir á afreksíþróttasvið frá og með 4. mars. Opið verður fyrir umsóknir eldri nema til 31. maí. Nánari upplýsingar eru á menntagatt.is.

Umsóknarfrestur er til 10. júní næst komandi. Lokainnritun verður auglýst og þeim sem komast inn á sviðið tilkynntum það fyrir 17. júní.

Heimsókn frá Rugby Ísland

Til að sækja um þarf að skila inn útfylltu umsóknareyðublaði ásamt meðmælabréfi á skrifstofu skólans virka daga milli kl. 8:00-16:00 við Mosaveg. Að auki skal sótt um Borgarholtsskóla rafrænt inni á menntagatt.is. Þar skal þess getið undir „aðrar athugasemdir“ að sótt sé um afreksíþróttasvið.

Hér má nálgast eyðublaðið:

Afreksithrottasvid_BHS_Umsoknareydublad_haust_2015

Fyrirspurnir skulu sendast á verkefnisstjóra afreksíþróttasviðs, sveinn@bhs.is

Með bestu kveðju

Sveinn Þorgeirsson

Landsliðsstyrkur afreksíþróttasviðs Borgarholtsskóla veittur í 1. sinn

Í gær var afhentur í fyrsta sinn landsliðsstyrkur afreksíþróttasviðs Borgarholtsskóla. Nemendur sem fóru út á vegum síns landsliðs á haustönn fengu afhentan styrk upp á 25 þúsund krónur hver. Á það eflaust eftir að koma í góðar þarfir því margar greinar þurfa að standa undir ferðakostnaði og upphaldi alveg sjálfar. Nú síðast komst kostnaður U-21 árs landsliðs Íslands í handbolta í umræðuna þar sem leikmenn þurftu að greiða yfir 100 þúsund þrátt fyrir að spila sinn riðil á heimavelli.

Hér er hópurinn flotti sem fékk þennan styrk fyrir haustönnina. Við vonumst til að þessi hópur eigi bara eftir að stækka. Afreksíþróttasviðið óskar þessum nemendum til hamingju.

Hér má svo sjá viðurkenningaskjalið sem þau fengu til staðfestingar styrknum.

IMG_2622
Frá hægri, Sveinn Þorgeirsson verkefnisstjóri, Úlfur Gunnar Kjartansson handbolti, Hulda Hrund Arnarsdóttir fótbolti, Elvar Snær Ólafsson íshokkí, Jasmín Erla Ingadóttir fótbolti, Ásgrímur Þór Bjarnason fótbolti, Andrea Jacobsen handbolti og Kristján Örn Kristjánsson handbolti.

 

Frá hægri, Sveinn Þorgeirsson verkefnisstjóri, Úlfur Gunnar Kjartansson handbolti, Hulda Hrund Arnarsdóttir fótbolti, Elvar Snær Ólafsson íshokkí, Jasmín Erla Ingadóttir fótbolti, Ásgrímur Þór Bjarnason fótbolti, Andrea Jacobsen handbolti og Kristján Örn Kristjánsson handbolti.

Eftirfarandi keppnisferðir voru styrktar

  • Aron Knútsson, heimsmeistaramót U20 ára með íshokkílandsliði Íslands á Jaca á Spáni
  • Andrea Jacobsen, æfingaferð með U17 ára landsliði Íslands í handbolta til Hollands, keppti á móti U19 ára landsliði Hollands
  • Kristján Örn Kristjánsson, evrópumeistaramót U19 ára í Póllandi, tryggðu sér keppnisrétt á heimsmeistaramótinu í handbolta.
  • Jasmín Erla Ingadóttir, fór til Finnlands að keppa vináttuleiki með U17 ára kvennalandsliðinu í knattspyrnu
  • Hulda Hrund Arnardóttir, fór til Litháen með U19 ára til að keppa í undankeppni EM 2015 í knattspyrnu
  • Elvar Snær Ólafsson, fór til Spánar með U20 ára landsliði karla í íshokkí í Jaca á Spáni
  • Ásgrímur Þór Bjarnason, fór til Moldavíu með U17 ára landsliði karla í knattspyrnu
  • Úlfur Gunnar Kjartansson, fór til Frakklands á æfingamót með U17 ára landsliði karla í handbolta

Þessi styrkveiting er vonandi komin til að vera. Við munum veita aftur styrk fyrir ferðalög á vorönn í lok þessarar annar í maí. Styrkveitingunni er ætlað að styðja við okkar efnilega landsliðsfólk úr hinum ýmsu greinum og gera því auðveldara að taka þátt í kostnaðarsömum verkefnum.

Sveinn Þorgeirsson, verkefnisstjóri afreksíþróttasviðs Borgarholtsskóla