Flottir nemendur og gott starf á afreksíþróttasviði Borgarholtsskóla!

Afreksíþróttasvið 2014-2015
Aron Gauti – copyright

Þá er önninni við afreksíþróttasviðið í Borgarholtsskóla að ljúka. Önnin hefur heilt yfir gengið vel og ýmislegt áhugavert átt sér stað. Nægir þar að nefna…

  • Við settum styrkþjálfun inn í allar greinar, fast einu sinni í viku. Æfingar fóru fram í World Class í Egilshöll.
  • Við buðum upp á íþróttasálfræði sem Hreiðar Haraldsson meistaranemi í íþróttasálfræði sá um og gerði mjög vel.
  • Við sendum í fyrsta skiptið út hóp í knattspyrnunni, taldi hann 27 manns í það heila með þeim Daða Rafnssyni og Sigurði Þorsteinssyni sem fararstjórum. Sá hópur fór til Tottenham í Englandi og gerði afar góða ferð.
  • Við bættum við íþróttagrein sem er vonandi komin til að vera. Vilhelm Már Bjarnason sá um íshokkíið í frábærri aðstöðu á skautasvellinu í Egilshöll.
  • Í desember verða veittir styrkir til þeirra sem komust í lokahóp í landsliði í sinni grein og fóru erlendis á þeirra vegum. Þetta er nýtt og mun vafalaust koma að góðum notum.
  • Í nóvember fór fram fundur með fulltrúum úr öðrum afreksíþróttasviðum á landinu. Þrjú komu frá FSu akademíunum og Kristján Ómar gat svarað fyrir Flensborg og hefur nú samanburð á okkar og þeirra starfi. Það var mjög áhugavert.

Flottri önn með flottum kennurum og glæsilegum hópi nemenda lokið. Við tekur spennandi vor!

Sveinn Þorgeirsson, verkefnisstjóri

Umsóknarfrestur á afreksíþróttasvið vor 2015 til kl. 16:00 þann 12. desember

Tilkynning:

Nemendur sem vilja sækja um að komast inn á afreksíþróttasvið þurfa að skila inn skriflegri umsókn fyrir kl. 16:00 þann 12. desemeber á skrifstofu skólanns.

Nemendur sem eru á sviðinu þurfa ekki að skila inn umsókn fyrir vorönnina.

Hér má nálgast eyðublaðið:

Afreksithrottasvid_BHS_Umsoknareydublad_vor_2015

Með bestu kveðju

Sveinn Þorgeirsson, verkefnisstjóri afreksíþróttasviðs

 

Arnór Gauti út til reynslu í Englandi

Nú fyrir skemmstu var Arnór Gauti Ragnarsson leikmaður Breiðabliks og nemandi á afreksíþróttasviði Borgarholtsskóla fenginn út til Englands á reynslu.

Á Englandi fór hann fyrst á æfingar með U21 liði Reading. Þaðan fór hann til Brighton og hefur tekið þátt í æfingum og æfingaleikjum. Skemmst frá því að segja að Arnór setti 4 mörk í æfingaleik gegn Brentford, og fór leikurinn 4-1, virkilega vel gert!

10748776_10203017927829814_1764413201_n

Við óskum Arnóri Gauta til hamingju með þennan árangur og góðs gengis á næstu misserum!

Með bestu kveðju

Þjálfarar afreksíþróttasviðs

 

Sara Margrét til Puerto Rico

Nemandi á afreksíþróttasviði Borgarholtsskóla handbolta, Sara Margrét Brynjarsdóttir mun keppa fyrir hönd Bandaríkjanna á móti sem fram fer í Salinas í Puerto Rico. Sara er með tvöfalt ríkisfang og fékk þetta frábæra tækifæri að spila unglingalandslið Bandaríkjanna U19 þrátt fyrir að hún sé fædd 1998 og því í raun að spila uppfyrir sig.

Hér má nálgas frekari upplýsingar frá mótinu sem ber heitið IHF Trophy Cup.
https://www.facebook.com/usateamhandball

1459939_589341504504223_135058283688327260_n

Við óskum Söru til hamingju með valið í hópinn og óskum henni góðs gengis!

með bestu kveðju
Sveinn og Óskar og þjálfarar afreksíþróttasviðs

Úlfur valinn í U17 ára landsliðið

Afreksíþróttafólkið okkar heldur áfram að vera valið í úrtök og landslið.

Nú síðast var það Þróttarinn og afreksíþróttasviðsnemandinn Úlfur Gunnar Kjartansson sem var valinn í U17 ára landsliðið.

