Kynningarfundir á miðvikudag á zoom

Hér er hlekkurinn á kynninguna sem fram fer í gegnum zoom https://eu01web.zoom.us/j/5286151095
Flutt verður stutt kynning á uppbyggingu sviðsins og spurningum svarað
Hlakka til og vonast til að sjá sem flesta 🙂
SÞ
Meðmælendur með umsókn
Við höfum ákveðið að breyta verklagi í kringum umsóknarferlið okkar og biðjum um að nemendur tilgreini meðmælanda í stað þess að fá uppáskrifað meðmælabréf eins og áður hefur tíðkast.
Það gerir það að verkum að umsækjandi þarf að vera í sambandi við sinn þjálfara og fá leyfi hans til að láta tengiliðaupplýsingar um hann fylgja í umsókn viðkomandi á sviðið. Með þessu er þjálfari meðvitaður um ferlið frá upphafi og við getum fengið umsagnir um nemendur.
Hér er umsóknareyðublaðið sem er rafrænt
https://forms.office.com/r/vrgzXDMZ1c
með kærri fyrirfram þökk
Sveinn Þorgeirsson, verkefnisstjóri
Kynningarveggspjald: Stúlkur velkomnar í nýtt skipulag
Kynningarveggspjald: Spennandi nám í boði í Borgó!
Febrúar [2021] fréttabréf afreksíþróttasviðs
Nú á myndskeiðsformi
SÞ
13. afhending landsliðsstyrks afreksíþróttasviðs
Það voru óvenju fá landsliðsverkefnin síðasta haust af völdum heimsfaraldursins. Dagbjartur Sigurbrandsson golfari tók þátt á EM karla sem var í Hollandi 9.-12. september. sland var einu höggi frá því að spila í A riðli. Liðið spilaði í B riðli og vann hann svo að Íslandi endaði í 9 sæti . Dagbjartur endaði í T22 í einstaklingshöggleiknum. Nánar er um þetta fjallað í þessum fréttum hér:
https://www.mbl.is/sport/golf/2020/08/17/landslidin_valin_fyrir_em
https://www.kylfingur.is/frettir/karlalandslidid-endadi-i-9-saeti-a-em
SÞ
Hér er nýja umsóknareyðublaðið fyrir HAUST 2021
Hér er umsóknareyðublaðið þar sem nemendur sem vilja sækja um í Borgarholtsskóla sækja um í fyrir næsta haust.
SÞ
Morgunæfingar í boði afreksíþróttasviðs
Miðvikudaginn 10. febrúar ætlar afreksíþróttasviðið að bjóða upp á opnar æfingar sem hluta af dagskrá þemadaga skólans. Um er að ræða tvær æfingar sem hefjast kl. 9 og 10, og eru með sitt hvorri áherslunni. Fyrri æfingin er með áherslu á liðleika og síðari æfingin með áherslu á styrk.
Æfingarnar eru í umsjón Arnórs Ásgeirssonar íþróttafræðings og styrkþjálfara og Ölmu Kristmannsdóttur sjúkraþjálfara

kl. 9:00 – Opnar æfingar á afreksíþróttasviði – heimaæfingar – Áhersla á liðkun https://youtu.be/p90c7FAIZ-w
Tímaseðill:
Liðkun og flæði 15-20 mín (Alma)
Styrkur 15 mín (Arnór)
Teygjur og slökun 10 mín (Alma):
kl. 10:00 – Opnar æfingar á afreksíþróttasviði – heimaæfingar – Áhersla á styrk
https://eu01web.zoom.us/j/5286151095
Tímaseðill:
Liðkun og flæði 10 mín (Alma)
Styrkur 25 mín (Arnór):
Teygjur og slökun 10 mín (Alma)
gangi ykkur vel!
SÞ
Nýtt: Nýja youtube rásin okkar
Vildum benda ykkur á að við erum komin með okkar eigin youtube rás fyrir allt sem tengist okkar starfi og vídeóum. Öllu því helsta verður hlaðið þarna upp og stöku viðburðum streymt.
https://www.youtube.com/channel/UCtu0HCTKGC-p_xdKgazAigw

SÞ