Kristján Arason og Konráð Olavsson landsliðsþjálfarar u-17 ára landsliðs karla hafa völdu 17 leikmenn sem koma til með að fara til Frakklands 29. október nk. og taka þar þátt í 4 liða móti.

Við óskum Úlfi og félögum hans í U17 góðs gengis!

Þjálfarar afreksíþróttasviðs

U-17 okt 2014

http://www.hsi.is/frettir/frett/2014/10/15/u-17-ara-landslid-karla/?fb_action_ids=820368921348689&fb_action_types=og.likes

Hulda og Thea í U19 ára landsliðinu

Virkilega gaman að segja frá því að afreksstelpurnar okkar, þær Hulda Dagsdóttir og Thea Imani hafa verið valdar í æfingahóp U19 ára landslið kvenna sem æfir um þar næstu helgi. Þær eru vel að þessu komnar og nú er það undir þeim komið að sýna sig og sanna og komast í lokahópinn.

Hópinn má sjá hér. http://www.hsi.is/frettir/frett/2014/10/02/u-19-ara-landslid-kvenna/

Við óskum þeim tveim innilega til hamingju!

V3-702019947

THEA IMANI STURLUDÓTTIR

20131104_123127

HULDA DAGSDÓTTIR

mbk
Sveinn Þ og Óskar Bjarni

Afreksíþróttasviðið í fótboltanum fer út til Tottenham!

Ákveðið hefur verið að fara með nemendur á afreksíþróttasviði fótboltans til Tottenham í næsta mánuði. Um er að ræða einstaklega glæsilega ferð með tveimur heilum dögum sem eru alfarið í umsjá Tottenham þjálfara á æfingasvæði þeirra með æfingum, leikjum og fræðslu. Þetta verður frábær pakki og í fyrsta sinn sem fótboltasviðið fer út, enda hefur verið stefnt að þessu í talsverðan tíma.

Nánari upplýsingar og fréttir verða birtar þegar nær dregur. Endilega fylgist með

.friedel-smiling-training

með bestu kveðju
Sveinn og þjálfarar

Hulda Hrund með frábært mark í undankeppni EM U19 ára í fótbolta!

Nú fyrir skemmstu kom landslið U19 kvenna heim eftir þátttöku sína í undankeppni EM. Þar var liðið í riðili með Litháen, Króatíu og Spáni.  Króatía hafði gert jafntefli við Ísland í milliriðli síðustu keppni, í apríl á þessu ári.  Spánverjar voru með öflugt lið.  Sjö leikmenn voru áfram í u19 liðinu sem hafði komist í úrslitaleik EM í júlí og yngri leikmennirnir höfðu tapað úrslitaleik á HM u17 ára í apríl fyrir Japan. Afreksíþróttasviðið átti sinn fulltrúa í Fylkisstúlkunni Huldu Hrund.

Markmiðið var að komast í milliriðil. Sigurvegarar riðlana ásamt besta árangrinum í 2. sæti komust áfram í milliriðil.

Ísland vann Litháen 8 – 0
Ísland vann Króatíu 1 – 0 í hörkuleik þar sem að liðið lék einum færri í 62 mínútur.
Ísland tapaði fyrir Spáni í uppbótartíma 1- 2.  Hulda Hrund skoraði mark Íslands á 78 mínútu.

Það fór því svo að Ísland komst áfram og verður milliriðillinn leikinn 4. – 9. apríl 2015.  Dregið verður í milliriðil 20. nóvember.

Hér má svo sjá markið sem Hulda skoraði gegn Spáni – það var af dýrari gerðinni vægast sagt 🙂

Mark – Hulda Hrund from Breiðablik on Vimeo.

með bestu kveðju

Þjálfarar afreksíþróttasviðs BHS

með bestu kveðju

Þjálfarar knattspyrnunnar, Daði, Úlfar og Henrik

Andrea Jacobsen í lokahóp U17

Það er mikið ánægjuefni fyrir afreksíþróttasviðið að Andrea Jacobsen var í gær valin í lokahóp U-17 ára landsliðs sem heldur út til Hollands í æfingaferð 6.-12. október.

Við erum að sjálfsögðu afar stolt af því að hafa hana og margar aðrar góðar stelpur á afreksíþróttasviðinu hjá okkur.

Hér má sjá hópinn sem fer út:
http://hsi.is/frettir/frett/2014/09/22/Aefingahopur-U-17-ara-landslids-kvenna/

Við óskum henni góðrar ferðar og góðs gengis

Sveinn Þorgeirsson, Óskar Bjarni Óskarsson og þjálfarar afreksíþróttasviðs